Reglur um Raunvísindastofnun Háskólans, nr. 685/2011
1. gr. Almennt.
Raunvísindastofnun Háskólans (RH) er vettvangur grunnrannsókna á fræðasviðum sínum og starfar í alþjóðlegu vísindaumhverfi. Stofnunin er hluti af Raunvísinda- og Jarðvísindadeildum [og heyrir undir]1 Verkfræði- og [náttúruvísindasvið]1 Háskóla Íslands eins og nánar er kveðið á um í reglum þessum.
1Breytt með 1. gr. rgl. nr. 382/2024.
2. gr. Hlutverk.
Hlutverk Raunvísindastofnunar Háskólans er að:
a) | Afla nýrrar þekkingar með grunnrannsóknum og nytjarannsóknum í [raun- og jarðvísindum.]1 |
b) | Hýsa öndvegissetur og sérstaka aðstöðu viðamikilla rannsókna. |
c) | Annast þjónusturannsóknir eftir því sem við á og veita ráðgjöf um [raun- og jarðvísindi, s.s.]1 náttúruvá, nýtingu auðlinda og umhverfismál. |
d) | Starfa með innlendum og erlendum háskólum, rannsóknarstofnunum og fyrirtækjum með gagnkvæma miðlun á þekkingu í huga og til að afla þekkingar fyrir íslenskt samfélag. |
e) | Veita ráðgjöf um málefni [jarð- og raunvísinda]1 og miðla þekkingu með því að birta og kynna niðurstöður rannsókna á fræðasviðum sínum. |
f) | Veita nemendum í rannsóknarnámi við Raunvísinda- og Jarðvísindadeildir aðstöðu og aðgang að búnaði til rannsóknarstarfa [...]1 |
g) | Efla kennslu með því að byggja upp frjótt rannsóknarumhverfi fyrir nemendur og þjálfa þá í vísindalegri hugsun og vinnubrögðum í raunvísindum. |
1Breytt með 2. gr. rgl. nr. 382/2024.
3. gr. Stjórnskipulag.
Raunvísindastofnun Háskólans skiptist í tvær faglega sjálfstæðar stofnanir:
- [Eðlisvísindastofnun]1 Háskólans (EH).
- Jarðvísindastofnun Háskólans (JH).
Heimilt er að starfrækja sjálfstæðar rannsóknarstofnanir innan Raunvísindastofnunar, aðrar en þær sem tilgreindar eru í 1. mgr., eða koma á fót sjálfstæðum rannsóknarstofum innan stofnana Raunvísindastofnunar.
Stjórn Raunvísindastofnunar tekur ákvörðun um að koma á fót, hýsa eða leggja niður rannsóknarstofnanir eða -stofur skv. 2. mgr. að fengnu samþykki stofnunarfunda beggja stofnana sem tilgreindar eru í 1. mgr. og að fengnu samþykki forseta fræðasviðs. [Stjórn Raunvísindastofnunar setur rannsóknarstofnunum og -stofum starfsreglur og skipurit þar sem stjórnunareiningar eru tilgreindar og hvaða einingum starfsfólk tilheyrir. Skulu og þær hljóta staðfestingu stjórnar og forseta fræðasviðs.]1 Í starfsreglum um rannsóknarstofnanir [RH]1 og -stofur er nánar kveðið á um stjórnskipulag þeirra, skipun stjórnar og að hve miklu leyti heimildir skv. þessum reglum eru nýttar, m.a. um stofuskiptingu, hlutverk stofnunarfunda, stofufunda og annarra funda innan stjórnunareininga. Í starfsreglum um stofnanir skal einnig tilgreind aðkoma hvorrar stofnunar að deildarráði viðkomandi deildar Verkfræði- og náttúruvísindasviðs í samræmi við reglur viðkomandi deilda. Heimilt er í starfsreglum að kveða á um skipan nefnda um tiltekin verkefni og hafi nefndirnar jafnframt hlutverk við stjórn hverrar stofnunar.
[...]1
1Breytt með 3. gr. rgl. nr. 382/2024.
4. gr. Rannsóknar- og skrifstofuaðstaða.
[...]1
[Raunvísindastofnun veitir starfsliði sínu, sbr. 10. gr., aðstöðu og nauðsynlegan búnað eftir því sem unnt er í samráði við forseta verkfræði- og náttúruvísindasviðs.]1
Heimilt er að veita kennurum við aðrar deildir rannsóknaraðstöðu við Raunvísindastofnun, enda starfi [þau]1 á einhverju af fagsviðum stofnunarinnar.
1Breytt með 4. gr. rgl. nr. 382/2024.
5. gr. Stjórn RH.
Forseti Verkfræði- og náttúruvísindasviðs skipar fimm manna stjórn Raunvísindastofnunar til fjögurra ára í senn, frá 1. júlí að telja, þar af einn [stjórnarmeðlim]1 án tilnefningar. [Formaður stjórnar er kjörinn í rafrænni kosningu, sbr. 6. gr., af þeim hópum starfsliðs sem greinir í liðum a-d í 10. gr. og skal formaður vera úr hópi starfsfólks skv. a- eða b-lið 10. gr. Stjórnarformenn Eðlisvísindastofnunar Háskólans og Jarðvísindastofnunar Háskólans, sbr. 3. gr., eiga sæti í stjórn RH.]1 Starfsfólk Raunvísindastofnunar tilnefnir einn fulltrúa í stjórn úr hópi starfsfólks sem fellur undir d-lið [10.]1 gr. Fulltrúar, sem starfsfólk tilnefnir, sbr. 1. mgr., skulu valdir í skriflegri kosningu[, sbr. 6. gr.]1 Um atkvæðisrétt fer skv. ákvæðum [6. gr.]1
Í stjórn skulu sitja bæði karlar og konur og skal þess gætt að hlutfall kynjanna sé ekki minna en 40%, [sbr. 28. gr. laga nr. 150/2020]1 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Í þessu skyni skulu tilnefningaraðilar sbr. 1. mgr. tilnefna bæði karl og konu til setu í stjórn.
Stjórn Raunvísindastofnunar skiptir að öðru leyti með sér verkum.
1Breytt með 5. gr. rgl. nr. 382/2024.
[6. gr. Kjör til stjórnar RH.
Mánuði fyrir kosningar skipar stjórn RH þriggja manna kjörstjórn og ákveður hver gegnir formannsstörfum. Fulltrúar í kjörstjórn eru ekki kjörgengir.
Verkefni kjörstjórnar er að annast undirbúning og framkvæmd kosninga til stjórnar, hafa umsjón með gerð kjörskrár, ákveða kjörfund, annast framkvæmd kosninga, úrskurða í kærumálum vegna kosninga, sjá um utankjörfundaratkvæðagreiðslu og annað er að kosningunni lýtur.
Kjörgeng fyrir kjör stjórnarformanns er starfsfólk skv. a–b-liðum 10. gr. Atkvæðabær við kjör stjórnarformanns er starfsfólk skv. a–d-liðum 10. gr. Kjörgeng og atkvæðabær við kjör fulltrúa starfsfólks er starfsfólk skv. d-lið 10. gr.
Kosning er rafræn. Kjörstjórn útbýr rafrænan kjörseðil og gengur frá kjörskrá. Skal kjörskrá birt í Uglu þeim sem atkvæðisbær eru með rafrænum hætti eigi síðar en tíu dögum fyrir kjördag. Kærur skulu hafa borist kjörstjórn í síðasta lagi þremur dögum fyrir kjördag og skal úrskurður kjörstjórnar liggja fyrir eigi síðar en einum sólarhring fyrir kjördag og hefst þá kosning utan kjörfundar sem skal vera hefðbundin.
Skilyrði til þátttöku í rafrænni kosningu eru að nafn kjósanda sé á kjörskrá og að hann hafi auðkennt sig með fullnægjandi hætti áður en atkvæðagreiðsla fer fram.
Miða skal við að kjördagur sé sem næst miðjum maí og skal hann auglýstur tryggilega innan Raunvísindastofnunar. Kjörfundur skal standa í þrjá sólarhringa frá kl. 9 árdegis fyrsta daginn til kl. 9 árdegis fjórða daginn. Við rafræna kosningu er notað kerfi Háskóla Íslands. Kjörstjórn ákveður fyrirkomulag atkvæðagreiðslu utan kjörfundar.
Talning atkvæða hefst þegar að kjörfundi loknum.
Kosningar teljast lögmætar ef að minnsta kosti helmingur atkvæðisbærra greiðir atkvæði við kjör stjórnarformanns annars vegar, sbr. a–d-liði 10. gr. og hins vegar við kjör fulltrúa starfsfólks, sbr. d-lið 10. gr. Ef lágmarksfjöldi atkvæðisbærra manna greiðir ekki atkvæði skal kjósa að nýju viku eftir að úrslit fyrri umferðar liggja fyrir um þá tvo sem flest atkvæði fengu. Ef atkvæði tveggja eru jöfn í kjöri til stjórnarformanns skal kosið aftur á milli þeirra. Ef atkvæði eru enn jöfn í annarri umferð ræður hlutkesti hvor telst rétt kjörinn stjórnarformaður. Fulltrúi Eðlisvísindastofnunar eða Jarðvísindastofnunar í stjórn RH sem starfar ekki við sömu stofnun og kjörinn formaður verður varaformaður.
Sá er hlýtur flest atkvæði í kjöri til fulltrúa starfsfólks telst réttkjörinn í stjórn. Sá er hlýtur næstflest atkvæði verður varamaður. Falli atkvæði jafnt skal hlutkesti ráða hvor er kjörinn fulltrúi í stjórn og hvor varamaður.]1
1Breytt með 6. gr. rgl. nr. 382/2024.
[7.]1 gr. Verkefni stjórnar RH og stjórna stofnana hennar.
[Stjórn Raunvísindastofnunar fjallar um öll sameiginleg málefni stofnunarinnar, ber ábyrgð á fjármálum hennar gagnvart forseta verkfræði- og náttúruvísindasviðs, semur fjárhagsáætlanir og ákveður skiptingu fjárveitinga til stofnunarinnar. Stjórn sker úr um vafaatriði er upp kunna að koma og varða innri starfsemi stofnunarinnar. Fjárhagsáætlanir og skipting fjárveitinga skal lögð fyrir forseta verkfræði- og náttúruvísindasviðs til staðfestingar.
Stjórnir stofnana innan Raunvísindastofnunar semja rekstrar- og fjárhagsáætlun fyrir sína stofnun og eru ábyrgar fyrir fjárhagsáætlunum sínum gagnvart stjórn RH. Stjórn Raunvísindastofnunar ber ábyrgð á fjárhagsáætlun í heild og uppgjöri gagnvart forseta fræðasviðs.
Um húsnæði Raunvísindastofnunar gilda sömu reglur og um annað húsnæði Háskóla Íslands. Endanleg ráðstöfun húsnæðis er á forræði forseta verkfræði- og náttúruvísindasviðs í umboði rektors. Stjórn RH fer með það húsnæði sem stofnunin hefur til afnota. Áætlanir um húsnæðisþörf og rannsóknaraðstöðu skulu taka mið af sameiginlegum þörfum og starfsemi stofnunarinnar. Áætlanir skulu lagðar fyrir forseta verkfræði- og náttúruvísindasviðs.
Stjórn Raunvísindastofnunar og forseti fræðasviðs staðfesta starfsreglur og önnur atriði sem varða einstakar stofnanir og stofur, sbr. 3. gr.
Stjórn Raunvísindastofnunar stendur að útgáfu ársskýrslu um starfsemi stofnunarinnar og er hún hluti af ársskýrslu Háskóla Íslands.
Formaður stjórnar Raunvísindastofnunar og framkvæmdastjóri koma fram fyrir hönd hennar. Formenn stjórna einstakra stofnana eða stofa Raunvísindastofnunar koma fram fyrir hönd viðkomandi stofnunar eða stofu.]1
1Breytt með 8. gr. rgl. nr. 382/2024.
[8.]1 gr. Fundir stjórnar Raunvísindastofnunar.
Formaður stjórnar Raunvísindastofnunar boðar stjórnarfundi bréflega, eða í tölvupósti, með minnst þriggja daga fyrirvara. Í fundarboði skal tilgreina dagskrá fundar. Formaður stýrir stjórnarfundum.
Skylt er að boða stjórnarfund óski einn eða fleiri [stjórnarmeðlimir]1 þess. Sama gildir ef deildarforsetar aðildardeilda, sbr. 1. gr., forseti Verkfræði- og náttúruvísindasviðs eða rektor bera fram slíka ósk og hafa þeir þá málfrelsi og tillögurétt á fundinum.
Falli atkvæði jöfn á stjórnarfundi ræður atkvæði formanns eða þess sem gegnir formannsstörfum.
Halda skal gerðabók stjórnar og skulu staðfestar fundargerðir færðar í hana.
Afrit fundargerða skulu send forseta Verkfræði- og náttúruvísindasviðs. Fundargerðir skulu varðveittar í skjalasafni Háskóla Íslands.
1Breytt með 9. gr. rgl. nr. 382/2024.
[9.]1 gr. Starfsmannafundir Raunvísindastofnunar.
Formaður stjórnar Raunvísindastofnunar boðar til starfsmannafundar með minnst sjö daga fyrirvara. Í fundarboði skal tilgreina dagskrá fundar. [Stjórnarformaður]1 stýrir starfsmannafundum.
[Skylt er að boða til fundar ef forsetar aðildardeilda, forseti verkfræði- og náttúruvísindasviðs, rektor eða þriðjungur þeirra, sem rétt eiga til fundarsetu, æskir þess. Rétt til setu á starfsmannafundi á allt starfsfólk stofnunarinnar. Starfsfólk skv. liðum a–d í 10. gr. hefur atkvæðisrétt en starfsfólk skv. e- og f-lið 10. gr. hefur málfrelsi og tillögurétt án atkvæðisréttar. Starfsmannafundur er ályktunarbær ef meirihluti atkvæðisbærs starfsfólks sækir fund.]1
Starfsmannafundir eru vettvangur stjórnarinnar til þess að kynna störf sín. Starfsmannafundir fjalla um sameiginleg málefni stofnunarinnar og gera tillögur til stjórnar um meðferð sameiginlegra málefna.
Fundargerðir skulu varðveittar í skjalasafni Háskóla Íslands.
1Breytt með 10. gr. rgl. nr. 382/2024.
[10.]1 gr. Starfslið.
[Starfslið Háskóla Íslands sem starfar innan Raunvísindastofnunar er:
a) | Sérfræðingar, fræðimenn og vísindamenn sem ráðnir eru til sjálfstæðra rannsókna. |
b) | Kennarar við Háskóla Íslands sem veitt er rannsóknaraðstaða á stofnuninni. |
c) | Háskólamenntað rannsóknarfólk sem lýtur verkefnisstjórum við rannsóknarstörf, norrænir styrkþegar, nýdoktorar, svo og sérfræðingar með rannsóknarstöðustyrki. |
d) | Framkvæmdastjóri, starfsfólk í stoðþjónustu þar á meðal tæknimenntað starfsfólk og starfslið á skrifstofu. |
e) | Doktors- og meistaranemar sem ráðnir eru eða veitt rannsóknaraðstaða á stofnuninni. |
Um ráðningu starfsfólks fer eftir ákvæðum sameiginlegra reglna fyrir Háskóla Íslands. Forseti fræðasviðs setur nánari verklagsreglur um ráðningu starfsfólks.]1
1Breytt með 11. gr. rgl. nr. 382/2024.
[11.]1 gr. Starfsskyldur.
[Akademískir sérfræðingar, sem ráðnir eru til sjálfstæðra rannsókna, og kennarar við Háskóla Íslands, sem veitt er rannsóknaraðstaða á Raunvísindastofnun, njóta akademísks rannsóknarfrelsis.
Forseti fræðasviðs, í samráði við stjórn viðkomandi stofnunar, ákveður skiptingu starfsskyldna milli rannsókna, stjórnunar og annarra starfa fyrir starfsfólk sitt, samkvæmt ákvæðum reglna nr. 605/2006 um starfsskyldur kennara og sérfræðinga við Háskóla Íslands og skal skipting starfsskyldna koma fram í ráðningarsamningi. Ef við á skal tiltaka í ráðningarsamningi hve hátt hlutfall rannsóknarskyldunnar eru þjónusturannsóknir á vegum stofnunar. Um þjónusturannsóknir gilda ekki ákvæði um rannsóknarfrelsi. Starfsfólk skv. a- og b-lið 10. gr. eru verkefnisstjórar. Það ber faglega ábyrgð á verkefnum sínum og fjárhagslega ábyrgð gagnvart stjórn stofnunar, framkvæmdastjóra og/eða stofustjóra viðkomandi stofu, sé stofnun skipt með þeim hætti. Þegar sértekna er aflað skulu verkefnisstjórar og framkvæmdastjóri RH, gera skriflegan samning við kostunaraðila um skilgreiningu verkefnis, framvindu og greiðsluáætlun eftir því sem við á.
Óski verkefnaráðið starfsfólk skv. c-lið 10. gr. eftir því að sækja um styrk til sjálfstæðra rannsókna með aðstöðu á stofnuninni, skal það afla samþykkis framkvæmdastjóra, stofustjóra og formanns stjórnar viðkomandi undirstofnunar fyrir því og fara eftir þeim verklagsreglum sem gilda innan Háskóla Íslands um rannsóknastyrki og skyldur styrkþega.
Um kennslustörf sérfræðinga stofnunarinnar fer samkvæmt reglum Háskóla Íslands og gildandi kjarasamningum og stofnanasamningum, að fengnu samþykki næsta yfirmanns og forseta fræðasviðs.
Enginn getur skuldbundið Háskóla Íslands nema rektor og starfsfólk sem fengið hefur umboð í hans nafn.]1
1Breytt með 12. gr. rgl. nr. 382/2024.
[12.]1 gr. Dagleg stjórnun.
Daglegur rekstur Raunvísindastofnunar og einstakra stofnana hennar skal vera í höndum framkvæmdastjóra [...]1 sem forseti Verkfræði- og náttúruvísindasviðs ræður að fenginni tillögu stjórnar stofnunarinnar. Forseti fræðasviðs setur framkvæmdastjóra [starfslýsingu]1 að fenginni umsögn stjórnar RH þar sem nánar er kveðið á um verksvið [framkvæmdastjóra.]1 Framkvæmdastjóri á sæti á stjórnarfundum og hefur þar málfrelsi og tillögurétt. Framkvæmdastjóri annast daglegan rekstur stofnunarinnar samkvæmt [starfslýsingu]1 og sér um framkvæmd á [ákvörðunum stjórnar, fjármál, starfsmannamál og daglegan rekstur.]1 Framkvæmdastjóri er ábyrgur gagnvart stjórn RH og forseta Verkfræði- og náttúruvísindasviðs í starfi sínu. Um ráðningu annars starfsfólks fer eftir ákvæðum sameiginlegra reglna fyrir Háskóla Íslands, sbr. [10.]1 gr. reglna þessara. Verklagsreglur Verkfræði- og náttúruvísindasviðs um rekstrarmálefni gilda einnig fyrir RH.
1Breytt með 13. gr. rgl. nr. 382/2024.
[13.]1 gr. Stofustjórar og deildarstjórar.
[Ef stofnun er skipt í rannsóknarstofur skal stofustjóri vera fyrir faglegum málefnum hverrar stofu og hafa eftirlit með fjármálum stofu sinnar.]1 Stofustjóri ásamt [varafulltrúa]1 er kjörinn í skriflegri kosningu til fjögurra ára í senn úr hópi verkefnisstjóra viðkomandi stofu. Kjörtímabil stofustjóra er hið sama og stjórnar RH. Falli atkvæði jöfn skal hlutkesti ráða niðurstöðu kosningar.
[Ef]1 stofu [er]1 skipt í deildir skal deildarstjóri kjörinn ásamt [varafulltrúa]1 á sama hátt.
Stofustjóri [...]1 er ábyrgur gagnvart stjórn stofnunarinnar í starfi sínu.
1Breytt með 14. gr. rgl. nr. 382/2024.
[14.]1 gr. Fjármál og reikningshald.
Tekjur Raunvísindastofnunar Háskólans eru eftirfarandi:
a) | [...]1 framlag frá Háskóla Íslands skv. ákvörðun háskólaráðs, |
b) | framlag frá Verkfræði- og náttúruvísindasviði og aðildardeildum, |
c) | fjárveitingar og styrkir til einstakra verkefna, |
d) | greiðslur fyrir þjónustustarfsemi, |
e) | aðrar tekjur eða gjafir. |
Reikningshald Raunvísindastofnunar er hluti af reikningshaldi Háskóla Íslands og lýtur reglum þess [...]1 Fjárhagsáætlun [skal]1 borin undir forseta Verkfræði- og náttúruvísindasviðs til staðfestingar.
Veiti Raunvísindastofnun þjónustu í frjálsri samkeppni við atvinnustarfsemi annarra aðila skal sú starfsemi afmörkuð frá öðrum rekstri. Gæta ber að þeim ákvæðum samkeppnislaga sem banna niðurgreiðslu samkeppnisrekstrar með opinberu fé.
[Um stjórnunar- og aðstöðugjald gilda reglur Háskóla Íslands.]1
1Breytt með 15. gr. rgl. nr. 382/2024.
[15.]1 gr. Gildistaka.
Reglur þessar, sem háskólaráð hefur sett á grundvelli heimildar í 3. mgr. 11. gr. laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla, sbr. 27. gr. reglna nr. 569/2009 fyrir Háskóla Íslands, öðlast þegar gildi. Jafnframt falla úr gildi reglur nr. 398/2004 um Raunvísindastofnun Háskólans, með áorðnum breytingum.
[...]1
1Breytt með 16. gr. rgl. nr. 382/2024.
Háskóla Íslands, 22. júní 2011