Online Learning Agreement – OLA Aðgangur Nemendur skrá sig inn í OLA-kerfið og nota til þess HÍ-netfangið sitt (xxx@hi.is). • Ekki nota „Log in with Google“ eða önnur persónuleg netföng Reglur um námskeiðaval • Nemendur verða að vera skráðir í 30 ECTS á misseri – 60 ECTS á ári nema þeir hafi fengið sérstaka undanþágu. • Mjög mikilvægt er að námssamningurinn sé réttur og að hann sé alltaf uppfærður ef námskeiðaval breytist. Það flýtir fyrir námsmati við lok dvalar og tryggir að skiptinámið verði metið við heimkomu. Nemendur fylla inn persónuupplýsingar og upplýsingar um sitt nám og geta breytt því undir MY ACCOUNT. Skref 1 – STUDENT INFORMATION Hér fylla nemendur inn persónuupplýsingar. Meðal annars: • Academic year – skólaár skiptinámsins • Study cycle – námsstig Skref 2 – SENDING INSTITUTION INFORMATION Hér koma upplýsingar um HÍ sem er Sending Institution. Sending Responsible Person er alþjóðatengiliður í deild nemanda. Listi yfir tengiliði Hér þarf einnig að setja inn Sending Administrative Contact Person en það er í öllum tilfellum: Árný Lára Sigurðardóttir - outgoing.europe@hi.is / +354 525 4311 Skref 3 – RECEIVING INSTITUTION INFORMATION Hér fylla nemendur inn upplýsingar um gestaskóla. Athugið að nöfn gestaskólanna í fellilistanum eru þeirra lögheiti og geta verið á tungumáli gestalandsins. Receiving Responsible Person er aðilinn í gestaskólanum sem skrifar undir námssamninginn fyrir þeirra hönd. Gestaskólinn gefur upplýsingar um hver þessi aðili er. Við mælum með að nemendur finni upplýsingasíðu fyrir „incoming exchange students“ á vefsíðu gestaskólans en þessar upplýsingar má oft finna þar. Ef nemendur finna engar upplýsingar um tengiliði geta þeir haft samband við gestaskólann. Ef gestaskólinn er með fleiri tengiliði sem annast skiptinám nemenda er hægt að setja þá inn sem Receiving Administrative Contact Person. Skref 4 – PROPOSED MOBILITY PROGRAMME Hér koma inn upplýsingar um námskeiðaval þar sem nemendur telja upp námskeiðin sem þeir vilja taka við gestaskólann og deild þeirra í HÍ hefur samþykkt. Nemendur verða að vera skráðir í 30 ECTS á misseri – 60 ECTS á ári. Mjög mikilvægt er að skrá jafn margar einingar í TABLE A (Study Programme at the Receiving Institution) og TABLE B (Recognition at the Sending Institution). Ef nemendur eru í 30 ECTS í gestaskólanum þá verður að koma fram hvernig þessar 30 ECTS verða metnar til baka í HÍ. Fyrst skrá nemendur áætlað tímabil dvalarinnar. Til að bæta við námskeiðum velja nemendur „Add Component to Table A“ og skrá þar inn nafn og kóða námskeiðsins í gestaskólanum, einingafjölda og tímabil. Til að bæta við fleiri námskeiðum er hægt að velja aftur „Add Component to Table A“. Hægt er að setja hlekk inn á kennsluskrá gestaskólans. Nemendur skrá einnig upplýsingar um á hvaða tungumáli námið úti verður – oftast er það enska. Síðan skrá nemendur hæfni í tungumálinu, A1 er verst og C2 er best Nemendur fylla næst út „TABLE B“ á sama hátt en þar eru upplýsingar um hvernig námið verður metið til baka í HÍ. Námskeið metin sem val: Ef nemendur fá námskeið metin til baka sem valnámskeið þá setja þeir inn „Electives“ og þann fjölda eininga sem verða metnar sem val. Námskeið metin í stað skyldu: Ef nemendur fá námskeið metin til baka sem skyldunámskeið þá verður að koma fram hvaða skyldunámskeið það er og hve margar einingar fást metnar. Til þess að það komi skýrt fram hvaða námskeið nemendur eru að fá metið sem skyldunámskeið þá geta nemendur merkt námskeiðin með tölustöfum. Sem dæmi má skrá „Ethics (1)“ í TABLE A og svo „Inngangur að siðfræði (1)“ í TABLE B svo að það sé skýrt að Námskeiðið „Ethics“ verði metið í stað skyldunámskeiðsins „Inngangur að siðfræði“. Hægt er að setja hlekk inn á viðeigandi síðu kennsluskrár HÍ. Nemendur þurfa ekki að fylla út Provisions applying if the student does not complete successfully some educational components. Skref 5 – VIRTUAL COMPONENTS Ef nemendur fara í hefðbundið skiptinám í eitt til tvö misseri í gestaskólanum þá þarf ekki að fylla út Table C. Skref 6 – COMMITMENT Síðasta skrefið er að skrifa undir rafrænt. Kvittið undir með mús, eða fingrum ef þið gerið þetta í síma eða spjaldtölvu. Þegar búið er að skrifa undir rafrænt þá velja nemendur „Sign and send the Online Learning Agreement to the Responsible person at the Sending Institution for review“ en þá sendist samningurinn á deild nemenda. Næstu skref Næst fer alþjóðatengiliður í deild nemanda yfir námssamninginn. Ef deild samþykkir ekki námskeiðaval þá hafna þau námssamningnum og nemandi verður að lagfæra. Nemandi fær tilkynningu um það í tölvupósti. Ef deild samþykkir allt á námssamningnum þá skrifa þau undir samninginn og hann sendist sjálfkrafa til gestaskólans sem kvittar einnig undir. Þegar allir hafa kvittað undir fær nemandi tilkynningu um það. Breytingar á námssamningum Þurfi nemendur að gera einhverjar breytingar á námskeiðavali á meðan á dvölinni stendur þá er það gert í gegnum þetta kerfi. Ef gestaskólinn kvittaði ekki undir rafrænt þurfa nemendur að gera alveg nýjan samning með nýju námskeiðunum. Ef skólinn kvittaði undir rafrænt geta nemendur valið “Apply Changes“ og gert breytingar á samningnum, eytt út námskeiðum og bætt við nýjum. Mikilvægt er að skrá inn í Table B ef breytingar verða á námsmatinu í HÍ. Þegar nemendur hafa fyllt inn breytingarnar og skrifað undir sendist samningurinn sjálfkrafa á alþjóðatengilið í deild nemenda í HÍ og að lokum á gestaskóla. facebooklinkedintwitter