Við Menntavísindasvið er starfrækt á þriðja tug rannsóknastofa. Markmið þeirra er að auka og efla rannsóknir hver á sínu fræðasviði, meðal annars með því að auka samvinnu rannsakenda, ekki síst þverfaglega og alþjóðlega og miðla þekkingu út í samfélagið. Rannsóknarstofur Á vef Menntavísindastofnunar má finna yfirlit yfir rannsóknarstofur við Menntavísindasvið. Tilgangur og hlutverk Aðalmarkmið rannsóknarstofa er að auka og efla rannsóknir á sínu sviði með því að: Eiga frumkvæði að og sinna rannsóknum á sviðinu. Vera samstarfsvettvangur fræðimanna á sviðinu og við fræðimenn annarra sviða. Hafa samstarf og tengsl við þá aðila sem móta stefnu og sjá um framkvæmdir á sviðinu í samfélaginu. Hafa samstarf við erlenda aðila um rannsóknir. Veita nemum í rannsóknartengdu framhaldsnámi þjálfun og reynslu í vísindalegum vinnubrögðum með því að gefa þeim kost á að vinna rannsóknir og námsverkefni á vegum rannsóknarstofunnar. Stuðla að því að yfirsýn fáist yfir rannsóknir á umræddu sviði, miðla þekkingu og kynna niðurstöður rannsókna meðal annars með útgáfu fræðigreina og fræðirita og með fyrirlestrahaldi. Veita ráðgjöf og aðra þjónustu á sínu sviði eftir því sem aðstæður leyfa. facebooklinkedintwitter