Nemendur við Háskóla Íslands greiða ekki skólagjöld en árlegt skrásetningargjald við skólann er kr. 75.000 (kr. 55.000 ef sótt er um innritun á vormisseri). Eindagi skrásetningargjalds við Háskóla Íslands er: 4. júlí fyrir háskólanám sem hefst að hausti. 6. janúar fyrir háskólanám sem hefst að vori Eftir eindaga fellur vilyrði um skólavist niður. Nemendum og umsækjendum sem ekki greiða skrásetningargjaldið fyrir eindaga gefst þó kostur á að skrá sig utan auglýstra skráningartímabila og greiða gjaldið með 10.000 kr. álagi. Frestur til að staðfesta skrásetningu sína með þeim hætti rennur út 12. ágúst. Sjá nánar reglur um greiðslu skrásetningargjalds hér að neðan. Reglur um greiðslu skrásetningargjalds Eindagi skrásetningargjaldsins er 4. júlí. Eftir eindaga fellur niður vilyrði um skólavist eða heimild til áframhaldandi skólavistar. Skrásetningargjaldið er óendurkræft. Skrásetningargjald vegna náms sem hefst að hausti Nýnemar sem innritaðir eru til náms sem hefst á haustmisseri geta gengið frá greiðslu skrásetningargjalds, kr. 75.000, í samskiptagátt skólans. Þar er hægt að greiða gjaldið með greiðslukorti í einu lagi eða með kortaláni. Nýnemum ber að greiða skrásetningargjald fyrir eindaga, 4. júlí. Skrásetning til náms við skólann tekur gildi við greiðslu skrásetningargjaldsins. Nýnemar geta þá sótt um notandanafn og aðgangsorð og fengið aðgang að tölvukerfi Háskólans og innra netinu, Uglu. Skrásetningargjaldið er óendurkræft. Ef þú lendir í erfiðleikum með að greiða í samskiptagáttinni getur þú haft samband við Nemendaskrá HÍ fyrir eindaga hverju sinni: s. 525 4309 netfang nemskra@hi.is Skrásetningargjald vegna náms sem hefst að vori Umsækjendur sem fengið hafa heimild til að hefja nám á vormisseri geta gengið frá greiðslu skrásetningargjalds, kr. 55.000, í samskiptagátt. Þar er hægt að greiða gjaldið með greiðslukorti í einu lagi eða með kortaláni. Umsækjendur verða að greiða skrásetningargjald og staðfesta þar með skrásetningu sína fyrir eindaga, 6. janúar. Skrásetning til náms við skólann tekur gildi við greiðslu skrásetningargjaldsins. Nýnemar geta þá sótt um notandanafn og aðgangsorð og fengið aðgang að tölvukerfi Háskólans og innra netinu, Uglu. Skrásetningargjaldið er óendurkræft. Ef þú lendir í erfiðleikum með að greiða í samskiptagáttinni getur þú haft samband við Nemendaskrá HÍ fyrir eindaga hverju sinni: s. 525 4309 netfang nemskra@hi.is Skráning í námskeið næsta háskólaárs (árleg skráning) Skráning í námskeið næsta háskólaárs (haust- og vormisseri) fer fram í mars á hverju ári. Allir nemendur Háskólans þurfa að skrá sig í námskeið árlega, einnig þeir sem stunda framhaldsnám. Greiða þarf skrásetningargjaldið í tengslum við skráningu til áframhaldandi náms á næsta háskólaári. Er þá hægt að greiða gjaldið í einu lagi með greiðslukorti (debet eða kredit) eða dreifa greiðslum með því að taka kortalán. Sjá nánari leiðbeiningar í kennsluskrá. Greiða skal gjaldið fyrir eindaga, 4. júlí. Heimild til lækkunar skrásetningargjalds Nýnemar sem innritast í nám á miðju háskólaári, í janúar, greiða lægra skrásetningargjald, eða kr. 55.000. Nemendur með örorkuskírteini fá afslátt af gjaldinu og greiða einnig kr. 55.000. Námsleyfi Stúdent sem fær leyfi hjá háskóladeild sinni til þess að gera hlé á námi sínu allt háskólaárið greiðir kr. 10.000. Nánar er fjallað um skrásetningargjald í kennsluskrá. Sjá einnig reglur um gjaldskrá Háskóla Íslands vegna þjónustu við nemendur o.fl. og innheimtu skrásetningargjalds. Tengt efni Algengar spurningar Gjaldskrá HÍ vegna þjónustu við nemendur o.fl. Reglur um gjaldskrá Háskóla Íslands facebooklinkedintwitter