Á þriðja hundrað nemendur í Háskóla unga fólksins

Von er á um 230 krökkum á aldrinum 12–14 ára í hinn árlega Háskóla unga fólksins í Háskóla Íslands, en hann fer að þessu sinni að mestu fram í nýjum húsakynnum Menntavísindasviðs í Sögu. Skólinn verður starfræktur dagana 10.–12. júní þar sem vísindamenn og nemendur HÍ kynna fyrir þátttakendum undur vísindanna og tilverunnar á lifandi og skemmtilegan hátt.
Háskóli unga fólksins hefst kl. 13:00 miðvikudaginn 10. júní með skólasetningu í Sögu. Í framhaldinu taka nemendur þátt í þemadagskrá þar sem kafað er ofan í tilteknar tegundir vísinda. Nemendur geta m.a. valið um eðlisfræðiþema þar sem þeir heimsækja tilraunastofu í stjarneðlisfræði þar sem unnið er að þróun og hönnun stjörnusjónauka, félagsvísindaleikinn þar sem nemendur kynnast því hvernig það er að vera fullorðin, galdra fornleifafræðinnar í skemmtilegri vettvangsferð í Þjóðminjasafn Íslands, gervigreindarþema og heimsókn í tölvuleikjafyrirtækið CCP, ratleik með fræðafólki í íþrótta- og heilsufræði og innsýn í framandi menningarheima í tungumálamaraþoni.
Á fimmtudag og föstudag sækja nemendur svo fjölbreytt styttri námskeið samkvæmt stundatöflu sem þau hafa valið sjálf. Meðal viðfangsefna þeirra eru afbrotafræði, eðlisfræði vatnseldflauga, félagsráðgjöf-hugarstyrkur, valslöngvusmíði, íslenskt táknmál, kínversk fræði, lögfræði, gervigreindargrúsk, lyfjafræði, sjúkraþjálfun, skurðlækningar, tré- og tálgun og leiklist.
Í Háskóla unga fólksins er áhersla lögð á lifandi og skemmtilega fræðslu og viðfangsefni og á milli kennslustunda er boðið upp á útileiki og spil. Botninn verður sleginn í Háskóla unga fólksins föstudaginn 12. júní með grillveislu og lokahátíð við Sögu þar sem einnig verður boðið upp á ýmiss konar uppblásin leiktæki og skemmtun fyrir nemendur.
Hægt er að kynnast skólastarfinu í Háskóla unga fólksins á vef hans, ung.hi.is, og á Facebook-síðu Háskóla unga fólksins.
