Kennarar Tannlæknadeildar stunda fjölbreyttar rannsóknir í samvinnu við erlenda háskóla og ýmsar rannsóknarstofnanir innanlands sem utan.
Undanfarin ár hefur rannsóknarvirkni kennara við Tannlæknadeild eflst verulega. Frumrannsóknir í samstarfi við aðrar deildir háskólans hafa skilað alþjóðlegum viðurkenningum. Deildin tekur enn fremur þátt í stefnumarkandi samstarfsverkefnum á vegum Evrópusambandsins.
Tannlæknanemar geta tekið rannsóknarverkefni sem valgrein og gefst þannig tækifæri til að læra um rannsóknastarfsemi og annast sjálfir rannsóknir undir leiðsögn umsjónarkennara. Nemendur á sjötta ári taka árlega þátt í keppni norrænna og hollenskra tannlæknanema, sem haldin er í Kaupmannahöfn. Að loknu kandidatsnámi við Tannlæknadeild geta nemendur skráð sig í rannsóknartengt meistaranám við deildina.
Tannlæknadeild býður upp á rannsóknatengt framhaldsnám í tannlæknavísindum.
Tannlækningastofnun
Tannlækningastofnun (TLS) er rannsókna-, fræðslu- og þjónustustofnun í tannlæknisfræði og skyldum greinum við Tannlæknadeild.
Formaður Tannlækningastofnunar er Svend Richter, dósent.