Skip to main content

Íþróttahús

Íþróttahús - á vefsíðu Háskóla Íslands

Íþróttahús Háskóla Íslands við Sæmundargötu er opið öllum nemendum og starfsfólki gegn mjög vægu gjaldi.

Í boði eru skipulagðir tímar í sal samkvæmt stundatöflu og aðstaða í tækjasal. Nemenda- eða starfsmannahópar geta einnig leigt íþróttasalinn fyrir boltaíþróttir eða annað. Sauna er í kjallara íþróttahússins.

Dagskrá í sal á haustmisseri 2024

Afgreiðslutími:

  • Mánudaga - fimmtudaga: 7:00 - 22:00
  • Föstudaga:  7:00 - 20:00
  • Laugardaga: 8:00 - 18:00

Íþróttahúsið er alla jafna lokað á hátíðisdögum, yfir jól og áramót og 6 vikur á miðju sumri.

Verð:

  • Árskort: 12.000 kr
    • Kortin eru seld á þjónustuborðinu í Háskólatorgi.
    • Aðgangskort gilda í alla auglýsta opna tíma í íþróttasal, tækjasal og gufubað.
    • Leiga á íþróttasal: Lokaðir hópar, 45 mín. stund: 3.000 / 4.000 kr. Leigjandi greiðir að lágmarki fyrir 10 tíma fyrirfram.
      Til að leigja íþróttasal, hafið samband við ithrottahus@hi.is.

HáFit - fagleg fjarþjálfun www.hafit.is.

Starfsfólk

Starfsmenn íþróttahúss: Ari Hauksson og Pálmi Phuoc Du, GSM: 8321309.

Göngu- og hlaupaleiðir

Góðar göngu- og hlaupaleiðir eru nærri Háskóla Íslands, bæði á háskólasvæðinu á Melunum og í Stakkahlíð. Á myndunum hér fyrir neðan má finna kort með góðum göngu- og hlaupaleiðum. Þar er einnig að finna kort sem sýnir hversu lengi er verið að hjóla á háskólasvæðið frá ólíkum borgarhlutum en Háskólinn hvetur starfsmenn og stúdenta til þess að hjóla til og frá vinnu.

Göngu- og hlaupakort nærri háskólasvæði á Melunum.
Göngu- og hlaupakort nærri háskólasvæðinu í Stakkahlíð.
Kort sem sýnir hversu lengi er verið að hjóla á háskólasvæðið frá ólíkum borgarhlutum.
Frá Íþróttahúsi
Frá jógatíma
Nánari upplýsingar