Reglur um inntökuskilyrði í grunnnám við Háskóla Íslands, nr. 319/2009
með síðari breytingum
ATH. ÞESSAR REGLUR ERU ÚR GILDI FALLNAR FYRIR UTAN 8. GR. (STJÓRNMÁLAFRÆÐIDEILD) OG 13. GR. (SÁLFRÆÐIDEILD). NÝJAR REGLUR UM INNTÖKUSKILYRÐI Í GRUNNNÁM VIÐ HÁSKÓLA ÍSLANDS TÓKU GILDI Í MARS 2022, SJÁ HÉR.
EFNISYFIRLIT
- I. KAFLI
- 1. gr. Almennt
- 2. gr. Upplýsingar um inntökuskilyrði
- II. KAFLI Inntökuskilyrði deilda á Félagsvísindasviði
- 3. gr. Félagsfræði-, mannfræði- og þjóðfræðideild
- 4. gr. Félagsráðgjafardeild
- 5. gr. Hagfræðideild
- 6. gr. Lagadeild
- 7. gr. Stjórnmálafræðideild
- 8. gr. Viðskiptafræðideild
- III. KAFLI Inntökuskilyrði deilda á Heilbrigðisvísindasviði.
- 9. gr. Hjúkrunarfræðideild
- 10. gr. Lyfjafræðideild
- 11. gr. Læknadeild
- 12. gr. Matvæla- og næringarfræðideild
- 13. gr. Sálfræðideild
- 14. gr. Tannlæknadeild
- IV. KAFLI Inntökuskilyrði deilda á Hugvísindasviði.
- 15. gr. Mála- og menningardeild
- 16. gr. Guðfræði- og trúarbragðafræðideild
- 17. gr. Íslensku- og menningardeild
- 18. gr. Sagnfræði- og heimspekideild
- V. KAFLI Inntökuskilyrði deilda á Menntavísindasviði
- 19. gr. Deild faggreinakennslu
- 20. gr. Deild heilsueflingar, íþrótta- og tómstunda
- 21. gr. Deild kennslu- og menntunarfræði
- 21. gr. a. Deild menntunar og margbreytileika
- VI. KAFLI Inntökuskilyrði deilda á Verkfræði- og náttúruvísindasviði
- 22. gr. Almenn ákvæði
- 23. gr. Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild
- 24. gr. Jarðvísindadeild
- 25. gr. Líf- og umhverfisvísindadeild
- 26. gr. Rafmagns- og tölvuverkfræðideild
- 27. gr. Raunvísindadeild
- 28. gr. Umhverfis- og byggingarverkfræðideild
- VII. KAFLI Setning reglna og gildistaka
- 29. gr. Gildistaka
I. KAFLI
ATH. ÞESSAR REGLUR ERU ÚR GILDI FALLNAR FYRIR UTAN 7. GR. (STJÓRNMÁLAFRÆÐIDEILD) OG 13. GR. (SÁLFRÆÐIDEILD). NÝJAR REGLUR UM INNTÖKUSKILYRÐI Í GRUNNNÁM VIÐ HÁSKÓLA ÍSLANDS TÓKU GILDI Í MARS 2022, SJÁ HÉR.
1. gr. Almennt.
Stúdentar sem hefja grunnnám til fyrstu háskólagráðu í Háskóla Íslands skulu hafa lokið stúdentsprófi, eða öðru sambærilegu prófi frá erlendum skóla. Deildir geta bundið aðgang að námsleiðum frekari skilyrðum, svo sem nánar greinir í 3. – 23. gr. reglna þessara.
Þeir sem lokið hafa eins árs námi (60 e) frá viðurkenndum háskóla eða skóla á háskólastigi geta talist uppfylla almenn inntökuskilyrði í grunnnám skv. 1. mgr., enda þótt þeir hafi ekki lokið stúdentsprófi eða sambærilegu prófi frá erlendum skóla. Um inntöku þeirra fer nánar eftir 3.–23. gr. þessara reglna.
Um undanþágur frá skilyrðinu um stúdentspróf fer samkvæmt ákvæðum sameiginlegra reglna Háskólans og nánari ákvörðunum háskólaráðs.
Um inntökuskilyrði í nám á meistara- og doktorsstigi gilda sérreglur deilda, sem háskólaráð hefur sett og birtar eru í kennsluskrá og á vefsetrum deilda.
2. gr. Upplýsingar um inntökuskilyrði.
Upplýsingum um inntökuskilyrði deildar skal komið á framfæri í kennsluskrá, á vefsetri háskólans og í kynningarefni til nýrra stúdenta. Skal skýrt tekið fram að inntökuskilyrði geti verið mismunandi milli deilda og námsleiða, þannig að skráning í eina deild eða námsleið veiti ekki sjálfkrafa rétt til skráningar í aðra.
Við upplýsingagjöf um inntökuskilyrði í grunnnám skulu leiðbeiningar enn fremur veittar um frekari undirbúning sem deild telur æskilegan fyrir einstakar námsleiðir, með vísan til einingafjölda í tilteknum grunngreinum mennta- eða framhaldsskólanáms eða annarra atriða.
II. KAFLI Inntökuskilyrði deilda á Félagsvísindasviði.
ATH. ÞESSAR REGLUR ERU ÚR GILDI FALLNAR FYRIR UTAN 7. GR. (STJÓRNMÁLAFRÆÐIDEILD) OG 12. GR. (SÁLFRÆÐIDEILD). NÝJAR REGLUR UM INNTÖKUSKILYRÐI Í GRUNNNÁM VIÐ HÁSKÓLA ÍSLANDS TÓKU GILDI Í MARS 2022, SJÁ HÉR.
3. gr. [Félagsfræði-, mannfræði- og þjóðfræðideild.]1
[Til að hefja nám við Félagsfræði-, mannfræði- og þjóðfræðideild skal stúdent hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegu prófi. Lokapróf frá háskólabrú Keilis eða frá háskólagrunni Háskólans í Reykjavík (áður Tækniháskóla Íslands og Tækniskóla Íslands) teljast sambærileg stúdentsprófi og nægja til inntöku í BA-nám í deildinni. Æskilegur undirbúningur fer eftir markmiðum þeirrar námsleiðar sem valin er. Nánari upplýsingar þar um eru í kennsluskrá og kynningarefni til nýrra stúdenta.]1
1Breytt með 1. gr. reglna nr. 1298/2020.
4. gr. Félagsráðgjafardeild.
Til að hefja nám við Félagsráðgjafardeild skal stúdent hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegu prófi frá erlendum skóla. Lokapróf [frá háskólagrunni]1 Háskólans í Reykjavík (áður Tækniháskóla Íslands og Tækniskóla Íslands) telst sambærilegt stúdentsprófi og nægir til inntöku í BA-nám í deildinni. Lokapróf frá frumgreinadeild Keilis (háskólabrú) nægir til inngöngu í Félagsráðgjafardeild, enda hafi viðkomandi stundað nám sem er ætlað fyrir þá sem hyggja á frekara nám í hug- eða félagsvísindum. Æskilegur undirbúningur fer eftir markmiðum þeirrar námsleiðar sem valin er. Nánari upplýsingar þar um eru í kennsluskrá og kynningarefni til nýrra stúdenta.
1Breytt með 1. gr. reglna nr. 1163/2019.
5. gr. Hagfræðideild.
Til að hefja BS- og BA-nám við Hagfræðideild skal stúdent hafa lokið stúdentsprófi af bóknámsbraut eða sambærilegu próf að mati deildarinnar. Lokapróf [frá háskólagrunni]2 Háskólans í Reykjavík (áður Tækniháskóla Íslands og Tækniskóla Íslands) og stúdentspróf að lokinni viðskiptabraut og viðbótarnámi samkvæmt aðalnámskrá framhaldsskóla, teljast sambærileg stúdentsprófi af bóknámsbraut og nægja til inntöku í BS- og BA-nám í deildinni. Lokapróf frá frumgreinadeild Keilis (háskólabrú) nægir til inngöngu í Hagfræðideild til jafns við stúdentspróf, enda hafi viðkomandi stundað nám sem er ætlað fyrir þá sem hyggja á frekara nám í [hagfræði.]2 [...]2
[...]1
1Breytt með 1. gr. rgl. nr. 907/2019.
2Breytt með 2. gr. reglna nr. 1163/2019.
6. gr. Lagadeild.
[Til að hefja nám við Lagadeild skal stúdent hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegu prófi frá erlendum skóla. [Lokapróf frá háskólagrunni Háskólans í Reykjavík (áður Tækniháskóla Íslands og Tækniskóla Íslands) telst sambærilegt stúdentsprófi og nægir til inntöku í BA-nám í deildinni.]3 Þá nægir lokapróf frá frumgreinadeild Keilis (háskólabrú) til inngöngu í Lagadeild. Æskilegur undirbúningur er stúdentspróf af bóknámsbraut eða jafngilt nám, með áherslu á kunnáttu og færni í íslensku máli.]1
[...]2
1Breytt með 1. gr. rgl. nr. 463/2009.
2Breytt með 3. gr. rgl. nr. 1163/2019.
3Breytt með 1. gr. rgl. nr. 480/2020.
7. gr. Stjórnmálafræðideild.
[Til að hefja nám við Stjórnmálafræðideild skal stúdent hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegu prófi. Lokapróf frá háskólabrú Keilis eða frá háskólagrunni Háskólans í Reykjavík (áður Tækniháskóla Íslands og Tækniskóla Íslands) teljast sambærileg stúdentsprófi og nægja til inntöku í BA-nám í deildinni. Æskilegur undirbúningur fer eftir markmiðum þeirrar námsleiðar sem valin er. Nánari upplýsingar þar um eru í kennsluskrá og kynningarefni til nýrra stúdenta.]1
1Breytt með 2. gr. reglna nr. 1298/2020.
8. gr. Viðskiptafræðideild.
[Til að hefja BS-nám við Viðskiptafræðideild skal stúdent hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegu prófi að mati deildarinnar.]1 Lokapróf [frá háskólagrunni]2 Háskólans í Reykjavík (áður Tækniháskóla Íslands og Tækniskóla Íslands) og stúdentspróf að lokinni viðskiptabraut og viðbótarnámi samkvæmt aðalnámskrá framhaldsskóla, teljast sambærileg stúdentsprófi og nægja til inntöku í BS-nám í deildinni. Lokapróf frá frumgreinadeild Keilis (háskólabrú) nægir til inngöngu í Viðskiptafræðideild til jafns við stúdentspróf, enda hafi viðkomandi stundað nám sem er ætlað fyrir þá sem hyggja á frekara nám í viðskiptafræði. Æskilegur undirbúningur er minnst 15 einingar í ensku og að minnsta kosti 12 einingar í stærðfræði.
1Breytt með 1. gr. rgl. nr. 274/2015.
2Breytt með 1. gr. reglna nr. 1163/2019.
III. KAFLI Inntökuskilyrði deilda á Heilbrigðisvísindasviði.
ATH. ÞESSAR REGLUR ERU ÚR GILDI FALLNAR FYRIR UTAN 8. GR. (STJÓRNMÁLAFRÆÐIDEILD) OG 12. GR. (SÁLFRÆÐIDEILD). NÝJAR REGLUR UM INNTÖKUSKILYRÐI Í GRUNNNÁM VIÐ HÁSKÓLA ÍSLANDS TÓKU GILDI Í MARS 2022, SJÁ HÉR.
9. gr. Hjúkrunarfræðideild.
[Til að hefja nám við Hjúkrunarfræðideild skal stúdent hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegu prófi frá erlendum skóla. Þá nægir lokapróf frá [verk- og raunvísindadeild (áður frumgreinadeild)]2 Keilis (háskólabrú) til inngöngu í Hjúkrunarfræðideild. [Nemendur sem lokið hafa aðfararnámi að öðrum háskólum en Háskóla Íslands geta sótt um undanþágu frá þessum inntökuskilyrðum. Ef undanþága er samþykkt eru þeir umsækjendur jafnsettir þeim er uppfylla formleg skilyrði við val nemenda í námið, sbr. reglur nr. 24/2015.]2 Æskilegur undirbúningur samkvæmt aðalnámskrá framhaldsskóla 2011 er: 3. hæfniþrep í íslensku, ensku og stærðfræði. Auk þess er mælt með því að stúdent hafi lokið 10 fein á 3. þrepi í efnafræði og/eða stærðfræði og 5 fein á 3. þrepi í líffræði.]1
[...]4
[Nemendur sem lokið hafa námi í hjúkrunarfræði frá erlendum háskólum og hafa fengið hjúkrunarleyfi í heimalandi geta sótt um undanþágu frá því að gangast undir [samkeppnispróf]4 í Hjúkrunarfræðideild. Sviðsstjóri kennslusviðs tekur ákvörðun um hvort fallist er á undanþágubeiðni, að fenginni umsögn deildar, sbr. einnig ákvæði 47. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009 um inntöku stúdenta. Við mat á umsókn um undanþágu er tekið mið af fyrra námi umsækjanda og umsögn frá embætti landlæknis um hæfi umsækjanda til að fá íslenskt hjúkrunarleyfi, þ.e. hvaða námskeið eða klíníska þjálfun umsækjanda vantar til að fá íslenskt hjúkrunarleyfi.]3
[Til að hefja nám í hjúkrunarfræði fyrir fólk sem lokið hefur öðru háskólaprófi skal umsækjandi hafa lokið bakkalárprófi með lágmarkseinkunninni 6,5 og hafa lokið sem svarar 8 einingum í aðferðafræði/tölfræði, 6 einingum í félags- eða sálfræðigreinum og 26 einingum í líffræðigreinum samkvæmt nánari ákvörðun deildar.]4
1Breytt með 1. gr. rgl. nr. 22/2015.
2Breytt með 1. gr. rgl. nr. 352/2017.
3Breytt með 1. gr. rgl. nr. 1259/2017.
4Breytt með 2. gr. rgl. nr. 907/2019.
10. gr. Lyfjafræðideild.
Til að hefja nám við Lyfjafræðideild skal stúdent hafa lokið stúdentsprófi af bóknámsbraut eða sambærilegu prófi frá erlendum skóla. Æskilegur undirbúningur er stúdentspróf af náttúrufræðibraut með efnafræði sem kjörsvið. [Lokapróf frá frumgreinadeild Keilis (háskólabrú) nægir til inngöngu í Lyfjafræðideild, enda hafi viðkomandi stundað nám við verk- og raunvísindadeild háskólabrúar.]1
1Breytt með 1. gr. rgl. nr. 215/2011.
11. gr. Læknadeild.
[Til að hefja nám við Læknadeild skal stúdent hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegu prófi frá erlendum skóla. Nemendur sem lokið hafa prófi frá tækni- og verkfræðigrunni háskólagrunns Háskólans í Reykjavík (áður Tækniháskóla Íslands og Tækniskóla Íslands) eða verk- og raunvísindadeild háskólabrúar Keilis teljast uppfylla inntökuskilyrði deildarinnar.]1
Stúdentar eru teknir inn í nám í læknisfræði og sjúkraþjálfun á grundvelli inntökuprófs samkvæmt nánari reglum þar að lútandi. Inntökuprófið byggist að hluta á námsefni framhaldsskóla, en einnig reynir á almenna þekkingu, siðfræðilega afstöðu og rökhugsun.
1Breytt með 3. gr. rgl. nr. 1298/2020.
12. gr. Matvæla- og næringarfræðideild.
[Til að hefja nám í matvælafræði og næringarfræði við Matvæla- og næringarfræðideild skal stúdent hafa lokið stúdentsprófi eða öðru sambærilegu prófi. Æskilegur undirbúningur er stúdentspróf af náttúrufræðibraut. Nemendur sem lokið hafa prófi [frá háskólagrunni]2 Háskólans í Reykjavík (áður Tækniháskóla Íslands og Tækniskóla Íslands) teljast uppfylla inntökuskilyrði deildarinnar. Lokapróf frá frumgreinadeild Keilis (háskólabrú) telst sambærilegt stúdentsprófi, enda hafi viðkomandi stundað nám við verk- og raunvísindadeild háskólabrúar.
[...]3]1
1Breytt með 3. gr. rgl. nr. 215/2011.
2Breytt með 1. gr. reglna nr. 1163/2019.
3Breytt með 1. gr. reglna nr. 1048/2021.
13. gr. Sálfræðideild.
Til að hefja nám við Sálfræðideild skal stúdent hafa lokið stúdentsprófi eða öðru sambærilegu prófi. Æskilegur undirbúningur er stúdentspróf af bóknámsbraut. [Lokapróf frá frumgreinadeild Keilis (háskólabrú) telst sambærilegt stúdentsprófi.]1
1Breytt með 4. gr. rgl. nr. 215/2011.
14. gr. Tannlæknadeild.
Til að hefja nám við Tannlæknadeild skal stúdent hafa lokið stúdentsprófi af bóknámsbraut eða sambærilegu prófi frá erlendum skóla. Æskilegur undirbúningur er góð þekking í líffræði og eðlis- og efnafræði.
[Lokapróf frá háskólabrú Keilis telst sambærilegt stúdentsprófi, enda hafi viðkomandi stundað nám við verk- og raunvísindadeild háskólabrúar.]1
1Breytt með 4. gr. reglna nr. 1163/2019.
IV. KAFLI Inntökuskilyrði deilda á Hugvísindasviði.
ATH. ÞESSAR REGLUR ERU ÚR GILDI FALLNAR FYRIR UTAN 8. GR. (STJÓRNMÁLAFRÆÐIDEILD) OG 12. GR. (SÁLFRÆÐIDEILD). NÝJAR REGLUR UM INNTÖKUSKILYRÐI Í GRUNNNÁM VIÐ HÁSKÓLA ÍSLANDS TÓKU GILDI Í MARS 2022, SJÁ HÉR.
15. gr. [Mála- og menningardeild.]2
[Til að hefja nám við [Mála- og menningardeild]2 skal stúdent hafa lokið stúdentsprófi frá íslenskum framhaldsskóla eða sambærilegu prófi frá erlendum skóla. Lokapróf frá frumgreinadeild Keilis (háskólabrú) nægir til inngöngu í [Mála- og menningardeild,]2 enda hafi viðkomandi stundað nám sem er ætlað fyrir þá sem hyggja á frekara nám í hug- eða félagsvísindum. Æskilegur undirbúningur fer eftir markmiðum þeirrar námsleiðar sem valin er. Nánari upplýsingar þar um eru í kennsluskrá og kynningarefni til nýrra stúdenta.]1
1Breytt með 2. gr. rgl. nr. 463/2009.
2Breytt með 2. gr. rgl. nr. 67/2017.
16. gr. Guðfræði- og trúarbragðafræðideild.
[Til að hefja nám við Guðfræði- og trúarbragðafræðideild skal stúdent hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegu prófi frá erlendum skóla. Lokapróf frá frumgreinadeild Keilis (háskólabrú) nægir til inngöngu í Guðfræði- og trúarbragðafræðideild, enda hafi viðkomandi stundað nám sem er ætlað fyrir þá sem hyggja á frekara nám í hug- eða félagsvísindum. Æskilegur undirbúningur er stúdentspróf af bóknámsbraut, með áherslu á íslensku, dönsku, ensku, sagnfræði og greinar félagsvísinda.]1
1Breytt með 3. gr. rgl. nr. 463/2009.
17. gr. Íslensku- og menningardeild.
[Til að hefja nám við Íslensku- og menningardeild skal stúdent hafa lokið stúdentsprófi frá íslenskum framhaldsskóla eða sambærilegu prófi frá erlendum skóla. Lokapróf frá frumgreinadeild Keilis (háskólabrú) nægir til inngöngu í Íslensku- og menningardeild, enda hafi viðkomandi stundað nám sem er ætlað fyrir þá sem hyggja á frekara nám í hug- eða félagsvísindum.
Til að hefja nám til BA-prófs í íslensku fyrir erlenda stúdenta þarf stúdent ennfremur að standast lágmarkskröfur á stöðuprófi sem haldið er fyrir upphaf hvers háskólaárs. Æskilegur undirbúningur fer eftir markmiðum þeirrar námsleiðar sem valin er. Nánari upplýsingar þar um eru í kennsluskrá og kynningarefni til nýrra stúdenta.]1
1Breytt með 4. gr. rgl. nr. 463/2009.
18. gr. Sagnfræði- og heimspekideild.
[Til að hefja nám við Sagnfræði- og heimspekideild skal stúdent hafa lokið stúdentsprófi frá íslenskum framhaldsskóla eða sambærilegu prófi frá erlendum skóla. Lokapróf frá frumgreinadeild Keilis (háskólabrú) nægir til inngöngu í Sagnfræði- og heimspekideild, enda hafi viðkomandi stundað nám sem er ætlað fyrir þá sem hyggja á frekara nám í hug- eða félagsvísindum. Æskilegur undirbúningur fer eftir markmiðum þeirrar námsleiðar sem valin er. Nánari upplýsingar þar um eru í kennsluskrá og kynningarefni til nýrra stúdenta.]1
1Breytt með 5. gr. rgl. nr. 463/2009.
V. KAFLI Inntökuskilyrði deilda á Menntavísindasviði.
19. gr. [Deild faggreinakennslu.
Til að hefja B.Ed.-nám í Deild faggreinakennslu skal stúdent hafa lokið stúdentsprófi frá íslenskum framhaldsskóla eða sambærilegu prófi frá erlendum skóla. Lokapróf frá frumgreinadeild Keilis (háskólabrú) og [frá háskólagrunni]2 Háskólans í Reykjavík (áður Tækniháskóla Íslands og Tækniskóla Íslands) teljast sambærileg stúdentsprófi og nægja til inntöku í B.Ed.-nám í deildinni. Æskilegur undirbúningur fer eftir markmiðum þeirrar námsleiðar sem valin er. Nánari upplýsingar þar um eru í kennsluskrá og kynningarefni til nýrra stúdenta.
Til að hefja diplómanám í kennslufræði á bakkalárstigi í Deild faggreinakennslu skal stúdent hafa lokið fullgildu lokaprófi í iðngrein (meistarabréf), listgrein, tæknigrein eða verkgrein sem nýtist til kennslu á grunnskóla- eða framhaldsskólastigi í skilgreindri námsgrein eða á skilgreindu námssviði.
Til að hefja B.Ed.-nám í kennslufræði verk- og starfsmenntunar í Deild faggreinakennslu skal stúdent hafa lokið fullgildu lokaprófi í iðngrein (meistarabréf), listgrein, tæknigrein eða verkgrein sem nýtist til kennslu á grunnskóla- eða framhaldsskólastigi í skilgreindri námsgrein eða á skilgreindu námssviði. Stúdent þarf einnig að hafa lokið annað hvort (a) stúdentsprófi eða (b) diplómanámi í kennslufræði á bakkalárstigi í Kennaradeild (frá 1. júlí 2018 nefnd Deild faggreinakennslu) og hafa fimm ára starfsreynslu í greininni.]1
1Breytt með 1. gr. rgl. nr. 305/2018.
2Breytt með 1. gr. reglna nr. 1163/2019.
20. gr. [Deild heilsueflingar, íþrótta- og tómstunda.
Til að hefja BA-, B.Ed.- eða BS-nám skal stúdent hafa lokið stúdentsprófi frá íslenskum framhaldsskóla eða sambærilegu prófi frá erlendum skóla. Lokapróf frá frumgreinadeild Keilis (háskólabrú) og [frá háskólagrunni]2 Háskólans í Reykjavík (áður Tækniháskóla Íslands og Tækniskóla Íslands) teljast sambærileg stúdentsprófi og nægja til inntöku í BA-, B.Ed.- og BS-nám í deildinni. Æskilegur undirbúningur fer eftir markmiðum þeirrar námsleiðar sem valin er. Að auki þurfa þeir sem hyggja á BS-nám í íþrótta- og heilsufræði að uppfylla hæfniviðmið 10. bekkjar í sundi samkvæmt aðalnámskrá grunnskóla.
Þeim umsækjendum sem lokið hafa prófi frá Íþróttakennaraskóla Íslands er heimilt að ljúka BS-prófi í íþrótta- og heilsufræði að viðbættum 60 skilgreindum einingum (sjá kennsluskrá).
Nánari upplýsingar eru í kennsluskrá og kynningarefni til nýrra stúdenta.]1
1Breytt með 2. gr. rgl. nr. 305/2018.
2Breytt með 1. gr. reglna nr. 1163/2019.
21. gr. [Deild kennslu- og menntunarfræði.
Til að hefja B.Ed.-nám í Deild kennslu- og menntunarfræði skal stúdent hafa lokið stúdentsprófi frá íslenskum framhaldsskóla eða sambærilegu prófi frá erlendum skóla. Lokapróf frá frumgreinadeild Keilis (háskólabrú) og [frá háskólagrunni]2 Háskólans í Reykjavík (áður Tækniháskóla Íslands og Tækniskóla Íslands) teljast sambærileg stúdentsprófi og nægja til inntöku í B.Ed.-nám í deildinni. Æskilegur undirbúningur fer eftir markmiðum þeirrar námsleiðar sem valin er. Nánari upplýsingar þar um eru í kennsluskrá og kynningarefni til nýrra stúdenta.]1
1Breytt með 3. gr. rgl. nr. 305/2018.
2Breytt með 1. gr. reglna nr. 1163/2019.
[21. gr. a. Deild menntunar og margbreytileika.
Til að hefja BA-nám skal stúdent hafa lokið stúdentsprófi frá íslenskum framhaldsskóla eða sambærilegu prófi frá erlendum skóla. Lokapróf frá frumgreinadeild Keilis (háskólabrú) og [frá háskólagrunni]2 Háskólans í Reykjavík (áður Tækniháskóla Íslands og Tækniskóla Íslands) teljast sambærileg stúdentsprófi og nægja til inntöku í BA-nám í deildinni. Æskilegur undirbúningur fer eftir markmiðum þeirrar námsleiðar sem valin er. Nánari upplýsingar þar um eru í kennsluskrá og kynningarefni til nýrra stúdenta.
Þeim umsækjendum sem lokið hafa prófi frá Þroskaþjálfaskóla Íslands er heimilt að ljúka BA-prófi í þroskaþjálfafræði að viðbættum 30 skilgreindum einingum (sjá kennsluskrá).]1
1Breytt með 4. gr. rgl. nr. 305/2018.
2Breytt með 1. gr. reglna nr. 1163/2019.
VI. KAFLI Inntökuskilyrði deilda á Verkfræði- og náttúruvísindasviði.
ATH. ÞESSAR REGLUR ERU ÚR GILDI FALLNAR FYRIR UTAN 8. GR. (STJÓRNMÁLAFRÆÐIDEILD) OG 12. GR. (SÁLFRÆÐIDEILD). NÝJAR REGLUR UM INNTÖKUSKILYRÐI Í GRUNNNÁM VIÐ HÁSKÓLA ÍSLANDS TÓKU GILDI Í MARS 2022, SJÁ HÉR.
[22. gr. Almenn ákvæði.]1
[Til að hefja nám við deildir verkfræði- og náttúruvísindasviðs skal umsækjandi hafa lokið stúdentsprófi, sbr. 1. gr., eða sambærilegu prófi. Lokapróf frá háskólabrú Keilis og háskólagrunni Háskólans í Reykjavík teljast sambærileg stúdentsprófi.
Umsækjendur sem hafa brautskráðst með BS/BA eða sambærilega háskólagráðu í hvaða grein sem er frá viðurkenndum háskóla uppfylla skilyrði til að innritast í grunnnám í deildum verkfræði- og náttúruvísindasviðs. Athygli er vakin á því að grunnnám við sviðið fer að mestu fram á íslensku.
Frekari tilmæli deilda verkfræði- og náttúruvísindasviðs eru tilgreind í 23.–28. gr.]2
1Breytt með 6. gr. rgl. nr. 215/2011.
2Breytt með 5. gr. reglna nr. 1163/2019.
[23. gr. Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild.]1
[Til að hefja nám við deildina skal umsækjandi hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegu prófi. Fjórða stigs próf frá vélstjórnarbraut Tækniskólans (áður Vélskóla Íslands), [lokapróf frá tækni- og verkfræðigrunni eða tölvunarfræðigrunni við háskólagrunn]3 Háskólans í Reykjavík og lokapróf frá verk- og raunvísindadeild háskólabrúar Keilis teljast sambærileg stúdentsprófi. Ef um er að ræða próf frá erlendum skóla er gerð krafa um að umsækjandi skilji ritaða og talaða íslensku.
Æskilegur undirbúningur fyrir nám í verkfræði: Sterklega er mælt með að minnsta kosti 40 einingum í stærðfræði og 50 einingum í náttúrufræðigreinum (þar af minnst 10 einingum í eðlisfræði).
Æskilegur undirbúningur fyrir nám í tölvunarfræði: Sterklega er mælt með að minnsta kosti 35 einingum í stærðfræði.]2
1Breytt með 7. gr. rgl. nr. 215/2011.
2Breytt með 1. gr. rgl. nr. 171/2020.
3Breytt með 1. gr. rgl. nr. 184/2021.
[24. gr. Jarðvísindadeild.
[Til að hefja nám við deildina skal umsækjandi hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegu prófi. [Lokapróf frá tækni- og verkfræðigrunni við háskólagrunn]3 Háskólans í Reykjavík og lokapróf frá verk- og raunvísindadeild háskólabrúar Keilis teljast sambærileg stúdentsprófi. Ef um er að ræða próf frá erlendum skóla er gerð krafa um að umsækjandi skilji ritaða og talaða íslensku.
Nauðsynlegur undirbúningur fyrir nám í jarðfræði: 35 einingar í stærðfræði og 50 einingar í náttúrufræðigreinum, þar af minnst 10 einingar í eðlisfræði, 10 einingar í efnafræði og 10 einingar í jarðfræði.
Nauðsynlegur undirbúningur fyrir nám í jarðeðlisfræði: 35 einingar í stærðfræði og 50 einingar í náttúrufræðigreinum, þar af minnst 10 einingar í eðlisfræði, 10 einingar í efnafræði og 10 einingar í jarðfræði.
Æskilegur undirbúningur fyrir nám í jarðeðlisfræði: Sterklega er mælt með að minnsta kosti 40 einingum í stærðfræði.
Undanþágur eru gerðar frá kröfum um einingafjölda ef tilefni þykir til.]2
2Breytt með 2. gr. rgl. nr. 171/2020.
3Breytt með 2. gr. rgl. nr. 184/2021.
25. gr. Líf- og umhverfisvísindadeild.
[Til að hefja nám við deildina skal umsækjandi hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegu prófi. [Lokapróf]3 frá háskólagrunni Háskólans í Reykjavík og lokapróf frá háskólabrú Keilis teljast sambærileg stúdentsprófi. Ef um er að ræða próf frá erlendum skóla er gerð krafa um að umsækjandi skilji ritaða og talaða íslensku.
Æskilegur undirbúningur fyrir nám í líffræði: 35 einingar í stærðfræði og 50 einingar í náttúrufræðigreinum, þar af a.m.k. 10 einingar í eðlisfræði, 10 einingar í efnafræði og 10 einingar í líffræði. Sé lokapróf umsækjanda frá háskólabrú Keilis skal það vera frá verk- og raunvísindadeild háskólabrúar [en sé lokapróf frá háskólagrunni HR skal það vera frá tækni- og verkfræðigrunni háskólagrunns.]3]2
2Breytt með 3. gr. rgl. nr. 171/2020.
3Breytt með 3. gr. rgl. nr. 184/2021.
26. gr. Rafmagns- og tölvuverkfræðideild.
[Til að hefja nám við deildina skal umsækjandi hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegu prófi. Fjórða stigs próf frá vélstjórnarbraut Tækniskólans (áður Vélskóla Íslands), [lokapróf frá tækni- og verkfræðigrunni eða tölvunarfræðigrunni við háskólagrunn]4 Háskólans í Reykjavík og lokapróf frá verk- og raunvísindadeild háskólabrúar Keilis teljast sambærileg stúdentsprófi. Ef um er að ræða próf frá erlendum skóla er gerð krafa um að umsækjandi skilji ritaða og talaða íslensku.
Æskilegur undirbúningur fyrir nám í verkfræði: Sterklega er mælt með að minnsta kosti 40 einingum í stærðfræði og 50 einingum í náttúrufræðigreinum (þar af minnst 10 einingum í eðlisfræði).]2
[Umsækjendur um nám í tæknifræði sem stundað hafa nám á framhaldsskólastigi geta öðlast rétt til undanþágu frá framangreindum skilyrðum með því að þreyta stöðumat. Við mat á undanþágu er jafnframt tekið mið af starfsreynslu úr atvinnulífinu. Í öllum tilvikum þurfa undanþágur að fara samkvæmt ákvæðum sameiginlegra reglna háskólans og nánari ákvörðunum háskólaráðs.
Umsækjendur sem uppfylla skilyrði um undanþágu þurfa að:
- Sitja undirbúningsnámskeið í stærðfræði á haustmisseri fyrsta árs.
- Ljúka undirbúningsnámskeiðum til að öðlast rétt til áframhaldandi náms á vormisseri fyrsta árs.]3
2Breytt með 4. gr. rgl. nr. 171/2020.
3Breytt með 9. gr. reglna nr. 1163/2019.
4Breytt með 4. gr. rgl. nr. 184/2021.
27. gr. Raunvísindadeild.
[Til að hefja nám við deildina skal umsækjandi hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegu prófi sem inniheldur a.m.k. 35 einingar í stærðfræði og 50 einingar í náttúrufræðigreinum, þar af minnst 10 einingar í eðlisfræði, 10 einingar í efnafræði og 10 einingar í líffræði. Undanþágur eru gerðar frá kröfum um einingafjölda ef tilefni þykir til.
[Lokapróf frá tækni- og verkfræðigrunni við háskólagrunn]3 Háskólans í Reykjavík og lokapróf frá verk- og raunvísindadeild háskólabrúar Keilis teljast sambærileg stúdentsprófi. Ef um er að ræða próf frá erlendum skóla er gerð krafa um að umsækjandi skilji ritaða og talaða íslensku.
Eindregið er mælt með að umsækjendur um nám í lífeinda- og sameindalíffræði, sem er sameiginlega á ábyrgð Raunvísindadeildar og Líf- og umhverfisvísindadeildar, hafi lokið 35 einingum í stærðfræði og 50 einingum í raungreinum, þar af a.m.k. 10 einingum í eðlisfræði, 10 einingum í efnafræði og 10 einingum í líffræði.
Fyrir nám í eðlisfræði og stærðfræði er sterklega mælt með að minnsta kosti 40 einingum í stærðfræði.]2
2Breytt með 5. gr. rgl. nr. 171/2020.
3Breytt með 5. gr. rgl. nr. 184/2021.
28. gr. Umhverfis- og byggingarverkfræðideild
[Til að hefja nám við deildina skal umsækjandi hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegu prófi. Fjórða stigs próf frá vélstjórnarbraut Tækniskólans (áður Vélskóla Íslands), [lokapróf frá tækni- og verkfræðigrunni eða tölvunarfræðigrunni við háskólagrunn]3 Háskólans í Reykjavík og lokapróf frá verk- og raunvísindadeild háskólabrúar Keilis teljast sambærileg stúdentsprófi. Ef um er að ræða próf frá erlendum skóla er gerð krafa um að umsækjandi skilji ritaða og talaða íslensku.
Æskilegur undirbúningur fyrir nám í verkfræði: Sterklega er mælt með að minnsta kosti 40 einingum í stærðfræði og 50 einingum í náttúrufræðigreinum (þar af minnst 10 einingum í eðlisfræði).]2]1
1Breytt með 8. gr. rgl. nr. 215/2011.
2Breytt með 6. gr. rgl. nr. 171/2020.
3Breytt með 6. gr. rgl. nr. 184/2021.
VII. KAFLI Setning reglna og gildistaka.
[29. gr.]1 Gildistaka
Reglur þessar hefur háskólaráð sett á grundvelli tillagna viðkomandi fræðasviða og með vísan til 3. mgr. 18. gr. laga nr. 85/2008, um opinbera háskóla.
Reglurnar öðlast þegar gildi og verður þeim beitt við inntöku stúdenta frá og með háskólaárinu 2009–2010. Jafnframt falla úr gildi eldri reglur um inntökuskilyrði í Háskóla Íslands nr. 573/2005 með áorðnum breytingum.
1Breytt með 8. gr. rgl. nr. 215/2011.
Háskóla Íslands, 5. mars 2009