Hér má nálgast algengar spurningar og svör um námið í Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild Almennt Hvað er Ugla og hvernig fæ ég aðgang? Ugla er innri vefur Háskóla Íslands. Allir nemendur fá úthlutað notendanafn og lykilorð sem veitir þeim aðgang. Á innra svæðinu geta nemendur fylgst með námsframvindu sinni, haft samband við kennara einstakra námskeiða, nálgast námsgögn, skoðað skilaboð frá kennurum og sent tölvupóst. Eftir að umsókn hefur verið samþykkt og þú hefur greitt skrásetningargjaldið þá getur þú úthlutað þér notandanafni og lykilorði að Uglunni með því að skrá þig inn á umsóknarsíðuna þína („Yfirlit umsókna“) með netfanginu og lykilorðinu sem þú bjóst til við skráningu í samskiptagátt Háskóla Íslands. Birting notandanafns og lykilorðs í Uglu varir í stuttan tíma í samskiptagáttinni og því mikilvægt að skrá niður hjá sér notandanafnið og lykilorðið þegar það birtist fyrst í gáttinni. Hvernig sæki ég um nám við Háskóla Íslands? Þú sækir um nám við HÍ með því að fylla út umsókn á vef skólans. Þar finnur þú einnig upplýsingar um umsóknarfrest, inntökuskilyrði, nauðsynleg fylgigögn, skrásetningargjöld og fleira. Hver er umsóknarfrestur til að sækja um grunnnám? Opið er fyrir umsóknir í grunnnám Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideildar alla jafna frá byrjun mars til 5. júní. Umsóknarfrestur í hjúkrunarfræði fyrir fólk með annað háskólapróf er til 15. apríl. Hver er umsóknarfrestur til að sækja um framhaldsnám? Umsóknarfrestur í framhaldsnám við Hjúkrunarfræðideild er 15. apríl fyrir innritun á haustmisseri en 15. október fyrir innritun á vormisseri, þar sem við á. Stundaskrá Hvenær eru stundaskrár birtar? Stundaskrárdrög haustmisseris eru yfirleitt birtar um miðjan júní. Endanlegar útgáfur stundaskráa eru síðan birtar í lok ágúst og eftir það má ekki færa til eða breyta tímum nema auglýsa það vel. Stundaskrárdrög vormisseris eru yfirleitt birtar byrjun desember. Endanlegar útgáfur stundaskráa eru síðan birtar í fyrstu viku janúar, rétt áður en kennsla hefst. Hjúkrunarfræði- og ljósmóðurfræðideild birtir stundaskrár seinna en aðrar deildir Háskóla Íslands vegna þess að skipulag námsins er flóknara en þekkist í öðrum deildum skólans. Drög að stundatöflum Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideildar eru birtar á vef deildarinnar. Nemendur við deildina skoða sína stundatöflu á innri vefnum Uglu, með því að smella þar á Uglan mín → Stundataflan mín. BS-nám Hvað þarf ég að gera til að geta innritast í BS-nám í hjúkrunarfræði? Til að hefja nám við Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild skulu nemendur hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegu prófi frá erlendum skóla. Þá nægir lokapróf frá verk- og raunvísindadeild Keilis (háskólabrú) til inngöngu í Hjúkrunarfræðideild. Nemendur sem lokið hafa aðfararnámi að öðrum háskólum en Háskóla Íslands geta sótt um undanþágu frá þessum inntökuskilyrðum. Sjá nánar um inntökuskilyrði í BS-nám í hjúkrunarfræði. Hvernig get ég undirbúið mig undir BS nám í hjúkrunarfræði? Æskilegur undirbúningur samkvæmt aðalnámskrá framhaldsskóla 2011 er: 3. hæfniþrep í íslensku, ensku og stærðfræði. Auk þess er mælt með því að nemandi hafi lokið 10 ein á 3. þrepi í efnafræði og/eða stærðfræði og 5 ein á 3. þrepi í líffræði. Þeim sem ekki hafa góða undirstöðu í efnafræði er bent á námskeiðið Aðfaranám í almennri efnafræði hjá Endurmenntun Háskóla Íslands sem alla jafna er haldið í ágústmánuði. Er fjöldatakmörkun í Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild Háskóla Íslands? Ekki er fjöldatakmörkun til að hefja BS-nám við Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild. Hins vegar, eru haldin samkeppnispróf í desember ár hvert, og er 120 nemendum með hæðstu meðaleinkunnir boðið námspláss á vormisseri næsta árs. Fjöldatakmörkun er í hjúkrunarfræði fyrir fólk með annað háskólapróf sem miðast að hámarki við 10 nemendur. Fullnægir nám frá Háskólabrú Keilis inntökuskilyrðum? Já lokapróf frá frumgreinadeild Keilis (háskólabrú) nægir til inngöngu í Hjúkrunarfræðideild. Sjá nánar um inntökuskilyrði í BS-nám í hjúkrunarfræði. Er hægt að byrja nám til BS gráðu á vormisseri? Nei því miður er ekki er hægt að hefja grunnnám í hjúkrunarfræði á vormisseri. Hversu langt er BS-nám í hjúkrunarfræði? Nám til BS-gráðu í hjúkrunarfræði tekur fjögur ár. Skipulag námsins er með þeim hætti að nemendur eru sífellt að byggja ofan á þekkingu frá fyrri misserum. Í ýmsum námskeiðum eru forkröfur og þurfa nemendur að hafa lokið námskeiðum sem eru nauðsynlegur undirbúningur til að geta skráð sig í þau námskeið. Sjá nánar um BS-nám í hjúkrunarfræði. Get ég fengið fyrra nám metið? Nemendur sem teknir hafa verið inn í BS nám í hjúkrunarfræði geta óskað eftir að fá fyrra nám metið. Námsmatsnefnd Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideildar hefur umsjón með mati á fyrra námi. Umsóknarfrestur um mat á fyrra námi er til 5. júní fyrir nám á komandi haustmisseri og 1. nóvember fyrir nám á komandi vormisseri. Umsókn um mat á fyrra námi má finna í Uglu. Lokið námskeið skal að jafnaði samsvara a.m.k. 2/3 hlutum af innihaldi þess námskeiðs sem það á að jafngilda, auk þess sem heildareiningafjöldi þess námskeiðs sem á að meta verður að vera a.m.k. jafn mikill. Námskeið er ekki metið nema nemandi hafi lokið því með að minnsta kosti einum heilum yfir lágmarkseinkunn. Að jafnaði eru fyrri námskeið ekki metin á móti námi í Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild Háskóla Íslands ef meira en fimm ár eru liðin síðan þeim var lokið. Niðurstaða mats er send á hí netfang nemanda þegar námsmatsnefnd hefur tekið umsókn fyrir. Býður Hjúkrunarfræðideild upp á fjarnám? Hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands er kennd í staðnámi. Færnisetur Er skyldumæting í alla tíma í Færnisetri? Skyldumæting er í alla tíma í Færnisetri og tapast próftökuréttur ef ekki er mætt nema ef um veikindi er að ræða. Veikindi í Færnisetri- hvað á að gera? Forfallist nemandi í tíma í Færnisetri ber honum að láta umsjónarkennara námskeiðs vita með tölvupósti. Get ég mætt í annan tíma ef ég forfallast? Nemendur geta ekki mætt í annan tíma en þann sem þeim hefur verið úthlutað vegna fjölda í hverjum tíma. Ef nemendur geta alls ekki mætt í tíma með sínum hóp verða þeir að skipta innbyrðis. Kennari mun ekki aðstoða nemendur við skipti á tímum. Námsframvinda Er hægt að fá leyfi frá námi, og hvernig er það gert? Stúdent getur óskað eftir að vera skráður í leyfi á námstímanum. Það gerir hann með því að senda beiðni til verkefnastjóra grunnnáms eða framhaldsnáms. Sé leyfið veitt greiðir nemandi leyfisgjald hjá Nemendaskrá. 48. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009 segir um námsleyfi að óski stúdent eftir að gera hlé á námi sínu í heilt kennslumisseri eða lengur, skuli hann þá leita heimildar viðkomandi háskóladeildar og skrá sig árlegri skráningu, meðan á leyfistíma stendur. Námsleyfi lengir ekki hámarks námstíma. Að öllu jöfnu er stúdentum í Hjúkrunarfræðideild ekki veitt námsleyfi á fyrsta námsári. Hver er tímaramminn til að klára námið? Hámarkstími til námsins er 6 ár. Hversu oft má falla í námskeiði? Þreyta má tvisvar sinnum próf í hverju námskeiði. Einu sinni á námsferli er hægt að óska eftir undanþágu til þriðju próftöku í sama námskeiði. Próf og einkunnir Hvenær eru próf? Almenn próf eru samkvæmt reglum háskólans í lok vor- og haustmisseris, sjá nánar í kennslualmanaki. Sjúkra- og endurtökupróf eru haldin í fjóra til sex daga í kjölfar almennra próftímabila samkvæmt nánari ákvörðun prófstjóra. Sjá nánar reglur um fyrirkomulag prófa og sjúkra- og endurtökuprófa. https://www.hi.is/haskolinn/reglur_fyrir_haskola_islands#56 https://www.hi.is/haskolinn/reglur_fyrir_haskola_islands#57 Hvar finn ég próftöflur? Þín próftafla er í Uglunni: Uglan mín → Námskeiðin mín → Próf. Einum til þremur dögum fyrir prófið getur þú séð í hvaða byggingu, stofu og við hvaða borð þú tekur prófið. Þarf ég að skrá mig í próf? Skráning í námskeið er jafnframt skráning í próf. Þú þarft eingöngu að skrá þig sérstaklega í sjúkrapróf og endurtökupróf og það gerir þú í Uglu. Ef slík próf eru utan auglýsts próftíma þarf í sumum tilvikum að hafa samband við Nemendaskrá til að fá aðstoð við skráningu í sjúkra- og endurtökupróf. Hvernig skrái ég mig úr prófi? Skráning úr námskeiði er jafnframt skráning úr prófi (Uglan mín → Námskeiðin mín. Þar aftan við hvert námskeið er tákn fyrir úrsögn sem hægt er að smella á. Athugaðu að staðfesta þarf valið svo úrsögn taki gildi). Þú þarft að hafa sagt þig úr námskeiði í síðasta lagi 15. september vegna prófa á haustmisseri og 1. febrúar vegna prófa á vormisseri. Viljir þú af einhverjum ástæðum skrá þig úr endurtökuprófi sendir þú Nemendaskrá tölvupóst nemskra@hi.is (með nafni, kennitölu, námskeiðsheiti og -númeri) en gjald vegna endurtökuprófa er ekki endurgreitt. Skráir þú þig ekki úr prófi, sem þú ætlar ekki að taka, jafngildir það falli á prófinu. Hvað ef ég fell í prófi? Meginreglan er sú að heimilt er að þreyta próf í hverju námskeiði tvisvar. Ef þú fellur eða mætir ekki í lokapróf er þér heimilt að taka það aftur næst þegar lokapróf er haldið í viðkomandi námskeiði svo lengi sem það er innan árs frá upphaflegu prófi. Auk þess er deildum heimilt, í samráði við prófstjóra, að halda endurtökupróf í einstökum námskeiðum. Slík endurtökupróf eru einungis fyrir stúdenta sem áður hafa þreytt próf í viðkomandi námskeiði. Greiða þarf 6.000 kr. fyrir hverja skráningu í endurtökupróf. Þú skráir þig í endurtökupróf með því að smella á borða í Uglu eða á Þjónustuborðinu Háskólatorgi. Hvenær birtast einkunnir? Einkunnir skulu birtar í síðasta lagi tveimur vikum eftir próf. Hvernig fer prófsýning fram? Stúdent getur óskað eftir því að fá útskýringar kennara á mati skriflegrar prófúrlausnar sinnar innan 15 daga frá birtingu einkunnar. Ýmist halda kennarar sérstakar prófsýningar fyrir þá sem óskað hafa eftir slíku eða hitta hvern og einn stúdent samkvæmt samkomulagi. Kennarar ráða hvernig þeir standa að prófsýningu. Hvað get ég gert ef ég er ósátt/ur við niðurstöður prófs? Teljir þú að brotið sé á rétti þínum varðandi kennslu, próf, námsmat, einkunnagjöf, mat á námsframvindu eða annað sem snýr að kennslu og prófum skaltu senda skriflegt erindi til deildarforseta. Sjá nánar í kennsluskrá, um ferli kvartana og kærumála. https://ugla.hi.is/kennsluskra/index.php?tab=skoli&chapter=content&id=24... Veikindi Hvað ef ég er veik/veikur í prófi? Stúdent sem veikist og getur þar af leiðandi ekki þreytt próf, ber að tilkynna veikindi með tölvupósti til Nemendaskrár innan þriggja daga frá prófdegi. Hið sama gildir ef barn stúdents veikist. Veikist stúdent í prófi ber honum að vekja athygli prófgæslumanns sem skrifar athugasemd um það á prófúrlausn. Nemandi skráir sig í sjúkrapróf með því að smella á bláa borðann sem birtist efst í Uglu eftir að veikindi hafa verið skráð. Ef um hlutapróf er að ræða þarf að tilkynna veikindi til umsjónarkennara námskeiðs. Ferðakostnaður nemenda Hversu mikið er endurgreitt? Deildin endurgreiðir sem samsvarar strætófargjaldi. Ef nemendur kjósa að fara á einkabíl er endurgreitt sem nemur fargjaldi með strætisvagni. Nemendur sem fara með flugi út á land þurfa að bóka flugið og leggja út fyrir því. Mælt er með því nemendur bóki flug tímanlega til að fá fargjald á sem lægstu verði. Hvernig fæ ég endurgreiddan ferðakostnað? Til að fá endurgreiddan ferðakostnað þarf að senda bókunar- og greiðslustaðfestingu ásamt bankaupplýsingum rafrænt á verkefnastjóra fjármála Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideildar. Það er nauðsynlegt að kvittanir séu í frumriti og á nafni nemenda (skv. kröfu Ríkisendurskoðunar), annars getur bókhald HÍ ekki endurgreitt ferðakostnað. Ferðist tvö eða fleiri saman í einkabifreið er aðeins endurgreiddur kostnaður þeirrar bifreiðar sem notuð er til að komast til og frá áfangastað. Ekki er greiddur ferðakostnaður á meðan á dvöl stendur. Hvað gerist ef ferðakostnaður fer umfram viðmiðin? Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild endurgreiðir nemendum ferðakostnað eftir því sem við á. Sjá frekari upplýsingar í Uglu. Ef ferðakostnaður nemanda fer umfram viðmiðin sem deildin hefur tekið saman þarf nemandi að greiða mismuninn. facebooklinkedintwitter