Forsenda nýsköpunar: Áhrif vísinda á íslenskt samfélag - málþing
Hvenær
16. maí 2024 14:00 til 15:30
Hvar
Háskólinn í Reykjavík, stofa M208
Nánar
Aðgangur ókeypis
Vegna niðurskurðar til vísindasjóða og aukinnar verðbólgu hafa framlög til vísindarannsókna lækkað umtalsvert á síðustu árum. Vísindasamfélagið vill bregðast við með því að benda á verðmæti vísinda fyrir samfélagið, óháð fræðasviði.
Að þessu málþingi standa saman Háskóli Íslands og Háskólinn í Reykjavík í samvinnu við ReykjavíkurAkademíuna og FEDON, félag doktorsefna og nýrannsakenda við HÍ.
Málþingið fer fram í stofu M208 í HR, fimmtudaginn 16. maí kl. 14.00-15.30.
Forsenda nýsköpunar: Áhrif vísinda á íslenskt samfélag.
- Hverju skila lífvísindin til samfélagsins?
- Erna Magnúsdóttir, dósent HÍ - Fjármögnun grunnrannsókna: Næring fyrir nýsköpun.
- Sigurður Ingi Erlingsson, prófessor HR - Áhrif samningsleysis á unga rannsakendur: Jafnrétti og samfélagsleg gæði í húfi.
- Svava Dögg Jónsdóttir doktorsnemi HÍ/formaður FEDON - Frumkvöðlar á sviði fræða - áhugadrifnar rannsóknir og samfélagsleg nýsköpun.
- Anna Þorbjörg Þorgrímsdóttir, ReykjavíkurAkademíunni - Verðmætasköpun, samfélagsleg áhrif og gagnrýnin hug- og félagsvísindi.
- Þorgerður Einardsóttir, prófessor HÍ
Fundarstjóri: Magnús Karl Magnússon, prófessor við HÍ.