Skip to main content
29. apríl 2024

Sigurður Reynir kjörinn í Bandarísku lista- og vísindaakademíuna

Sigurður Reynir kjörinn í Bandarísku lista- og vísindaakademíuna - á vefsíðu Háskóla Íslands

Sigurður Reynir Gíslason, jarðefnafræðingur og rannsóknaprófessor við Jarðvísindastofnun Háskólans, hefur verið kjörinn heiðursmeðlimur í Bandarísku lista- og vísindaakademíunni (American Academy of Arts and Sciences) fyrir störf sín á sviði jarðvísinda.

Akademían er í senn samfélag sem heiðrar framúrskarandi vísindamenn, listamenn og leiðtoga og leiðir saman vísindamenn og sérfræðinga úr ólíkum vísinda-, lista- og starfsgreinum til að takast á við áskoranir sem snerta samfélög um allan heim. Akademían var sett  á laggirnar árið 1780 og meðal þeirra sem kjörin hafa verið í hana má nefna Benjamin Franklin, George Washington, Margaret Mead, John F. Kennedy, Martin Luther King, Jr., Mörthu Graham, Georgiu O’Keeffe og Madeleine Albright.

Alls eru 250 félagar á 31 sérfræðisviði teknir inn í Bandarísku lista- og vísindaakademínuna í ár, langflestir frá Bandaríkjunum, en þeirra á meðal eru Pulitzer-verðlaunahafinn Jhumpa Lahiri, leikarinn og leikstjórinn George Clooney og Tim Cook, forstjóri Apple. Sigurður Reynir er í hópi 25 alþjóðlegra heiðursmeðlima sem teknir eru inn að þessu sinni og bætist þar í hóp ekki ómerkari erlendra akademíumeðlima en Charles Darwin, Albert Einstein, Wislawa Szymborska, Gabriel Garcia Márquez, Nelson Mandela og Claude Jean Allegre.

Sigurður Reynir er í góðum hópi fræðimanna í flokki stjörnufræði, stjarneðlisfræði og jarðvísinda sem teknir hafa verið inn í Bandarísku lista- og vísindaakademíuna. Hann er þekktastur fyrir forystuhlutverk sitt innan CarbFix-verkefnisins en hann gegndi formennsku í Vísindaráði þess frá upphafi þess 2006 til 2020. Verkefnið snýst um að binda koltvíoxíð í basaltjarðlögum og hefur árangur þess við niðurdælingu og bindingu koltvíoxíðs við Hellisheiðarvirkjun og víðar vakið heimsathygli og hlotið ýmsar viðurkenningar. 

Sigurður Reynir margverðlaunaður fyrir störf sín

Sigurður Reynir og rannsóknarhópur hans hafa lagt sérstaka áherslu á hringrás kolefnis á jörðinni, bindingu kolefnis í bergi og áhrif eldgosa á loft, vatn og lífverur. Eftir hann og samstarfsfólk liggja yfir 150 vísindagreinar í alþjóðlegum tímaritum auk bóka sem tengjast jarðvísindum, nú síðast bókin „Carbon Capture and Storage: From Global Cycles to Global Solutions“ sem hann skrifaði með Eric H. Oelkers.

Sigurður Reynir

Sigurður Reynir er margverðlaunaður fyrir störf sín. Hann hefur verið kjörinn félagi (e. Fellow) hjá Alþjóðasamtökum í jarðefnafræði auk bandarísku og evrópsku samtakanna á sama sviði. Þá hlaut hann Clair C. Patterson verðlaun Jarðefnafræðisamtaka Bandaríkjanna árið 2018 sem eru  ein af virtustu viðurkenningum sem veittar eru í jarðefnafræði. Sigurður Reynir hlaut íslensku fálkaorðuna fyrir framlag til íslenskra jarðvísinda og kolefnisbindingar árið 2020. Hann var einn af „Falling Walls 2021 Winner in Physical Science“ í Berlín og var sama ár fyrstur til að hljóta viðurkenningu úr Nýsköpunarsjóði dr. Þorsteins Inga Sigfússonar við Háskóla Íslands.  Nafnbótina „Eldhugi Kópavogs 2024“ fékk hann svo í mars síðastliðnum.

Sigurður Reynir lauk BS-gráðu í jarðfræði frá Háskóla Íslands árið 1980 og doktorsprófi í jarðefnafræði frá Johns Hopkins University í Bandaríkjunum árið 1985. Frá þeim tíma hefur hann starfað sem fræðimaður, vísindamaður og síðar rannsóknaprófessor við Jarðvísindastofnun Háskólans.

Sigurður Reynir verður formlega tekinn inn í Bandarísku vísindaakademíuna við athöfn í heimaborg akademíunnar, Cambridge í Massachusetts, í september næstkomandi. 

Vefsíða Sigurðar Reynis

Sigurður Reynir Gíslason