Brynjólfsgötu 1 107 Reykjavík Upplýsingar um byggingu Sýna á korti Opnunartímar bygginga Veröld – Hús Vigdísar, kjallari Veröld – Hús Vigdísar, 1. hæð Veröld – Hús Vigdísar, 2. hæð Veröld – Hús Vigdísar, 3. hæð Litamerkingar Kennslurými Skrifstofa Rannsóknastofa Um Veröld Nýjasta bygging Háskóla Íslands er Veröld – Hús Vigdísar. Húsið var formlega opnað sumardaginn fyrsta, 20. apríl 2017, að viðstöddu fjölmenni. Húsið er helgað kennslu, rannsóknum og viðburðum sem tengjast erlendum tungumálum og menningu. Byggingin fékk nafnið Veröld – hús Vigdísar að undangenginni nafnasamkeppni meðal almennings. Byggingin hýsir Vigdísarstofnun – alþjóðlega miðstöð tungumála og menningar, sem starfrækt er á grundvelli samkomulags milli íslenskra stjórnvalda og Menningarstofnun – alþjóðlega miðstöð tungumála og menningar, sem starfrækt er á grundvelli samkomulags milli íslenskra stjórnvalda og Menningar- og vísindastofnunar Sameinuðu þjóðanna, UNESCO. Þar er einnig aðstaða fyrir fyrirlestra- og ráðstefnuhald, vinnuaðstaða fyrir erlenda gestafræðimenn og fyrir kennslu og rannsóknir í erlendum tungumálum við Háskóla Íslands. Í húsinu er Vigdísarstofa, þar sem hægt er að fræðast um sögulegt kjör Vigdísar Finnbogadóttur í embætti forseta Íslands þann 29. júní 1980 og sérstakt rými ætlað fyrir sýningar um tungumál og menningu. Markmiðið með starfseminni í húsinu er því að auka þekkingu á erlendum tungumálum og menningu og mikilvægi þeirra og miðla henni sem víðast til leikra og lærðra. Áfangar í byggingu Veraldar 16. maí 2012: Arkitektastofan Arkitektúr.is varð hlutskörpust í hönnunarsamkeppni um byggingu fyrir alþjóðlega tungumálamiðstöð Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum. 27. júní 2013: Samningur undirritaður í París um að Vigdísarstofnun starfi undir formerkjum Menningar- og vísindastofnunar Sameinuðu þjóðanna, UNESCO. Að samningnum standa íslensk stjórnvöld og UNESCO. 8. mars 2015: Fyrsta skóflustungan að nýbyggingunni tekin á horni Suðurgötu og Brynjólfsgötu. Framkvæmdir næst gömlu Loftskeytastöðinni. Framkvæmdir hefjast nokkrum vikum síðar. 19. júní 2016: Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, og Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, leggja hornstein að húsinu. 20. apríl 2017: Húsið formlega opnað við hátíðlega athöfn. Tengt efni Vigdísarstofnun Tungumálamiðstöð HÍ facebooklinkedintwitter