Hvenær byrjar kennsla? Upplýsingar um kennslu og kennslutímabil má finna í kennslualmanaki HÍ Hvar nálgast ég stundatöflu? Hér má finna stundatöflur Félagsráðgjafardeildar Hvar finn ég bókalista fyrir námskeið? Á vefsíðu Bóksölu stúdenta eru bókalistar fyrir flest námskeið deildarinnar. Stundum má einnig nálgast bókalista inni á heimasvæði námskeiða í Uglu eða í kennsluskrá. Hvar finn ég nemendafélagið mitt? Á vefsíðu Stúdentaráðs eru tenglar á heimsíður nemendafélaga. Nemendafélög hafa ekki sérstakar skrifstofur en þau hafa aðgang að aðstöðu Stúdentaráðs. Til að komast í samband við nemendafélagið þitt er best að hafa samband við ábyrgðaraðila, s.s. formenn, ritara eða gjaldkera. Yfirleitt eru upplýsingar um þá að finna á heimasíðum nemendafélaganna. Hvar fæ ég stúdentakort? Stúdentakort er auðkennis- og afsláttarkort sem sótt er um í Uglunni (Uglan mín --> Stúdentakort). Stúdentakort eru gefin út í tveimur mismunandi útgáfum og velur þú aðra hvora. Annars vegar er auðkennis- og afsláttakort og hins vegar rafrænt aðgangskort. Auk þess að vera auðkennis- og afsláttakort veitir rafrænt aðgangskort korthafa aukinn aðgang að byggingum Háskólans umfram venjulegan opnunartíma þeirra (Háskólatorg, VRII, Askja og Hamar). Hægt er að sækja kortið sjálft á þjónustuborðinu í Háskólatorgi. Vinsamlegast athugið að nemendur fá ekki ný stúdentakort árlega heldur er það endurnýjað með límmiða á Þjónustuborðinu Háskólatorgi. Hvar get ég ljósritað? Á Landsbóksafni - Háskólabókasafni eru nokkrar ljósritunarvélar fyrir notendur safnsins. Hægt er að kaupa kort í afgreiðslu safnins á 1. hæð. Auk þessa sér Háskólaprent, Fálkagötu 2, um alla almenna prentþjónustu gegn gjaldi. Hvar fæ ég upplýsingar um nám í erlendum háskólum? Alþjóðasvið gefur allar upplýsingar um nám erlendis. Hvar finn ég gömul próf? Almennt eiga stúdentar rétt á því að fá að skoða eldri prófverkefni sem lögð hafa verið fyrir þegar að prófraun er að fullu lokið. Prófverkefni eru í prófasafni hvers námskeiðs eða kennari veitir sjálfur aðgang að þeim, óski stúdent eftir því. Kennara ber að sýna en ekki afhenda afrit af eldri verkefnum. Í undantekningartilvikum er heimilt að synja um slíkan aðgang. Hafi kennari ákveðið að veita sjálfur aðganga þá senda stúdentar viðkomandi kennara beiðni um aðgang í tölvupósti. Hvað þýðir árleg skráning? Árleg skráning er skráning í námskeið næsta háskólarárs (haust- og vormisseri). Mjög mikilvægt er að sinna skráningu á tímabili árlegrar skráningar vor hvert þar sem árleg skráning jafngildir skráningu í skólann næsta ár. Hvenær get ég endurskoðað skráningu mína í námskeið? Stúdent getur endurskoðað skráningu sína í upphafi kennslumisseris. Upplýsingar um tímafrest er að finna á kennslualmanaki Háskóla Íslands. Hver er hámarks einingafjöldi sem hægt er að skrá sig í? Hámarksfjöldi eininga á misseri er 40 einingar. Hvaða reglur gilda um leyfi frá námi? Stúdent þarf að sækja um heimild til að taka leyfi frá námi á netfangið felagsradgjof@hi.is. Gæta þarf að tímaramma náms því námshlé lengir ekki þann tíma sem stúdentar hafa til að ljúka námi. Stúdent hefur níu misseri til að ljúka BA-námi. Stúdent þarf að greiða hluta skrásetningargjalds á meðan leyfi stendur. Stúdent ber að skrá sig árlegri skráningu fyrir næsta háskólaár á auglýstu tímabili meðan á leyfi stendur. Hvað get ég gert ef ég er ósátt(ur) við niðurstöðu prófa? Úr 59. gr. reglna um Háskóla Íslands Stúdent á rétt til að fá útskýringar kennara á mati skriflegrar úrlausnar sinnar ef hann æskir þess innan 15 daga frá birtingu einkunnar. Vilji stúdent, sem ekki hefur staðist próf, þá eigi una mati kennarans getur hann snúið sér til viðkomandi deildarforseta. Skal þá prófdómari skipaður í hverju tilviki. Meirihluti nemenda í námskeiði getur með rökstuddu erindi óskað eftir því að skipaður verði prófdómari til þess að fara yfir skriflegar úrlausnir á loka-prófi í námskeiðinu. Þegar prófdómari er skipaður eftir að einkunn kennara hefur verið birt fer hann einungis yfir prófúrlausnir þeirra nemenda sem óskað hafa eftir endurmati. Einnig getur kennari, telji hann til þess sérstaka ástæðu, óskað skipunar prófdómara í einstöku prófi og fer hann þá yfir prófúrlausnir allra nemenda í námskeiðinu. Prófdómari verður þó ekki skipaður, ef meira en sex vikur hafa liðið frá birtingu einkunnar og þar til beiðni um skipunina berst. Hvað gerist ef nemandi eða barn nemanda veikist þannig að nemandi getur ekki tekið próf? Nemandi sem veikist og getur þar af leiðandi ekki mætt til prófs, skal tilkynna veikindin með tölvupósti til Nemendaskrár (nemskra@hi.is) innan þriggja daga frá prófdegi. Tilgreina þarf númer og heiti námskeiðs, ásamt nafni og kennitölu nemanda. Hið sama gildir ef barn stúdents veikist. Prófdagur telst ekki með í frestinum og ef síðasti dagur frestsins fellur á frídag þarf að tilkynna veikindin í síðasta lagi næsta virkan dag á eftir. Hvað gerist ef nemandi veikist á meðan á próftöku stendur? Veikist nemandi í prófi ber honum að vekja athygli prófvarðar sem skrifar athugasemd um það á prófúrlausn. Nemandi skal tilkynna veikindin með tölvupósti til Nemendaskrár samdægurs. Tilgreina þarf númer og heiti námskeiðs, ásamt nafni og kennitölu nemanda. Má taka upptökupróf í námskeiði sem ég hef staðist? Nemendum er heimilt að taka próf aftur sem þeir hafa staðist ef þeir vilja hækka einkunn. Þetta er hægt bæði með því að skrá sig í upptökupróf eða aftur í námskeiðið. facebooklinkedintwitter