Hver er munurinn á staðnámi og fjarnámi og hvað þarf að hafa í huga þegar fólk hefur fjarnám? Svör við því fást hér að neðan. Skilgreiningar á fjarnámi á námsleið Skilgreiningar á fjarnámi á námsleiðum Staðnámsleið Mögulegt er að ljúka námsleiðinni alfarið eða að langmestu leyti í staðnámi. Það þýðir að námskeið eru almennt skipulögð þannig að námið fer fram á tilteknum tíma og stað (t.d. í kennslurými). Hugsanlegt er að einstaka námskeið, skyldu- og/eða valnámskeið, séu aðeins í boði í fjarnámi eða netnámi. Fjarnámsleið Mögulegt er að ljúka námsleiðinni alfarið í fjarnámi. Það þýðir að námskeið eru skipulögð þannig að námið fer fram á netinu og gert er ráð fyrir rauntímaþátttöku nemenda á netfundum, í staðlotum og/eða vettvangsnámi. Nemendur fylgja skipulagi námskeiða samkvæmt kennsluáætlun og skiladögum verkefna. Ef próf eru í námskeiðum, þá þurfa nemendur að þreyta þau á þeim tíma sem tilgreindur er. Þó að mögulegt sé að ljúka námsleiðinni alfarið í fjarnámi, þá má vera að einhver valnámskeið séu eingöngu í boði í staðnámi. Netnámsleið Mögulegt er að ljúka námsleiðinni alfarið í netnámi. Það þýðir að námskeið eru skipulögð þannig að námið fer fram á netinu og ekki er gert ráð fyrir rauntímaþátttöku, en nemendur fylgja skipulagi námskeiða samkvæmt kennsluáætlun og skiladögum verkefna. Ef próf eru í námskeiðum, þá þurfa nemendur að þreyta þau á þeim tíma sem tilgreindur er. Þó að mögulegt sé að ljúka námsleiðinni alfarið í netnámi, þá má vera að einhver valnámskeið séu eingöngu í boði í staðnámi. Blönduð námsleið Námsform námskeiða er mismunandi, sum geta verið staðnámskeið en önnur fjarnámskeið Athugið að hugsanlegt er að námsleið sé merkt sem bæði staðnámsleið og fjarnámsleið í kennsluskrá. Það þýðir að hægt er að ljúka henni annaðhvort í staðnámi eða fjarnámi. Námskeið innan námsleiðar Skilgreiningar á fjarnámi á námskeiðum innan námsleiðar Staðnám Námskeiðið er skipulagt þannig að námið fer fram á tilteknum tíma og stað (t.d. í kennslurými) og gert er ráð fyrir rauntímaþátttöku nemenda. Fjarnám Námskeiðið er skipulagt þannig að námið fer fram á netinu og gert er ráð fyrir rauntímaþátttöku nemenda á netfundum, í staðlotum og/eða vettvangsnámi. Nemendur fylgja skipulagi námskeiðs samkvæmt kennsluáætlun og skiladögum verkefna. Ef próf er í námskeiðinu, þá þurfa nemendur að þreyta það á þeim tíma sem tilgreindur er. Netnám Námskeiðið er skipulagt þannig að það fer fram á netinu og ekki er gert ráð fyrir rauntímaþátttöku, en nemendur fylgja skipulagi námskeiðs samkvæmt kennsluáætlun og skiladögum verkefna. Ef próf er í námskeiðinu, þá þurfa nemendur að þreyta það á þeim tíma sem tilgreindur er. Sjálfsnám Fyrirkomulag námskeiðsins byggist á samkomulagi milli nemanda og kennara og námið fer fram óháð tíma og stað (til dæmis lesnámskeið, einstaklingsverkefni). Athugið að hugsanlegt er að námskeið sé merkt sem bæði staðnám og fjarnám í kennsluskrá. Það þýðir að hægt er að ljúka því annaðhvort í staðnámi eða fjarnámi. Á sama hátt getur námskeið verið flokkað sem bæði fjarnám og netnám. Nokkur atriði sem gott er að hafa í huga í fjarnámi Fjarnám krefst mikillar samhæfingar verkefna og skipulags. Sé nám stundað með vinnu er skipulagning enn mikilvægari en ella. Mikilvægt er að námið sé stundað í sátt við fjölskyldu, vini og vinnuveitendur. Skipulag Nauðsynlegt er að nemendur setji sér markmið í upphafi náms og geri tímaáætlun. Nemendur ættu jafnframt að fara reglulega yfir það í huganum hvernig miði í náminu, hvað hafi verið vel gert og hvað megi bæta. Vinnan í fjarnáminu er töluvert á einstaklingsgrunni en þarf þó ekki að vera einmanaleg ef nemendur notfæra sér þá samskiptamöguleika sem fyrir hendi eru. Samskipti Nemendur þurfa oft og tíðum að taka þátt í hópa- og paravinnu sem er háð samskiptum við samnemendur á netinu. Slík samskipti eru tímafrekari en þau samskipti sem eiga sér stað í kennslustofu. Mikilvægt er að nemendur taki virkan þátt í því námssamfélagi sem þeir tilheyra sem fjarnemar. Gott netsamband er nauðsynlegt til að geta tekið þátt í umræðum, nálgast efni og komið því frá sér á auðveldan hátt. Ef nemendur lenda í tæknilegum vandræðum er starfsfólk Háskólans tilbúið til aðstoðar: Þjónustuborð Háskólatorgi Tölvuþjónusta UTS Tengt efni Umsókn um grunnnám Umsókn um framhaldsnám facebooklinkedintwitter