HÍ stendur daglega fyrir fjölda viðburða sem eru öllum opnir, s.s. málþingum, fyrirlestrum og ráðstefnum. Viðburði hvers dags er að finna á forsíðunni en hægt er að skoða bæði fram og aftur í tímann með því að fara á yfirlitssíðu. Skráðir notendur skrá sjálfir viðburðinn í viðburðadagatalið. Allt starfsfólk HÍ getur skráð viðburð á vefinn í Uglu (í kassanum „Á döfinni“).
Aðilar utan HÍ geta óskað eftir skráningu viðburðar með því að senda upplýsingar um viðburðinn á vefstjori@hi.is og merkt póstinn „Skráning viðburðar“. Starfsfólk Markaðs- og samskiptasviðs fer þá yfir viðburðinn og samþykkir ef hann uppfyllir reglur um skráningu sem eru að finna hér neðar á síðunni. Eftir að Markaðs- og samskiptasvið hefur farið yfir skráðan viðburð birtist hann í viðburðadagatalinu sem finna má á forsíðu vefs Háskóla Íslands.
Almennt skilyrði fyrir því að viðburður birtist á forsíðu vefs Háskóla Íslands
Viðburðurinn þarf að tengjast Háskóla Íslands, svo sem:
- Opinber viðburður í nafni Háskóla Íslands.
- Viðburður sem er skipulagður af starfsfólki Háskóla Íslands.
- Viðburður þar sem starfsfólk Háskóla Íslands hefur aðkomu, s.s. flytur fyrirlestur, sinnir fundarstjórn, tekur þátt í pallborði o.s.frv..
- Viðburður sé opinn öllum nemendum jafnt sem starfsfólki, kennurum og almenningi.
- Fyrirlesari er erlendur en heldur fyrirlestur á vegum deilda/stofnana HÍ.
- Eftir atvikum ef viðburður er haldinn í byggingum Háskólans.
- Ofangreind viðmið eru almenn og tekur vefstjóri afstöðu til einstakra birtinga.
Opinbert tungumál vefsins er íslenska.
Mikilvægt er að í skráningu sé gert grein fyrir:
- Heiti viðburðar
- Tímasetningu
- Staðsetningu á háskólasvæði.
- Lýsingu á viðburði í almennu en hnitmiðuðu máli.
- Upplýsingum um tengilið viðburðar, s.s. einstakling, vefsíðu eða stofnun.
- Meginreglan er að viðburðir á hi.is séu á íslensku en leyfilegt er að hafa lýsingu viðburðar á ensku að gefnum tveimur skilyrðum:
- Titill viðburðar sé á íslensku.
- Boðið sé upp á stuttan útdrátt á íslensku (að lágmarki ein setning) efst í meginmáli viðburðar.
- Á english.hi.is á allur texti viðburðar vera á ensku.
Tilkynning um viðburð skilar bestum árangri ef hún er sett á háskólavefinn a.m.k. þremur dögum áður en hann fer fram.
Allar nánari upplýsingar gefur vefdeild; vefstjori@hi.is.