Skip to main content

Reglur nr. 1042-2003

[Reglur um inntöku nýnema í læknisfræði og sjúkraþjálfunarfræði í Læknadeild Háskóla Íslands, nr. 1042/2003.]1

með áorðnum breytingum
1Breytt með 1. gr. rgl. nr. 1017/2016.

1. gr.  Ákvörðun um fjöldatakmörkun.

[Heilbrigðisvísindasvið, fyrir hönd Læknadeildar, leggur árlega fyrir háskólaráð rökstuddar tillögur um fjölda stúdenta sem unnt er að taka til [BS-náms]3 í læknisfræði og [sjúkraþjálfunarfræðum.]2 Skal beiðni frá Heilbrigðisvísindasviði, þar að lútandi, send háskólaráði fyrir lok nóvember. Háskólaráð afgreiðir tillögur Heilbrigðisvísindasviðs eigi síðar en í janúar.

Ákvörðun um fjölda nýnema, sem teknir eru inn ár hvert, gildir í eitt ár.]1
1Breytt með 2. gr. rgl. nr. 190/2013.
2Breytt með 2. gr. rgl. nr. 1017/2016.

3Breytt með 1. gr. rgl. nr. 853/2024.

2. gr.  Inntökupróf.

Inntökupróf er haldið í júní ár hvert, samkvæmt nánari ákvörðun Læknadeildar að höfðu samráði við [sviðsstjóra kennslusviðs]1 Háskóla Íslands. Prófið er haldið á vegum Háskóla Íslands og í húsnæði á hans vegum.

Læknadeild auglýsir prófið og birtist sérstök lýsing á framkvæmd þess á heimasíðu deildarinnar.

Nemendur skulu vera skráðir sérstaklega til inntökuprófsins, hjá nemendaskrá Háskóla Íslands, áður en þeir ganga til prófsins. Tiltekinn fjöldi, ákveðinn skv. 1. gr., þeirra nemenda sem bestum árangri ná í prófinu, fær rétt til náms í Læknadeild Háskóla Íslands - læknisfræði eða [sjúkraþjálfunarfræðum,]3 sbr. 4. gr. Nemandi sem öðlast rétt til náms í Læknadeild, að loknu inntökuprófi, skal hefja námið á næsta haustmisseri eftir prófið. Að öðrum kosti hefur hann fyrirgert rétti sínum til náms í Læknadeild á grundvelli þessa inntökuprófs, en þann rétt öðlast þá sá nemandi sem næstur var því að öðlast rétt til náms á grundvelli sama inntökuprófs. Séu tveir eða fleiri nemendur jafnir, öðlast báðir eða allir rétt til náms á næsta haustmisseri. [Hafi hópurinn sem á rétt á inngöngu stækkað á grundvelli 5. málsliðar þessarar málsgreinar og ákveði síðan nemandi að nýta sér ekki rétt sinn, verður ekki bætt við nemanda í hans stað.]2
1
Breytt með 3. gr. rgl. nr. 190/2013.
2Breytt með 1. gr. rgl. nr. 228/2015.
3Breytt með 3. gr. rgl. nr. 1017/2016.

3. gr.  Skráning til inntökuprófs.

Skráningu til inntökuprófsins skal lokið fyrir [20. maí.]1 Skráning getur farið fram, enda þótt nemandi hafi þá ekki lokið stúdentsprófi, en þegar inntökuprófið er þreytt skal nemandinn hafa lokið stúdentsprófi eða öðru sambærilegu prófi.

[Heimilt er, á grundvelli 2. mgr. 24. gr. laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla, að inn­heimta próftökugjald til að kosta gerð, fyrirlögn og yfirferð inntökuprófa.]2 Ef próftökugjald er innheimt, fer um fjárhæð þess og innheimtu eftir sameiginlegum reglum fyrir Háskóla Íslands. [Ef próftökugjald er innheimt, skal koma fram á heimasíðu Læknadeildar hvenær greiðslu þess skuli lokið. Hafi greiðsla próftökugjalds ekki borist fyrir þann tíma, fellur réttur til að þreyta inntökuprófið niður.]3
1Breytt með 2. gr. rgl. nr. 1057/2006.
2Breytt með 4. gr. rgl. nr. 190/2013.

3Breytt með 1. gr. rgl. nr. 54/2020.

4. gr.  Skrásetning til náms í Háskóla Íslands.

Skrásetningu þeirra, sem þreyta inntökupróf skv. þessum reglum og öðlast rétt til náms í Læknadeild, skal lokið fyrir [20. júlí.]1 Þeir, sem ekki öðlast rétt til náms í Læknadeild, eiga þess kost að skrásetja sig, innan sömu tímamarka, í aðrar deildir gegn greiðslu skrásetningargjalds skv. reglum Háskóla Íslands.
1Breytt með 1. gr. rgl. nr. 107/2016.

5. gr.  [Framkvæmd og inntak inntökuprófs.

[Undirbúningur prófsins fer fram af hálfu Læknadeildar með sérstakri ráðgjöf, m.a. frá kennurum framhaldsskóla. Inntökuprófið tekur tvo daga, og samanstendur af sex tveggja tíma próflotum.]4

[Í stað hefðbundinna viðtala, sem víða tíðkast við inntöku nýnema í læknadeildir, verður prófið að hluta til mat á almennri þekkingu, [yrtri rökfærslu, upplýsingalæsi og lesskilningi, nálgun og úrlausn vandamála,]4 auk spurninga um siðfræðileg álitaefni. [Gildi þessara prófhluta er 30% af heild. Þessir prófhlutar verða á formi krossaprófs en stuttar ritgerðir geta einnig verið í spurningum um siðfræðileg álitamál. Þessir prófhlutar byggja ekki á ákveðnu námsefni.]5 [Nemandi skal ná lágmarkseinkunn 5,0 að meðaltali í spurningum um siðfræðileg álitaefni.]3]2

[Í hinum prófhlutunum, sem gilda 70% af heildinni, verða lagðar fyrir krossaspurningar.]5 Þessi hluti miðast við fram­halds­skólanám, svo sem lýst er hér á eftir.

[Við gerð inntökuprófsins er aðalnámskrá framhaldsskóla frá 2011 höfð til hliðsjónar.]4

Læknadeild mælir með að nemendur búi yfir þekkingu, leikni og hæfni sem einkennir hæfni­þrep 2-3 fyrir eftirfarandi námsgreinar:

  • íslensku
  • ensku
  • stærðfræði
  • líffræði
  • efnafræði

auk þekkingar, leikni og hæfni sem einkennir hæfniþrep 1-2 í eftirfarandi námsgreinum:

  • eðlisfræði
  • náttúruvísindi
  • félagsfræði
  • saga
  • sálfræði

[...]4

Læknadeild tilnefnir umsjónarmenn með samningu prófsins og til að fara yfir prófúrlausnir. Forseti Heilbrigðisvísindasviðs skipar, að fengnum tillögum Læknadeildar, prófdómara, einn eða fleiri eftir atvikum.

Í þeim hluta þar sem ekki er um að ræða krossapróf [...]2 dæma umsjónarmenn annars vegar og prófdómari hins vegar úrlausnir og gefa sjálfstætt einkunn fyrir úrlausnir. Endanleg niðurstaða er meðaltal þeirra einkunna.

Einkunnir verða reiknaðar með tveimur aukastöfum.

Á heimasíðu Læknadeildar skal birta sýnishorn af prófspurningum úr hverjum prófhluta fyrir sig til glöggvunar fyrir þá sem hyggjast þreyta prófið. [...]4]1
1
Breytt með 5. gr. rgl. nr. 190/2013.

2Breytt með 2. gr. rgl. nr. 228/2015.
3Breytt með 1. gr. rgl. nr. 109/2018.
4Breytt með 2. gr. rgl. nr. 54/2020.
5Breytt með 1. gr. rgl. nr. 247/2020.

6. gr.  [Námsleiðir í læknisfræði og sjúkraþjálfunarfræðum.]2

[Inntökupróf er sameiginlegt fyrir námsleiðir Læknadeildar í læknisfræði og [sjúkraþjálfunarfræðum,]2 en heimilt er að hafa mismunandi vægi, í einstökum prófgreinum, fyrir hvora námsleið enda verði það auglýst sérstaklega. Við innritun í prófið ákveða nemendur fyrir hvora námsleiðina (læknisfræði eða [sjúkraþjálfunarfræði]2) prófúrlausn þeirra skuli metin, með því að merkja við þá námsleið sem við á.

Aðrar deildir geta gerst aðilar að prófinu samkvæmt sérstökum samningi milli deildanna.]1
1
Breytt með 6. gr. rgl. nr. 190/2013.

2Breytt með 4. gr. rgl. nr. 1017/2016.

7. gr.  Gildistaka o.fl.

[Reglur þessar um inntöku nýnema í Læknadeild, hefur háskólaráð sett með stoð í 3. mgr. 18. gr. laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla, sbr. 9. mgr. 102. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009.

Auk birtingar í B-deild Stjórnartíðinda, sbr. 1. mgr. 28. gr. laga nr. 85/2008, skal birta reglur þessar í kafla Læknadeildar í kennsluskrá og á heimasíðu deildarinnar.

Reglur þessar öðlast þegar gildi.]1
1
Breytt með 7. gr. rgl. nr. 190/2013.

Ákvæði til skýringar

[Um er að ræða próf til inntöku nýnema í nám í læknisfræði og [sjúkraþjálfunarfræðum]3 í Læknadeild.]1 Hugtakið „almenn þekking“, í skilningi reglna þessara, miðast því við það markmið, og er í sjálfu sér ekki takmarkað. Þannig verður t.d. leitað eftir þekkingu á málefnum líðandi stundar, s.s. á sviði mannlegra þátta, sögu og menningar hvers konar, félagsfræði og heilbrigðisumræðu. [Verði um ritgerðaspurningar að ræða sem varða siðfræðileg álitamál, verða þær settar fram sem sjúkratilfelli eða annars konar vandamál til úrlausnar.]2 Höfundar prófsins munu, við gerð þess, ákveða fyrirfram hvaða áherslum er verið að sækjast eftir til að byggja ramma utan um einkunnagjöf. [Komi fram galli í prófspurningum verður tekið tillit til þess við úrvinnslu en ekki á prófstað.]2
1Breytt með 8. gr. rgl. nr. 190/2013.
2Breytt með 3. gr. rgl. nr. 228/2015.
3Breytt með 5. gr. rgl. nr. 1017/2016.

 

Háskóla Íslands, 19. desember 2003; síðast breytt með reglum nr. 54/2020.