Samfélagstúlkun - Aukagrein
Samfélagstúlkun
Aukagrein – 60 einingar
Með hraðvaxandi fjölgun innflytjenda frá ýmsum heimshornum hefur þörf fyrir túlka á fjölda erlendra mála aukist gríðarlega. Þetta stafar meðal annars af lagaskyldu til að útvega túlka við tilteknar aðstæður á sviðum dóms-, heilbrigðis-, skóla- og félagsmála.
Aukagrein er tekin samhliða 120 eininga aðalgrein í öðru fagi og þannig má ljúka 180 eininga BA gráðu.
Skipulag náms
- Haust
- Samfélagstúlkun IE
- Túlkunarfræði
- Talað mál og framsögnE
- ÞýðingarV
- Vor
- Fjölmiðlamál
- Samfélagstúlkun IIE
- Siðfræði túlkunarE
- Þýðingarýni og þýðingatækniV
Samfélagstúlkun I (TÁK006G)
Til umfjöllunar í þessu námskeiði eru grunnatriði samfélagstúlkunar. Fjallað er um hegðun og stöðu í túlkaaðstæðum og utan þeirra, kynnt er þagnarskylda túlka, fjallað um lausnaleit, vinnuvernd, textagreining o.fl.
Námið fer fram með upptökum á fyrirlestrum frá kennara, lestri greina og bóka, umræðum nemenda í tímum og á milli kennslustunda, einstaklings- og hópverkefnum og skipulögðu sjálfsnámi nemenda. Ætlast er til þess að nemendur mæti undirbúnir í tíma til að geta tekið virkan þátt í verklegum æfingum og umræðum. Mikilvægur hluti námsins er sjálfstætt heimanám, sem felst m.a. í skipulögðum, sjálfstæðum æfingum í að túlka og markvissri viðleitni til að bæta eigin færni í túlkun. Skyldumæting er í a.m.k. 80% kennslustunda.
Túlkunarfræði (TÁK501G)
Markmið: Að nemendur öðlist grunnþekkingu í túlkunarfræðum og kynnist kenningum um túlkun og hlutverk túlksins.
Viðfangsefni: Farið verður í kenningar um ferli túlkunar og kenningar um hlutverk túlksins. Fjallað verður um menningarleg og málleg vandamál sem upp koma við túlkunaraðstæður og hlutverk túlksins í því að brúa bil milli tveggja menningarheima. Farið verður í mismunandi svið túlkunar, rætt um hagsmunaárekstra og ólíkar aðstæður í túlkun.
Vinnulag: Kennsla er að hluta til í fyrirlestrarformi en nemendur taka virkan þátt í umræðum og vinna bæði hóp- og einstaklingsverkefni á misserinu.
Námsmat: Skriflegt próf og verkefni
Lesefni: Tilkynnt síðar
Talað mál og framsögn (TÁK503G)
Meginmarkmið námskeiðsins er að gera nemendur færa um að miðla íslensku á vönduðu máli.
Kynntar verða áherslur á flutningi talaðs mál við formlegar og óformlegar aðstæður og nemendur fá þjálfun í að flytja mál sitt skýrt og áheyrilega.
Lögð er áhersla á að nemendur þekki eigin rödd, veikleika og styrkleika, og gildi réttrar raddbeitingar. Þá er undirstrikað að raddvernd er grunnur að áheyrilegri miðlun. Nemendur fá þjálfun í beitingu málsins með innsýn í helstu reglur í íslensku talmáli og vinna munnleg verkefni þar sem reynir á skýra framsögn, raddbeitingu, ríkan orðaforða, vandað mál og að miðla af öryggi. Í öllum verkefnum eru þættir eins og raddbeiting, framburður, hrynjandi, málnotkun, orðaforði og stíll metnir.
Kennsla fer fram í formi fyrirlestra, verkefnatíma með leiðsögn og verklegrar þjálfunar.
Mætingarskylda er 80% og er forsenda próftökuréttar.
Þýðingar (ÍSE502G)
Námskeiðið er inngangur að þýðingum, þýðingasögu og þýðingafræði. Nemendur kynnast helstu hugtökum og kenningum á sviði þýðinga. Námskeiðið skiptist í tvo þætti: Hinn fræðilegi og sögulegi þáttur námskeiðsins fer fram í formi fyrirlestra og umræðna. Jafnframt leggur kennari fram lesefni sem nemendur kynna sér. Námsmat felst í prófum/ritgerðarverkefnum þar sem skyldulesefni er undirstaðan. Verklegi þátturinn fer fram í hópvinnustofum þar sem nemendur æfa sig í þýðingarýni og þýðingum (bókmenntaþýðingum eða nytjaþýðingum) undir handleiðslu kennara. Námsmat felst í skriflegu verkefni eða verkefnum. Nemendur í íslensku sem öðru máli þurfa að hafa lokið öllum námskeiðum á 1. og 2. ári.
Fjölmiðlamál (ÍSE601G)
Fjallað verður um mál í fjölmiðlum, einkum dagblöðum en einnig talmiðlum. Lesnar verða blaðagreinar af ýmsum toga (s.s. leiðarar, pistlar, minningargreinar og íþróttafréttir) og áhersla lögð á atriði sem oft vefjast fyrir annarsmálsnemum, s.s. orðatiltæki, augnablikssamsetningar, orðaleiki, kaldhæðni og vísanir íslenskan menningarheim. Mismunandi málsnið, munur talmáls og ritmáls, sjónvarpsþýðingar og fyrirsagnir verða einnig til umræðu. Þá verður fjallað ítarlega um íslenska málstefnu.
Samfélagstúlkun II (TÁK007G)
Í þessu námskeiði er byggt ofan á áfangann TÁK006G. Fjallað er um ýmsar gerðir túlkunar sem samfélagstúlkar þurfa að hafa vald á, s.s. lotutúlkun, lestúlkun, fjartúlkun, hvísltúlkun, ræðutúlkun og samtímistúlkun. Unnið er áfram með textagreiningu og farið ítarlega í glósutækni.
Námið fer fram með upptökum á fyrirlestrum frá kennara, lestri greina og bóka umræðum nemenda í tímum og á milli kennslustunda, einstaklings- og hópverkefnum, handleiðslutímum, vettvangsferðum og skipulögðu sjálfsnámi nemenda. Ætlast er til þess að nemendur mæti undirbúnir í tíma til að geta tekið þátt í verklegum æfingum og umræðum. Mikilvægur hluti námsins er sjálfstætt heimanám, sem felst í skipulögðum, sjálfstæðum æfingum í að túlka og glósa og markvissri viðleitni til að bæta eigin færni í túlkun. Skyldumæting er í a.m.k. 80% kennslustunda.
Siðfræði túlkunar (TÁK601G)
Markmið: Nemendur fái innsýn í klassískar siðakenningar og kynnist grundvallarhugtökum siðfræðinnar. Þeir þjálfist í að greina siðræn álitamál tengd túlkun og að taka rökstudda afstöðu til þeirra. Kennslan byggist á fyrirlestrum og umræðum. Í námskeiðinu er fyrst og fremst farið í klassískar kenningar siðfræðinnar og hugtök sem líta má á sem nauðsynlegan grunn til að takast á við þau álitamál sem sérstaklega snúa að starfsvettvangi túlka. Jafnframt er lögð áhersla á að tengja umfjöllunina við siðferðileg álitamál sem upp kunna að koma í túlkaaðstæðum. Mikið er lagt upp úr virkri umræðu nemenda í tímum og því mikilvægt að þeir kynni sér vel lesefni fyrir tímana.
Þýðingarýni og þýðingatækni (ÞÝÐ201G)
Markmið námskeiðsins er í fyrsta lagi að nemendur læra að rýna í þýðingar sem og greina texta á erlendu máli til að þýða yfir á móðurmálið. Nemendur velja bókmennta- eða nytjatexta í samráði við kennarann og vinna með þá texta.
Í öðru lagi kynnast nemendur þeim hjálpargögnum og tæknilausnum sem notuð eru í þýðingarferlinu. Þannig fá þeir að sama skapi innsýn í starf atvinnuþýðenda á ýmsum sviðum.
Kennsla fer að mestu leyti fram í formi hagnýtra æfinga, umræðna og verkefna undir handleiðslu kennara.
Einnig flytja nemendur erindi í tíma.
Þýðingarýni og textagreining er skyldunámskeið í Þýðingafræði sem aukagrein á BA stigi. Það er einnig opið öðrum nemendum en góð færni í erlendu tungumáli (samsvarandi 3. ári í grunnnámi) er nauðsynleg undirstaða.
Kennsla fer fram á íslensku. Nemendur þýða úr erlendu máli yfir á móðurmálið. Önnur verkefni eru unnin á íslensku.
Undirstaða í þýðingafræði (10 e) er æskileg en ekki nauðsynleg.
Hafðu samband
Skrifstofa Hugvísindasviðs
Aðalbygging, 3.hæð - Sæmundargötu 2
Sími: 525 4400
Netfang: hug@hi.is
Skrifstofan er opin virka daga frá kl 10:00–12:00 og 13:00–15:00.
Nemendur á Hugvísindasviði geta einnig nýtt sér Þjónustuborð á Háskólatorgi. Hægt er að nálgast upplýsingar í netspjalli hér á síðunni.
Fylgstu með Hugvísindasviði:
Hjálplegt efni
Ertu með fleiri spurningar? Hér finnurðu svör við ýmsum þeirra og upplýsingar um ýmislegt annað sem gott er að hafa í huga þegar þú velur nám.