Heilbrigðisvísindabókasafn LSH og HÍ þjónar starfsfólki Landspítala og kennurum og nemendum Heilbrigðisvísindasviðs. Bókasafnið er í Eirbergi, Eiríksgötu 34 Sími: 543 1450 Opið: Mánudaga - föstudaga frá kl. 8 - 16 Vefur: Heilbrigðisvísindabókasafn Landspítala og Háskóla Íslands Rafræn tímarit, rafbækur og gagnasöfn Safnkosturinn er nánast allur rafrænn. Fyrir utan séráskriftir safnsins að tímaritum, sem skipta hundruðum, og gagnasöfnum, s.s. PsycInfo, Scopus, Cinahl og UpToDate, þá er safnið þátttakandi og greiðandi í landsaðgangi. Safnið býr einnig yfir þó nokkrum rafbókakosti. Til þess að nálgast rafrænu gögnin utan Landspítalasvæðisins þarf að sækja um aðgang á heimasíðu bókasafnsins. Gagnasöfn Rafræn tímarit Prentað efni Bókasafnskerfið Leitir.is/Gegnir.is veitir upplýsingar um bækur og annað prentað efni safnsins. Þar er einnig að finna tengla í rafræn tímarit og bækur. Önnur þjónusta Starfsfólk safnsins býður aðstoð við heimildaleitir, millisafnalán, upplýsingaþjónustu af ýmsu tagi, kennslu og kynningar fyrir hópa og fleira. Sjá nánar á vef bókasafnins. facebooklinkedintwitter