Reglur um doktorsnám við Menntavísindasvið Háskóla Íslands, nr. 440/2018
með síðari breytingum
1. gr. Markmið doktorsnáms og prófgráður við Menntavísindasvið Háskóla Íslands.
Megintilgangur doktorsnáms við Menntavísindasvið Háskóla Íslands er að efla rannsóknir og þekkingu á þeim fræðasviðum sem lögð er stund á við sviðið. Markmið doktorsnámsins er að efla hæfni doktorsnema til að stunda sjálfstæðar rannsóknir og fræðastörf og til að gegna sérfræðistörfum í menntavísindum á innlendum og erlendum vettvangi.
[Doktorspróf við menntavísindasvið, að undangengnu doktorsnámi samkvæmt reglum þessum, veitir lærdómstitilinn Philosophiae Doctor (Ph.D.).
Doktorsnemum og leiðbeinendum þeirra ber að kynna sér og fylgja reglum um doktorsnám við Háskóla Íslands og gildandi samþykktum háskólaráðs um viðmið og kröfur um gæði doktorsnáms við Háskóla Íslands]1
Miðstöð framhaldsnáms við Háskóla Íslands hefur umsjón með og fylgir eftir settum viðmiðum og kröfum um gæði framhaldsnáms við Háskóla Íslands, sbr. 66. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009. Standa ber skil á upplýsingum og gögnum sem Miðstöðin kallar eftir.
1Breytt með 1. gr. rgl. nr. 587/2024.
2. gr. Stjórnun doktorsnáms.
Doktorsnám á Menntavísindasviði er skipulagt þvert á deildir sviðsins. Stjórn sviðsins tekur ákvarðanir um málefni doktorsnámsins fyrir hönd deilda. Doktorsnámsnefnd Menntavísindasviðs fer með málefni doktorsnáms fyrir hönd stjórnar sviðsins í samræmi við 1. tölulið 69. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009 um fastanefndir. Í doktorsnámsnefnd sitja eftirfarandi sjö fulltrúar: formaður, sem er skipaður af stjórn sviðsins og er jafnframt fulltrúi sviðsforseta, fulltrúar allra fjögurra deilda, einn fulltrúi stjórnsýslu, sem jafnframt er verkefnisstjóri námsins, og einn fulltrúi doktorsnema. Doktorsnámsnefnd er skipuð til tveggja ára í senn. [Formaður doktorsnámsnefndar, eða staðgengill hans, er fulltrúi Menntavísindasviðs í stjórn Miðstöðvar framhaldsnáms.]1
Hlutverk doktorsnámsnefndar er að marka stefnu um tilhögun doktorsnáms og ábyrgjast framkvæmd þess. Nefndin kynnir það nám sem í boði er, fjallar um umsóknir og fylgist með framvindu og gæðum náms og kennslu, m.a. með mati á stöðu rannsóknarverkefna á námstímanum. Nefndin undirbýr mál til afgreiðslu stjórnar Menntavísindasviðs, svo sem tillögur um inntöku doktorsnema og um skipan leiðbeinenda, doktorsnefnda, prófdómara og andmælenda.
1Breytt með 2. gr. rgl. nr. 587/2024.
3. gr. Inntaka í doktorsnám.
Doktorsnám við Menntavísindasvið er auglýst á vef Háskóla Íslands. Stjórn Menntavísindasviðs ákveður, að fenginni tillögu frá doktorsnámsnefnd, hvaða umsækjendum er gefinn kostur á námi hverju sinni.
4. gr. Inntökuskilyrði og mat á fyrra námi.
Einstaklingur, sem hefur lokið meistaraprófi eða sambærilegu prófi frá viðurkenndum háskóla, getur sótt um inntöku í doktorsnám. Umsækjandi skal að jafnaði hafa lokið 30 eininga meistararitgerð. Við inntöku skal taka mið af námsárangri og starfsreynslu umsækjanda.
Ef umsækjandi hyggst hefja doktorsnám strax að loknu meistaraprófi getur hann sótt um það áður en hann lýkur prófi ef fyrir liggur staðfesting um að hann ljúki náminu með fullnægjandi árangri áður en doktorsnám hefst.
Námskeið í grunnnámi (bakkalárnámi eða samsvarandi námi) geta ekki verið hluti af námi doktorsnema en heimilt er að meta námskeið á meistarastigi sem hluta af doktorsnámi, þó að hámarki 20 einingar, enda hafi þau ekki áður verið metin sem hluti af meistaranámi. Ekki er heimilt að nota meistararitgerð aftur sem uppistöðu í doktorsritgerð.
[Í samræmi við 4. tölulið 69. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009 er ekki heimilt að taka akademískan starfsmann í deild, sbr. 1. málsl. 1. mgr. 28. gr. sömu reglna, inn í doktorsnám við viðkomandi deild.]1 Í ljósi þess að doktorsnám við Menntavísindasvið er starfrækt þvert á deildir sviðsins er að öðru jöfnu ekki heimilt að taka akademískan starfsmann á Menntavísindasviði inn í doktorsnám við sviðið.
1Breytt með 3. gr. rgl. nr. 587/2024.
5. gr. Meðferð umsókna.
Umsókn um doktorsnám skal skilað til kennsluskrifstofu Menntavísindasviðs. Ferli umsóknar er sem hér segir:
- Umsókn um doktorsnám skal skilað [í samræmi við,]1 leiðbeiningar sem birtar eru á vef Menntavísindasviðs. Með umsókn skal fylgja afrit af prófskírteinum, drög að námsáætlun, greinargerð um faglegar forsendur umsækjanda til að leggja stund á námið og drög að rannsóknaráætlun. [Ef umsækjandi hefur tiltekinn leiðbeinanda í huga eða hefur haft samband við mögulegan leiðbeinanda skal það tekið fram í umsókn.]1
- [Með umsókn um doktorsnám skulu fylgja umsagnir tveggja óháðra meðmælenda sem hafa forsendur til að meta hæfni umsækjanda til að stunda doktorsnám og hafa reynslu af eða þekkingu á rannsóknum á sviðinu.]1
- [Aðili á vegum stjórnsýslu sviðsins fer yfir umsóknir og athugar hvort tilskilin gögn fylgja.]1
- Doktorsnámsnefnd fjallar um og leggur mat á umsóknir og niðurstöður viðtala [sem fara fram við þá umsækjendur sem standast kröfur.]1 Nefndin leitar til sérfræðinga á sviðinu þar sem við á. Doktorsnámsnefnd undirbýr tillögu um inntöku til stjórnar Menntavísindasviðs og skal hún samrýmast eftirfarandi forsendum:
- Umsækjandi er talinn hæfur til að takast á við nám á doktorsstigi og sinna krefjandi rannsóknarstörfum.
- Tiltækir eru sérfræðingar á því fræðasviði, sem rannsóknin tekur til, sem geta tekið að sér leiðsögn umsækjanda og mat á rannsóknarverkefni.
- Fjárhagslegur grundvöllur er til að sinna doktorsnema og viðunandi námsaðstæður eru fyrir hendi.
- [Með tillögu doktorsnámsnefndar skal fylgja rökstuðningur um alla meginliði umsóknar og rökstudd ábending um leiðbeinendur.]1 Tillagan er tekin til umfjöllunar í stjórn Menntavísindasviðs.
- [Eftir að stjórn menntavísindasviðs hefur afgreitt umsóknina er umsækjanda svarað skriflega fyrir hönd forseta fræðasviðs. Svara skal umsækjanda skriflega innan þess frests sem reglur fyrir Háskóla íslands nr. 569/2009 kveða á um.]1
1Breytt með 4. gr. rgl. nr. 587/2024.
6. gr. Einingafjöldi og tímalengd náms.
[Doktorsnám við Menntavísindasvið Háskóla Íslands er að lágmarki 210 ECTS einingar. Heimilt er að heildareiningafjöldi sé allt að 240 einingar. Námskeið eru að lágmarki 30 einingar. Doktorsritgerð skal vera 180 einingar.]1
Öllum námskröfum skal að jafnaði hafa verið mætt innan fjögurra ára, sé doktorsneminn í fullu námi, en innan átta ára sé hann í hlutanámi. Miðað er við þann dag er neminn skráði sig fyrst til doktorsnáms. Gert er ráð fyrir að doktorsnemi geti lokið 60 einingum á ári.
[Ef doktorsnema tekst ekki að ljúka náminu á tilsettum tíma skal doktorsnámsnefnd óska eftir skýringum frá doktorsnema og umsjónarkennara og eftir atvikum veita aukinn frest eða mæla með að nemandi verði skráður í skilgreinda M.Phil.-námsleið, sbr. 19. mgr. 69. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands, nr. 569/2009. Setja má þau skilyrði að nemi ljúki námi miðað við reglur sem þá eru í gildi þótt hann hafi hafið námið meðan aðrar reglur giltu.]1
Leyfilegt er að taka námshlé að hámarki eitt ár. Doktorsnemi skal vera skráður og greiða [skrásetningargjöld]1 allan námstímann, þar með talið í námshléinu.
1Breytt með 5. gr. rgl. nr. 587/2024.
7. gr. Leiðsögn og skipan doktorsnefndar.
Sérhver doktorsnemi skal frá upphafi náms hafa umsjónarkennara sem hann ráðfærir sig við um skipulag námsins, val námskeiða og annað sem náminu tengist. Umsjónarkennari er að öðru jöfnu jafnframt aðalleiðbeinandi doktorsnema og veitir doktorsnefnd forstöðu. Umsjónarkennari skal koma úr hópi fastráðinna akademískra starfsmanna fræðasviðsins en leiðbeinendur og aðra sérfræðinga í doktorsnefnd má sækja út fyrir fræðasviðið. Tillaga um skipan leiðbeinenda skal fara fyrir doktorsnámsnefnd. [...]1 Leiðbeinendur hvers nema eru að öðru jöfnu tveir, og semja sín á milli um verkaskiptingu og starfshlutfall.
[Við inntöku er nemanda skipaður að minnsta kosti einn leiðbeinandi. Rofni samband nemanda og leiðbeinanda á námstíma mun doktorsnámsnefnd Menntavísindasviðs leitast við að útvega nýjan leiðbeinanda.]1
Doktorsnefnd skal skipuð leiðbeinendum og að auki einum til þremur sérfræðingum á fræðasviði ritgerðarinnar. Skal a.m.k. einn nefndarmaður starfa annars staðar en á Menntavísindasviði. Skipti doktorsnemi um rannsóknarefni endurskoðar doktorsnámsnefnd skipan doktorsnefndar.
Hlutverk doktorsnefndar er að fylgjast með að framgangur námsins samrýmist námsáætlun og að rannsóknarvinnan standist þær kröfur sem gerðar eru á viðkomandi fræðasviði. Umsjónarkennari veitir doktorsnefnd forstöðu. Doktorsnemi ráðfærir sig við nefndina um gerð námsáætlunar, skipulag námsins, val námskeiða, gerð rannsóknaráætlunar, framkvæmd rannsóknar og gerð lokaritgerðar.
Að öðru jöfnu er gert ráð fyrir því að doktorsnefnd sé fullskipuð innan tveggja ára frá inntöku sé nemi í fullu námi. Þó skal nefndin ekki fullskipuð fyrr en að afloknu áfangamati á rannsóknarverkefni nemans, sbr. 10. gr. Leiðbeinendur [...]1 skulu að jafnaði hafa doktorspróf og hæfnisdóm til akademískra starfa og hafa hlotið viðurkenningu Miðstöðvar framhaldsnáms við Háskóla Íslands. Þess skal gætt að leiðbeinendur hafi sýnt fram á virkni í rannsóknum og hafi m.a. birt ritsmíðar á vettvangi sem gerir strangar fræðilegar kröfur. Þeir skulu að jafnaði hafa reynslu af leiðsögn, af því að sækja um rannsóknarstyrki og af alþjóðlegu samstarfi. Verkefni nemandans skal vera á sérsviði leiðbeinanda.
Doktorsnemi og leiðbeinendur koma sér saman um réttindi og skyldur sín í milli og hvernig samstarf þeirra verður.
[Komi upp ágreiningur á milli leiðbeinenda eða leiðbeinenda og doktorsnema má skjóta honum til doktorsnámsnefndar sem eftir atvikum gerir tillögu um úrlausn eða vísar málinu til annarra aðila. Sjá nánar um leiðsögn og skipan doktorsnefndar í Handbók um doktorsnám við Menntavísindasvið.]1
1Breytt með 6. gr. rgl. nr. 587/2024.
8. gr. Námsframvinda.
Gert er ráð fyrir að endurskoðuð náms- og rannsóknaráætlun liggi fyrir innan eins árs frá upphafi náms, sbr. 9. gr. Nemi og leiðbeinendur vinna sameiginlega að námsáætluninni. Í námsáætlun skulu koma fram fyrirhuguð námskeið og vægi þeirra í náminu.
Doktorsnemar skulu taka þátt í málstofum á vegum doktorsnámsins og kynna rannsóknir sínar á þeim vettvangi svo og á innlendum og erlendum ráðstefnum. Þeir skulu dvelja um nokkurt skeið við erlendan háskóla eða eiga annars konar sambærilegt formlegt samstarf við erlenda vísindamenn. Leiðbeinendur fylgjast með og stuðla að því að doktorsnemi taki virkan þátt í fræðasamfélagi sviðsins og í alþjóðlegri fræðastarfsemi.
[Í Doktorsnámunni, umsýslukerfi doktorsnáms, er haldin námsferilsskrá fyrir hvern doktorsnema þar sem fram kemur hvenær neminn var fyrst skráður og hvaða einingum er lokið.]1 [...]1 Jafnframt skal skráin geyma [...]1 áætlanir um námið og rannsóknarverkefni, upplýsingar um leiðbeinendur og sérfræðinga, sem koma að náminu, framvinduskýrslur og niðurstöður námsmats.
1Breytt með 7. gr. rgl. nr. 587/2024.
9. gr. Skyldur doktorsnema.
Doktorsnema er skylt að skila eftirfarandi skýrslum og svara könnunum, er tengjast náminu, þegar eftir því er óskað:
- [Tvisvar á ári skal doktorsnemi skila framvinduskýrslu og fylgja um það fyrirmælum í handbók um doktorsnám við menntavísindasvið Háskóla Íslands. Leiðbeinendur skulu samþykkja skýrsluna.]1 [...]1 Ef framvinda er ófullnægjandi getur doktorsnámsnefnd sett nema skilyrði um áframhaldandi nám. Skili doktorsnemi ekki framvinduskýrslu getur doktorsnámsnefnd gert kröfu um að doktorsnemi segi sig frá námi.
- Innan eins árs frá upphafi námsins skal nemi skila endurskoðaðri námsáætlun og rannsóknaráætlun til leiðbeinenda sinna.
- [Gert er ráð fyrir að doktorsnemi sæki málstofur doktorsnámsins reglulega og fjalli um verkefni sitt eins og nánar er kveðið á um í handbók um doktorsnám við menntavísindasvið Háskóla Íslands.]1
- Um miðbik námsins skal neminn skila skýrslu til doktorsnámsnefndar um rannsóknarverkefnið til áfangamats, sbr. 10. gr.
- Doktorsnemi skal dvelja um nokkurt skeið við erlendan háskóla eða eiga annars konar sambærilegt formlegt samstarf við erlenda vísindamenn. Leiðbeinendur samþykkja skýrslu nema um námsdvölina og/eða samstarfið og [er hún hluti af framvinduskýrslu.]1
Doktorsnema ber skylda til að kynna sér vel þær reglur og siði, sem akademískt starf lýtur, og temja sér viðurkennd fræðileg vinnubrögð í rannsóknum og meðferð heimilda. Í þessu felst m.a. að starfsfólk og nemendur sýni hvert öðru virðingu í framkomu, ræðu og riti, eigi málefnaleg skoðanaskipti og vinni saman af heilindum. [Um skyldur doktorsnema er að öðru leyti vísað í 51. gr. reglna nr. 569/2009 fyrir Háskóla Íslands, siðareglur Háskóla Íslands og viðmið og kröfur um gæði doktorsnáms.]1
1Breytt með 8. gr. rgl. nr. 587/2024.
10. gr. Áfangamat á rannsóknarverkefni.
Formlegt áfangamat á rannsóknarverkefni fer fram um miðbik námsins. [Doktorsverkefnið sjálft er 180 ECTS-einingar og skrá doktorsnemar sig í verkefnið á hverju misseri og fá fyrir það einingar sem safnast upp. Doktorsnemar geta ekki tekið meira en 90 ECTS-einingar áður en gengist er undir áfangamat.]1 Í skýrslu um rannsóknarverkefnið, sem [doktorsnemi]1 leggur fram til mats, skulu koma fram fræðilegar forsendur rannsóknarinnar, yfirlit yfir fyrri rannsóknir á sviðinu, lýsing á öflun og úrvinnslu gagna og tímaáætlun um rannsóknina. Að auki leggur nemi fram þá kafla eða tímaritsgreinar sem hann hefur lokið við.
[Umsjónarkennari sendir verkefnastjóra doktorsnáms beiðni um áfangamat á rannsóknarverkefni með tveggja mánaða fyrirvara. Beiðninni fylgir bréf til doktorsnámsnefndar með rökstuðningi leiðbeinenda fyrir því að nemi sé tilbúinn til að gangast undir áfangamat.]1
[...]1
Áfangamat á rannsóknarverkefni er unnið af matsnefnd sem í sitja leiðbeinendur og tveir prófdómarar sem eru að jafnaði utan Menntavísindasviðs og eru sérfræðingar á viðkomandi rannsóknarsviði. Gert er ráð fyrir að prófdómarar standist þær kröfur sem gerðar eru til leiðbeinenda, sbr. 7. gr. Mat er lagt á verkefni og frammistöðu doktorsnemans og skýrslu skilað til doktorsnámsnefndar. Þar er gerð grein fyrir því hvort þekking doktorsnema og hæfni til rannsókna sé talin viðunandi og hvað hann skuli gera til að bregðast við athugasemdum matsnefndar, sbr. verklagsreglur um áfangamat á rannsóknarverkefni sem birtar eru [í Handbók um doktorsnám við Menntavísindasvið Háskóla Íslands.]1
1Breytt með 9. gr. rgl. nr. 587/2024.
11. gr. Kröfur til doktorsritgerða.
Doktorsritgerð skal vera heildstætt verk, ýmist í formi einnar ritsmíðar eða í formi vísindagreina sem mynda eina heild. [...]1
Leggi doktorsnemi fram ritsmíð, sem byggir á vísindagreinum, skal semja sérstaka yfirlitsgrein þar sem gerð er grein fyrir fræðilegum forsendum verksins, kenningum, aðferðafræði og siðfræðilegum álitamálum, dregið saman efni hinna einstöku greina, settar skulu fram heildarályktanir og efni þeirra tengt fræðilega. [Þegar doktorsritgerð er samsett úr greinum skulu þær vera þrjár eða fleiri. Þegar ritgerð er lögð fram til varnar skulu að lágmarki tvær greinar vera samþykktar til birtingar á alþjóðlegum, viðurkenndum og ritrýndum vettvangi og a.m.k. ein í viðbót hafa verið send í ritrýni. Skal doktorsnemi vera aðalhöfundur a.m.k. þriggja greinanna.]1 [...]1
Í samræmi við málstefnu Háskóla Íslands [...]1 er megintungumál doktorsritgerða enska. Ritgerð getur þó verið á íslensku. Í því tilviki skal gengið úr skugga um hvort íslenskumælandi sérfræðingar með nægilega sérþekkingu séu tiltækir þannig að örugglega verði unnt að skipa doktorsnefnd og fá hæfa andmælendur. Doktorsritgerð má þó vera á öðrum tungumálum en ensku eða íslensku ef doktorsnámsnefnd samþykkir.
[Öllum doktorsritgerðum sem skrifaðar eru á íslensku skal fylgja ítarleg samantekt á ensku. Ef skrifa á doktorsritgerð á íslensku skal fá samþykki doktorsnámsnefndar fyrir því, enda skal gengið úr skugga um að hægt verði að skipa doktorsnefnd, prófdómara við áfangamat og andmælendur við vörn.]1
1Breytt með 10. gr. rgl. nr. 587/2024.
12. gr. Skil og frágangur doktorsritgerðar.
Þegar doktorsnefnd telur að ritgerð sé tilbúin til varnar skal [umsjónarkennari]1 senda hana í lokahandriti til doktorsnámsnefndar með rökstuddu áliti doktorsnefndar, sbr. 7. gr. Að fengnu samþykki doktorsnámsnefndar sendir [verkefnastjóri doktorsnáms]1 ritgerðina til andmælenda.
Yfirliti um námsferil skal skilað um leið og doktorsritgerð er lögð fram til varnar. [Verkefnastjóri doktorsnáms við menntavísindasvið fer yfir námsferil nema fyrir vörn í samráði við nemendaskrá Háskóla Íslands.]1
[Þegar andmælendur hafa fallist á að ritgerð sé tæk til varnar og í kjölfarið ákveðið að doktorsvörn skuli fara fram skal doktorsefni skila rafrænu eintaki af endanlegri gerð hennar, a.m.k. fjórum vikum fyrir vörn. Um frágang vísast til leiðbeininga í handbók um doktorsnám við menntavísindasvið. Ritgerð skal vistuð á stafrænu formi í samræmi við verklagsreglur um rafræn skil og vistun doktorsritgerða. Kjósi höfundur að hafa ritgerðina í læstum aðgangi skal hann skila einu prentuðu eintaki til Háskólabókasafns og einu eintaki til verkefnastjóra doktorsnáms við menntavísindasvið. Við frágang doktorsritgerðar skal koma skýrt fram í inngangskafla að verkefnið sé unnið við Háskóla Íslands, tilgreina skal leiðbeinendur, fræðasvið og rannsóknastofnun, ef við á, og geta skal þeirra sjóða Háskóla Íslands og annarra aðila, sem styrkt hafa verkefnið, og þeirra stofnana eða fyrirtækja utan háskólans sem doktorsnemi hefur tengst við vinnslu þess. Forsíða ritgerðar skal bera merki (lógó) Háskóla Íslands. Ef um sameiginlega doktorsgráðu er að ræða með öðrum háskóla eða háskólum samkvæmt samningi þar um ber forsíða ritgerðar auðkenni beggja eða allra háskóla sem hlut eiga að máli.]1
1Breytt með 11. gr. rgl. nr. 587/2024.
13. gr. Andmælendur.
Andmælendur við doktorsvörn skulu vera tveir óháðir aðilar sem eiga ekki sæti í doktorsnefnd. Þeir eru skipaðir af stjórn Menntavísindasviðs, að fengnum tillögum doktorsnefndar, og með samþykki doktorsnámsnefndar og Miðstöðvar framhaldsnáms. [...]1
[Andmælendur skulu ekki starfa við Menntavísindasvið og að minnsta kosti annar þeirra skal vera utan Háskóla Íslands. Þess skal gætt að þeir séu viðurkenndir fræðimenn og hafi birt ritsmíðar á vettvangi sem gerir strangar fræðilegar kröfur og uppfylli skilyrði sem eru sett í Viðmiðum og kröfum um gæði doktorsnáms við Háskóla Íslands.]1 [...]1
Andmælendur fá ritgerðina í hendur a.m.k. fjórum mánuðum áður en fyrirhuguð vörn fer fram. Sex vikum síðar skulu þeir hafa sent rökstudda umsögn um hvort þeir telji að ritgerðin sé tæk til varnar ásamt ábendingum um nauðsynlegar breytingar séu þær einhverjar. Doktorsnemi tekur afstöðu til þeirra, ásamt leiðbeinendum, og gerir grein fyrir afstöðu sinni í skýrslu til andmælenda innan eins mánaðar. Forsendur þess að doktorsvörn sé haldin er að doktorsnemi hafi gert viðunandi lagfæringar að mati andmælenda og leiðbeinenda.
[Ef andmælandi hafnar handriti doktorsritgerðar til doktorsvarnar gildir verklagsregla um viðbrögð eftir að andmælandi, annar eða báðir, hafnar handriti doktorsritgerðar til doktorsvarnar sem var samþykkt í háskólaráði 9. desember 2021.]1
1Breytt með 12. gr. rgl. nr. 587/2024.
14. gr. Doktorsvörn.
Doktorsnemi skal verja ritgerð sína við Háskóla Íslands í heyranda hljóði. Ritgerð skal dæmd og varin samkvæmt reglum skólans um doktorspróf. Ekki eru gefnar einkunnir fyrir doktorsritgerð. [Framkvæmd doktorsvarna er nánar lýst í Handbók um doktorsnám við Menntavísindasvið. Verði ágreiningur meðal dómnefndarfulltrúa við doktorsvörn um hvort veita skuli doktorsnafnbót gildir verklagsregla um viðbrögð eftir að dómnefndarmaður, einn eða fleiri, hafnar veitingu doktorsnafnbótar eftir doktorsvörn, sem var samþykkt í háskólaráði 4. nóvember 2021.]1
2Breytt með 13. gr. rgl. nr. 587/2024.
15. gr. Gildistaka.
[Reglur þessar eru settar í samræmi við 47. og 68.–69. gr. reglna nr. 569/2009 fyrir Háskóla Íslands og með heimild í lögum nr. 85/2008 um opinbera háskóla. Reglurnar hafa verið samþykktar af stjórn Menntavísindasviðs og deildum fræðasviðsins og staðfestar af háskólaráði, að fenginni umsögn Miðstöðvar framhaldsnáms, sbr. 66. og 69. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009. Reglurnar öðlast þegar gildi. Þær gilda um doktorsnema sem skráðir eru til náms eftir gildistöku reglnanna og einnig, eftir því sem við á, um nemendur sem stunda nám til Ph.D.-gráðu við gildistöku þeirra. Nemendur sem stunda nám til Ed.D.-gráðu skulu hafa val um hvort þeir ljúka því samkvæmt ákvæðum eldri reglna eða ljúka námi samkvæmt reglum þessum.]1
1Breytt með 14. gr. rgl. nr. 587/2024.
Háskóla Íslands, 17. apríl 2018