Matvælafræði
180 eða 240 einingar - Doktorspróf
Fjölbreyttar og hagnýtar rannsóknir í tengslum við atvinnulífið undir leiðsögn frábærra vísindamanna. Öflugt samstarf milli kennara og virtra háskóla í Evrópu og Bandaríkjum. Frjótt rannsóknaumhverfi og fjöldi tækifæra í boði.
Um námið
Doktorsnám í matvælafræði er 180e/240e rannsóknaþjálfun.
Nemendur ljúka sem svarar eins árs námi í námskeiðum á sínu fagsviði og svo rannsóknaverkefni í samvinnu við kennara og aðra leiðbeinendur og sérfræðinga.
Að doktorsnámi loknu á nemandinn að vera vel undirbúinn að starfa sjálfstætt að vísindum.
Rannsóknaáherslur í doktorsnámi
- Matvælaefnafræði
- Matvælavinnsla
- Matvælaverkfræði
- Matvælaörverufræði
- Öryggi matvæla
- Líftækni
- Vöruþróun
MS-próf í matvælafræði eða skyldum námsgreinum
Að námi loknu
Matvælafræðingar starfa við flest framleiðslufyrirtæki landsins og koma m.a. að vöruþróun, nýsköpun, framleiðslu, gæðaeftirliti og fleiri þáttum sem tryggja að neytendur fái í hendur holl og góð matvæli, bæði á innlendum og erlendum markaði. Þeir starfa einnig á rannsókna- og eftirlitsstofnunum, á heilbrigðisstofnunum, menntastofnunum og hjá lyfjafyrirtækjum.
Dæmi um starfsvettvang
- Vöruþróun
- Eftirlitsstörf
- Stjórnun og ráðgjöf
- Rannsóknir
- Þróunarhjálp
- Markaðsmál
- Kennsla
Félagslíf
Hnallþóra er félag matvæla- og næringarfræðinema við Háskóla Íslands. Markmið félagsins er að gæta hagsmuna nemenda og efla samstöðu meðal þeirra.
Hnallþóra heldur uppi öflugu félagslífi, þar á meðal árshátíð og reglulegum vísindaferðum og heimsóknum til fyrirtækja og stofnana sem tengjast náminu.
Hafðu samband
Skrifstofa Matvæla- og næringarfræðideildar
Nýi Garður, 3. hæð
Sæmundargata 12,
102 Reykjavík.
Sími: 525 4999
mn@hi.is
Opnunartímar:
Mánudaga = lokað
Þriðjudaga – fimmtudags = opið 9 – 15
Föstudagar = opið 9 -12