Reglur um árangurstengda tilfærslu starfsþátta í Háskóla Íslands, nr. 971/2009
með síðari breytingum
1. gr.
[Háskóli Íslands starfrækir sjóð til að fjármagna tímabundnar breytingar á starfsskyldum [aðjúnkta 1, lektora og dósenta]2 sem ná afburða árangri í rannsóknum, sbr. reglur nr. 605/2006 um starfsskyldur kennara og sérfræðinga við Háskóla Íslands.]1 Háskólaráð ákvarðar ár hvert framlag í sjóðinn við afgreiðslu fjárhagsáætlunar háskólans fyrir komandi ár. Úthlutun úr sjóðnum rennur til fræðasviða.
1Breytt með 1. gr. rgl. nr. 225/2015.
2Breytt með 1. gr. rgl. nr. 170/2020.
2. gr.
Háskólaráð skipar þriggja manna stjórn sjóðsins. Stjórn sjóðsins ákveður árlega í samræmi við reglur þessar og fjárhagslega stöðu sjóðsins hversu miklu er úthlutað til fræðasviða. [Ákvörðun stjórnar skal liggja fyrir um miðjan september og gildir hún fyrir næsta almanaksár.]1
1Breytt með 2. gr. rgl. nr. 225/2015.
3. gr.
Forseti fræðasviðs getur sótt um úthlutun úr sjóði samkvæmt reglum þessum ef hann ákveður að nýta heimild til að færa vinnuskyldu kennara tímabundið frá kennslu til rannsókna vegna árangurs í rannsóknum sbr. 4. gr.
4. gr.
[Heimilt er að úthluta úr sjóðnum vegna starfsmanna sem uppfylla annað af eftirfarandi skilyrðum:
- Stigaleið. [Kennarar með flest rannsóknastig á ári úr tilteknum flokkum matskerfis Háskóla Íslands (aflstig), sbr. töflu í lok 7. gr. reglna nr. 1300/2020 um framgang akademísks starfsfólks við Háskóla Íslands, sbr. einnig lið 1, Rannsóknir, í 8. gr. sömu reglna.]2 Miðað er við þriggja ára meðaltal. Stjórn sjóðsins er heimilt að minnka eða auka kröfur um rannsóknastig í samræmi við fjárhagslega stöðu sjóðsins hverju sinni.
- Tilnefningarleið. Forseta fræðasviðs er heimilt að gera tillögu um að einstakir kennarar hljóti tímabundna tilfærslu vinnuskyldu frá kennslu til rannsókna, sbr. 3. gr. Með hverri slíkri tillögu skal fylgja rökstuðningur frá forseta fræðasviðs í samræmi við neðangreind sjónarmið:
- Kennari hefur hlotið óvenju háa styrki til rannsókna úr samkeppnissjóðum.
- Rit kennara hafa verið birt í virtustu tímaritum heims eða hjá virtustu forlögum heims á viðkomandi fræðasviði.
- Rannsóknir kennara vekja óvenju mikla athygli.
- Kennari hefur hlotið eftirsótt verðlaun á fræðasviði sínu.
- Kennari hefur sýnt annan afburða árangur í rannsóknum sínum.
- Kennari þarf að verja umtalsverðum tíma í að undirbúa umsókn um styrk úr erlendum samkeppnissjóði.
Tilnefningar skulu berast sjóðnum fyrir 1. september ár hvert. Stjórn sjóðsins skal miða við að a.m.k. 80% úthlutunar hverju sinni sé vegna kennara sem uppfylla skilyrði 1. liðar 1. mgr. Miðað er við að hvert fræðasvið fái hlutdeild í heildarúthlutun eftir stigaleið í samræmi við fjölda akademískra starfsmanna sem eru með flest rannsóknastig m.v. meðaltal síðastliðinna þriggja ára, þó þannig að tryggt verði að hvert fræðasvið háskólans fái a.m.k. 1/10 úthlutana ár hvert eftir stigaleið. Við val á kennurum sem fá tilfærslu vinnuskyldu frá kennslu til rannsókna innan hvers fræðasviðs er síðan byggt á fjölda aflstiga.]1
1Breytt með 3. gr. rgl. nr. 225/2015.
2Breytt með 1. gr. rgl. nr. 492/2021.
5. gr.
[Tilfærsla vinnustunda frá kennslu til rannsókna getur að jafnaði verið fjórðungur kennsluskyldu viðkomandi kennara. Stjórn sjóðsins er þó heimilt að ákveða annað hlutfall þegar sérstaklega stendur á. Fræðasviði er heimilt að nýta fé sem úthlutað hefur verið í þágu annarra kennara ef svigrúm er til þess. Kennari sem nýtur tilfærslu þarf að kenna meira en sem samsvarar helmingi af veittum kennsluafslætti auk nýrrar kennsluskyldu áður en yfirvinna vegna kennslu myndast.]1
1Breytt með 4. gr. rgl. nr. 225/2015.
6. gr.
Sjóðurinn veitir viðkomandi fræðasviði styrk sem nemur áætluðum meðaltalskostnaði við tilfærslu starfsþátta kennara. Stjórnin ákveður árlega hver skuli teljast meðaltalskostnaður vegna tilfærslu, sem nemur [fjórðungi kennsluskyldu.]1
1Breytt með 5. gr. rgl. nr. 225/2015.
7. gr.
Stjórn sjóðsins getur sett sér nánari vinnureglur sem háskólaráð staðfestir.
8. gr.
Reglur þessar, sem samþykktar hafa verið í háskólaráði Háskóla Íslands, eru settar samkvæmt heimild í 5. mgr. 15. gr. laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla. Reglurnar taka þegar gildi.
Háskóla Íslands, 16. nóvember 2009.