Hér má lesa spurningar og svör sem tengjast breytingu á meistaranámi úr 90 ECTS eininga námi (MS-90) í 120 ECTS eininga nám (MS-120). Lykildagsetningar í lotunámi Lykildagsetningar í lotunámi Endurskoðun fer fram í fyrstu viku hverrar lotu þ.e. nemendur verða að skrá sig í og úr námskeiðum á þeim tíma. Nemendur þurfa að senda beiðni um skráningu í eða úr námskeiðum í lotu II og IV til Nemendaskrá. Senda þarf beiðni úr HÍ netfangi nemanda til nemskra@hi.is. Mjög mikilvægt að skrá sig úr námskeiðum á réttum tíma. Vegna prófatöflugerðar er ekki alltaf hægt að verða við því að bæta við námskeiðum í endurskoðunarvikum í lotu 2 og 4. Því er mikilvægt að fara vel yfir skráningu strax í upphaf. Hvernig virka skráningar í og úr lotubundnum námskeiðum? Nemendur velja sér námskeið fyrir allt námsárið við innritun eða á hefðbundnum skráningartíma ef um áframhaldandi nám er að ræða. Nemendur geta breytt skráningu sinni í 1. viku hverrar lotu og ekki eftir það. Þegar 2. vika lotunnar hefst er ekki mögulegt að gera fleiri breytingar á skráningu. Þetta á við bæði fyrir skráningar í ný námskeið og úrskráningar úr námskeiðum. Nemendur þurfa að senda beiðni um skráningu í eða úr námskeiðum í lotu II og IV til Nemendaskrá. Senda þarf beiðni úr HÍ netfangi nemanda til nemskra@hi.is. Er í lagi að vera skráður í námskeið sem kennd eru á 1. og 2. ári samtímis? Nemendur verða að gæta að því að ef þeir taka námskeið á öðru ári í lotunáminu þá getur orðið skörun í stundatöflu við námskeið sem kennd eru á fyrsta ári. Að öðru leiti gerir deildin ekki athugasemdir við að nemendur taki námskeið bæði af 1. og 2. kennsluári. Hvernig er lotukerfið skipulagt? Námsfyrirkomulagi í framhaldsnámi er þannig að kennt er í lotum, þannig er hvoru misseri skipt upp í tvær lotur og nemendur taka að jafnaði tvö námskeið í hvorri lotu (eða skila sambærilegri vinnu við lokaritgerð). Hver lota samanstendur af sjö kennsluvikum og einni viku fyrir námsmat og próf. Nemendur því að jafnaði að ljúka 12 námskeiðum. Einingafjöldi námskeiða Eftir breytingu urðu öll námskeið 7,5 e. Nemendur sem þurfa að blanda saman 6 og 7,5 eininga námskeiðum gætu því brautskrifast með umframeiningar. Hvernig eru námskeiðin kennd? Almennt er fyrirkomulagið þannig að í hverju námskeiði eru tímar tvisvar í viku og þá samfellt þann dag. Það fer eftir vali og stundatöflum hvort nemandi er í einu námskeiði á dag (og er þá í tímum fjóra daga í viku) eða hvort tíma í mismunandi námskeiðum beri upp á sama dag. facebooklinkedintwitter