Þverfræðilegt nám á
meistara- og doktorsstigi
Lýðheilsuvísindi
Faraldsfræði
Líftölfræði
Fjölbreytt og hagnýtt nám fyrir þá sem vilja helga sig rannsóknum eða ætla sér leiðtogahlutverk á sviðum forvarna og heilsueflingar.
Verið velkomin í fjölbreyttan nemendahóp!
- Þverfræðilegt námsfyrirkomulag
- Nemendur með fjölbreyttan fræðabakgrunn
- Kennarar úr hópi fremstu vísindamanna á sínu fræðasviði
- Möguleikar á skiptinámi
- Fjölbreyttir atvinnumöguleikar að námi loknu
Námið er skipulagt í samstarfi við öll fræðasvið HÍ. Kennarar koma frá MLV og fjölmörgum deildum HÍ, en auk þeirra sinna kennslu og leiðsögn fjöldi gestakennara frá innlendum og erlendum stofnunum í fararbroddi á sínum sviðum.
Rannsóknir
Skilningur á lýðgrunduðum rannsóknum er grundvöllur stefnumótunar í heilsueflingu, forvörnum og viðbrögðum stjórnvalda við sjúkdómum og öðrum áhrifaþáttum á heilsu samfélaga.
Við MLV eru stundaðar fjölbreyttar faraldsfræðilegar rannsóknir á heilsu og áhrifaþáttum hennar, í samstarfi við innlenda og erlenda fagaðila.
Hafðu samband
Miðstöð í lýðheilsuvísindum
Sturlugötu 8, 102 Reykjavík
Sími 525 4956
Netfang: publichealth@hi.is
Skrifstofan er opin mánu- til fimmtudaga 10-16 og föstudaga 10-12. Vinsamlega hafið samband til að bóka viðtalstíma.