Stórvirkið Aldarsaga Háskóla Íslands 1911-2011, var gefið út í tilefni af aldarafmæli skólans. Um er að ræða mjög umfangsmikið og vandað rit, tæplega 900 blaðsíður að lengd og skreytt rúmlega 300 myndum af margvíslegu tagi.
Höfundar ritsins eru Guðmundur Hálfdánarson, Sigríður Matthíasdóttir og Magnús Guðmundsson en ritstjórn þess var í höndum Gunnars Karlssonar.
Í bókinni er sagt frá kennsluháttum og breytingum á þeim, rannsóknum starfsmanna, samskiptum kennara og stúdenta, félagsstarfi og lífsháttum nemenda. Samskipti ríkisvaldsins og háskólans eru rakin frá því að hann var undir stjórn ráðherra uns háskólinn náði að stýra nánast öllu starfi sínu innan ramma laga og samninga við ríkið um fjárveitingar.
Sögunni er skipt í þrjá hluta eftir ríkjandi áherslum á hverjum tíma.
Embættismannaskólinn fjallar um fyrstu hálfa öldina, Grunnmenntunarskólinn um næstu þrjá áratugi, 1961-90, og Rannsóknaháskólinn um tvo síðustu áratugina.
- Aldarsaga Háskóla Íslands bls. 1-107
- Aldarsaga Háskóla Íslands bls. 108-207
- Aldarsaga Háskóla Íslands bls. 208-325
- Aldarsaga Háskóla Íslands bls. 326-444
- Aldarsaga Háskóla Íslands bls. 445-575
- Aldarsaga Háskóla Íslands bls. 576-692
- Aldarsaga Háskóla Íslands bls. 693-864
Háskólaútgáfan gefur Aldarsögu Háskóla Íslands út.