Íþróttahús Háskóla Íslands við Sæmundargötu er opið öllum nemendum og starfsfólki gegn mjög vægu gjaldi.
Í boði eru skipulagðir tímar í sal samkvæmt stundatöflu og aðstaða í tækjasal. Nemenda- eða starfsmannahópar geta einnig leigt íþróttasalinn fyrir boltaíþróttir eða annað. Sauna er í kjallara íþróttahússins.
Dagskrá í sal á haustmisseri 2024
Afgreiðslutími:
- Mánudaga - fimmtudaga: 7:00 - 22:00
- Föstudaga: 7:00 - 20:00
- Laugardaga: 8:00 - 18:00
Íþróttahúsið er alla jafna lokað á hátíðisdögum, yfir jól og áramót og 6 vikur á miðju sumri.
Verð:
- Árskort: 12.000 kr
- Kortin eru seld á þjónustuborðinu í Háskólatorgi.
- Aðgangskort gilda í alla auglýsta opna tíma í íþróttasal, tækjasal og gufubað.
- Leiga á íþróttasal: Lokaðir hópar, 45 mín. stund: 3.000 / 4.000 kr. Leigjandi greiðir að lágmarki fyrir 10 tíma fyrirfram.
Til að leigja íþróttasal, hafið samband við ithrottahus@hi.is.
HáFit - fagleg fjarþjálfun www.hafit.is.
Starfsfólk
Starfsmenn íþróttahúss: Ari Hauksson og Pálmi Phuoc Du, GSM: 8321309.
Göngu- og hlaupaleiðir
Góðar göngu- og hlaupaleiðir eru nærri Háskóla Íslands, bæði á háskólasvæðinu á Melunum og í Stakkahlíð. Á myndunum hér fyrir neðan má finna kort með góðum göngu- og hlaupaleiðum. Þar er einnig að finna kort sem sýnir hversu lengi er verið að hjóla á háskólasvæðið frá ólíkum borgarhlutum en Háskólinn hvetur starfsmenn og stúdenta til þess að hjóla til og frá vinnu.