Menntavísindasvið er með samstarfssamninga við fjölmargar stofnanir og aðila sem koma að menntamálum og skólastarfi, s.s. menntamálaráðuneyti, sveitarfélög og stéttarfélög stétta sem sviðið menntar. Að auki er Menntavísindasvið í samstarfi við önnur svið Háskóla Íslands um nám, kennslu og rannsóknir og við aðra innlenda og erlenda háskóla.
Kennaradeild er í nánu samstarfi við leik-, grunn- og framhaldsskóla um allt land. Samstarfsskólar taka að sér að vera heimaskólar kennaranema á námstíma þeirra. Heimaskólar veita ákveðnum fjölda nema aðgang að skólanum til að vinna þar þau verkefni sem tengjast vettvangi. Um fjölbreytt verkefni er að ræða, m.a. æfingakennslu, kynnisheimsóknir, þátttöku í undirbúningi og framkvæmd kennslu, athuganir á skólastarfi o.fl.