Núvitundarnámskeið Núvitund: Hagnýtt leiðsögn til að finna frið í hamstola heimi Helstu efnisatriði Um er að ræða 6 vikna núvitundarnámskeið sem byggir á Mindfulness-Based Cognitive Therapy (MBCT) sem er ítarlega rannsökuð og gagnreynd meðferð fyrir endurteknu þunglyndi. Núvitundarnámskeiðið er styttri útgáfa af MBCT og er hugsað til að takast á við streitu daglegs lífs. Niðurstöður rannsókna hafa sýnt fram á að núvitundarþjálfun hefur jákvæð áhrif á almenna líðan, bætir heilsufar, dregur úr streitu, kvíða og depurð. Hún felur í sér að læra að nema staðar, vera heilsuhugar til staðar og lifa lífinu í takt við eigin lífsgildi. Námskeiðið er skipulagt í samræmi við metsölubókina „Núvitund: Hagnýt leiðsögn til að finna frið í hamstola heimi“ eftir Mark Williams og Danny Penman þar sem sérstök áhersla er lögð á að ná tökum á streitu daglegs lífs. Það er eitt útbreiddasta núvitundarnámskeið í Bretlandi um þessar mundir. Það hefur m.a. verið haldið fyrir breska þingmenn, starfsmenn í viðskipta- og heilbrigðisgeiranum og starfsmenn heilbrigðiskerfisins, NHS. Háskólarnir í Oxford, Exeter og Bangor bjóða upp á þetta námskeið fyrir sína háskólanema, almenning og starfsmenn fyrirtækja. Námsmarkmið Markmið námskeiðsins er að þjálfa núvitund, öðlast meiri hugarró og njóta betur líðandi stundar. Kennsluform Stuðst verður einna helst við reynslunám (experiential learning) þar sem áhersla er lögð á að þátttakendur upplifi efnið á eigin skinni með hugleiðsluæfingum og annarri hugarþjálfun. Einnig verður fræðsla og umræða. Kennslugögn Með námskeiðinu fylgir bókin „Núvitund: Hagnýtt leiðsögn til að finna frið í hamstola heimi“ og hljóðskrá. Fyrir hverja Námskeiðið er fyrir alla sem vilja kynna sér nálgun núvitundar til að takast á við depurð, kvíða og streitu daglegs lífs. Auka almenna vellíðan sem skilar sér bæði í einkalífi og starfi. Tími Námskeiðið er 6 vikna langt. Hver tími er 1,5 klst. að lengd og mælt er með 20-40 mínútna heimavinnu á hverjum degi á meðan á námskeiðinu stendur. Lokaverkefni í grunnnámi BA, BS, B.Ed: Hagnýt vinnubrögð Við bjóðum upp á vinnustofur fyrir nemendur í grunnnámi sem eru að hefja vinnu við að skrifa lokaverkefni sín. Farið verður yfir gagnleg atriði og ábendingar um vinnuferlið við skrifin. Nemendur mæta í eitt skipti í 2 klst. í senn. Námskeið vormisseris 2024 verða auglýst síðar Sjálfstyrkingarnámskeið Sálfræðiþjónusta NHÍ býður nemendum skólans upp á fimm vikna sjálfstyrkingarnámskeið sem byggir á aðferðum hugrænnar atferlismeðferðar (HAM). Á námskeiðinu verða kenndar aðferðir til að rjúfa vítahring lágs sjálfsmats með því að vinna með óhjálplegar hugsanir (sjálfsgagnrýni) og óhjálplega hegðun (frestun, forðun og fullkomnunaráráttu). Við munum skoða gagnlegar leiðir til að takast á við lágt sjálfsmat og bæta þannig líðan okkar. Námskeiðsgjald er 6.000 kr. Aðeins 15 pláss eru í boði og því er nauðsynlegt að skrá sig.Skráning fer einungis fram á Þjónustuborðinu, Háskólatorgi. Vinsamlegast athugið að skráning á námskeið er bindandi. Hægt er að óska eftir endurgreiðslu í síðasta lagi tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst. Námskeið vormisseris 2024 verða auglýst síðar Seigla og bjargráð - með verkfærum HAM og jákvæðrar sálfræði Sálfræðiþjónusta NHÍ býður upp á 5 vikna námskeið um að auka og viðhalda vellíðan fyrir nemendur HÍ. Verkfæri hugrænnar atferlismeðferðar og jákvæðrar sálfræði verða kynnt til leiks eins og vítahringir óhjálplegra hugsana og hegðunar, þakklætis- og núvitundaræfingar ásamt gildum og markmiðasetningar. Leiðbeinendur eru Guðlaug & Katrín klínískir sálfræðingar. Námskeiðsgjald er 6000 kr.Skráning fer einungis fram á Þjónustuborðinu, Háskólatorgi. Aðeins 12 pláss eru í boði og því er nauðsynlegt að skrá sig sem fyrst. Námskeið vormisseris 2024 verða auglýst síðar Örfyrirlestrar Tímastjórnun Undirbúningur fyrir próf Próftaka Vinnuferli háskólanema Markmiðasetning í námi Frestun Glósugerð Vellíðan í námi Gerð ferilskrár Gerð kynningarbréfs Atvinnuviðtalið Núvitundarnámskeið Núvitund: Hagnýtt leiðsögn til að finna frið í hamstola heimi Helstu efnisatriði Um er að ræða 6 vikna núvitundarnámskeið sem byggir á Mindfulness-Based Cognitive Therapy (MBCT) sem er ítarlega rannsökuð og gagnreynd meðferð fyrir endurteknu þunglyndi. Núvitundarnámskeiðið er styttri útgáfa af MBCT og er hugsað til að takast á við streitu daglegs lífs. Niðurstöður rannsókna hafa sýnt fram á að núvitundarþjálfun hefur jákvæð áhrif á almenna líðan, bætir heilsufar, dregur úr streitu, kvíða og depurð. Hún felur í sér að læra að nema staðar, vera heilsuhugar til staðar og lifa lífinu í takt við eigin lífsgildi. Námskeiðið er skipulagt í samræmi við metsölubókina „Núvitund: Hagnýt leiðsögn til að finna frið í hamstola heimi“ eftir Mark Williams og Danny Penman þar sem sérstök áhersla er lögð á að ná tökum á streitu daglegs lífs. Það er eitt útbreiddasta núvitundarnámskeið í Bretlandi um þessar mundir. Það hefur m.a. verið haldið fyrir breska þingmenn, starfsmenn í viðskipta- og heilbrigðisgeiranum og starfsmenn heilbrigðiskerfisins, NHS. Háskólarnir í Oxford, Exeter og Bangor bjóða upp á þetta námskeið fyrir sína háskólanema, almenning og starfsmenn fyrirtækja. Námsmarkmið Markmið námskeiðsins er að þjálfa núvitund, öðlast meiri hugarró og njóta betur líðandi stundar. Kennsluform Stuðst verður einna helst við reynslunám (experiential learning) þar sem áhersla er lögð á að þátttakendur upplifi efnið á eigin skinni með hugleiðsluæfingum og annarri hugarþjálfun. Einnig verður fræðsla og umræða. Kennslugögn Með námskeiðinu fylgir bókin „Núvitund: Hagnýtt leiðsögn til að finna frið í hamstola heimi“ og hljóðskrá. Fyrir hverja Námskeiðið er fyrir alla sem vilja kynna sér nálgun núvitundar til að takast á við depurð, kvíða og streitu daglegs lífs. Auka almenna vellíðan sem skilar sér bæði í einkalífi og starfi. Tími Námskeiðið er 6 vikna langt. Hver tími er 1,5 klst. að lengd og mælt er með 20-40 mínútna heimavinnu á hverjum degi á meðan á námskeiðinu stendur. facebooklinkedintwitter