Reglur fyrir [Sjálfbærnistofnun Háskóla Íslands,]1 nr. 549/2010
með síðari breytingum
1Breytt með 1. gr. rgl. nr. 416/2023.
1. gr. Almennt.
[Sjálfbærnistofnun Háskóla Íslands er rannsókna- og þjónustustofnun á sviði sjálfbærrar þróunar.]2 Stofnunin er þverfræðileg og heyrir undir fræðasvið háskólans sameiginlega, en er vistuð hjá [Félagsvísindasviði.]1 [...]2 Fræðasvið háskólans gera með sér nánara samkomulag um samstarf á vettvangi stofnunarinnar og um fjármögnun samstarfsverkefna.
1Breytt með 1. gr. rgl. nr. 312/2021.
2Breytt með 2. gr. rgl. nr. 416/2023.
2. gr. Hlutverk.
[Hlutverk stofnunarinnar er að vera vettvangur sjálfbærnirannsókna háskólakennara, sérfræðinga og framhaldsnema, sérstaklega í tengslum við þverfræðilegt meistara- og doktorsnám í umhverfis- og auðlindafræði, sbr. reglur nr. 214/2011. Stofnunin skal leitast við að efla rannsóknir á sviði sjálfbærni við Háskóla Íslands, m.a. með samvinnu við deildir og aðrar stofnanir háskólans. Hlutverk stofnunarinnar er einnig að vera vettvangur þróunar á sviði sjálfbærni, með yfirsýn, tengsl og sérþekkingu sem styðja við þverfræðilegar rannsóknir, miðlun og ráðgjöf innan og utan háskólans, svo sem fyrir stjórnvöld, sveitarfélög, stofnanir, fyrirtæki, félagasamtök og einstaklinga.]2
Enn fremur skal stofnunin eftir föngum:
- taka virkan þátt í alþjóðlegu rannsóknasamstarfi,
- veita kennurum og framhaldsnemum [sem vinna á áherslusviðum stofnunarinnar]2 rannsóknaraðstöðu á sviðum stofnunarinnar,
- veita sérfræðiaðstoð, ráðgjöf og annast fræðslustarfsemi, en þessi verkefni eru unnin gegn greiðslu eftir því sem við á,
- styrkja tengsl Háskóla Íslands við atvinnu- og þjóðlíf á [áherslusviðum]2 stofnunarinnar,
- stuðla að hagnýtingu nýjunga á [áherslusviðum]2 stofnunarinnar.
1Breytt með 2. gr. rgl. nr. 312/2021.
2Breytt með 3. gr. rgl. nr. 416/2023.
[...]1
1Breytt með 3. gr. rgl. nr. 312/2021.
[3. gr.]1 Aðstaða.
Háskóli Íslands lætur stofnuninni í té starfsaðstöðu, húsnæði og búnað, svo sem kostur er og eftir því sem um er samið við samstarfsaðila ef við á. Stofnunin veitir starfsliði sínu aðstöðu og nauðsynlegan búnað til rannsókna eftir því sem unnt er.
1Breytt með 3. gr. rgl. nr. 312/2021.
[4. gr.]1 Stjórn.
Forseti [Félagsvísindasviðs]2 skipar stofnuninni fimm manna stjórn til þriggja ára í senn samkvæmt tilnefningu frá hverju fræðasviði háskólans. Æskilegt er að tveir stjórnarmanna séu í aðalstarfi utan Háskóla Íslands. Formaður stjórnarinnar er skipaður samkvæmt tilnefningu forseta [Félagsvísindasviðs.]2 [Í stjórn skulu sitja bæði karlar og konur og skal þess gætt að hlutfall hvors kyns sé ekki minna en 40%, sbr. 28. gr. laga nr. 150/2020 um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna.]3
Stjórnin skiptir að öðru leyti með sér verkum.
1Breytt með 3. gr. rgl. nr. 312/2021.
2Breytt með 4. gr. rgl. nr. 312/2021.
3Breytt með 4. gr. rgl. nr. 416/2023.
[5. gr.]1 Stjórnarfundir.
Formaður stjórnar boðar stjórnarfundi bréflega, eða í tölvupósti, með a.m.k. þriggja daga fyrirvara. Fundarboð skal greina dagskrá fundar. Skylt er að boða stjórnarfund óski tveir eða fleiri stjórnarmenn þess. Sama gildir ef forsetar fræðasviða eða rektor bera fram slíka ósk og hefur þá hann eða sá sem sækir fund í umboði hans, málfrelsi og tillögurétt á fundinum. Falli atkvæði jöfn á stjórnarfundi ræður atkvæði formanns eða þess sem gegnir formannsstörfum. Halda skal gerðabók stjórnar og skulu staðfestar fundargerðir færðar í hana. Afrit fundargerða skulu send rektor.
[Forstöðumaður]2 stofnunarinnar situr stjórnarfundi með málfrelsi og tillögurétt en án atkvæðisréttar.
1Breytt með 3. gr. rgl. nr. 312/2021.
2Breytt með 5. gr. rgl. nr. 312/2021.
[6. gr.]1 Verkefni stjórnar.
Stjórn stofnunarinnar fjallar um öll sameiginleg málefni hennar og ber ábyrgð á fjármálum hennar gagnvart forseta [Félagsvísindasviðs.]2 Stjórnin afgreiðir rekstrar- og fjárhagsáætlun fyrir stofnunina og hefur yfirsýn yfir starfsemi hennar í heild. Hún skiptir fjárveitingu stofnunarinnar milli viðfangsefna. Stjórnin sker úr í vafaatriðum sem upp kunna að koma og varða innri starfsemi stofnunarinnar.
[Ársskýrsla, fjárhagsáætlun ársins og fjárhagsyfirlit síðasta árs skulu lögð fyrir forseta Félagsvísindasviðs til samþykktar.]3
Formaður stjórnar kemur fram fyrir hönd stjórnarinnar og er málsvari hennar. Stjórn er heimilt að fela formanni stjórnar, eða varaformanni í fjarveru formanns, ákvörðunarvald í málum stjórnar á milli stjórnarfunda. Hann skal gera grein fyrir ákvörðunum sínum á næsta stjórnarfundi.
1Breytt með 3. gr. rgl. nr. 312/2021.
2Breytt með 6. gr. rgl. nr. 312/2021.
3Breytt með 5. gr. rgl. nr. 416/2023.
[7. gr.]1 Starfslið.
[Forseti félagsvísindasviðs ræður forstöðumann stofnunarinnar samkvæmt tillögu stjórnar og setur honum erindisbréf. Forstöðumaður annast daglegan rekstur stofnunarinnar, aflar henni verkefna og tekna, annast áætlanagerð, fjármál og starfsmannamál og sér að öðru leyti um framkvæmd á þeim málum sem stjórnin felur honum. Forstöðumaður er í starfi sínu ábyrgur gagnvart stjórn.
Um ráðningu starfsfólks fer að öðru leyti eftir ákvæðum reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009.]2
1Breytt með 3. gr. rgl. nr. 312/2021.
2Breytt með 7. gr. rgl. nr. 312/2021.
[...]1
1Breytt með 8. gr. rgl. nr. 312/2021.
[8. gr.]1 Ársfundur.
Stjórn stofnunarinnar efnir til ársfundar hennar þar sem stefna og starfsemi stofnunarinnar eru kynntar. Ársfundur er öllum opinn og skal auglýstur opinberlega bæði innan háskólans og á almennum vettvangi. Stjórnin býður gestum til þátttöku á fundinum. [Ársskýrsla, fjárhagsáætlun ársins og fjárhagsyfirlit síðasta árs eru kynnt á fundinum.]2
1Breytt með 8. gr. rgl. nr. 312/2021.
2Breytt með 6. gr. rgl. nr. 416/2023.
[9. gr.]1 Fjármál.
Reikningshald stofnunarinnar skal vera hluti af reikningshaldi háskólans. Tekjur stofnunarinnar eru eftirfarandi:
- [fjárveitingar frá háskólaráði vegna forstöðumanns og skrifstofuaðstöðu og samkvæmt samningi á milli fræðasviða, sbr. 1. gr.]2
- fé sem aflað er til starfseminnar með samningum við samstarfsaðila,
- styrkir til einstakra verkefna eða starfseminnar í heild,
- greiðslur fyrir þjónustustarfsemi,
- aðrar tekjur, t.d. gjafir og framlag úr ríkissjóði eftir því sem kveðið kann að vera á um í fjárlögum.
[Stofnunin lýtur sömu reglum um meðferð stjórnunar- og aðstöðugjalds af sértekjum og greiðir sama hlutfall og deildir Félagsvísindasviðs til jöfnunar fjárveitinga innan fræðasviðsins.]2
Ef um er að ræða útselda þjónustu, sem veitt er í samkeppni við einkaaðila, skal sú starfsemi fjárhagslega afmörkuð frá öðrum rekstri stofnunarinnar og þess gætt að sá rekstur sé ekki niðurgreiddur með öðrum tekjum, í samræmi við ákvæði samkeppnislaga.
1Breytt með 8. gr. rgl. nr. 312/2021.
2Breytt með 9. gr. rgl. nr. 312/2021.
[10. gr.]1 Gildistaka.
Reglur þessar, sem háskólaráð hefur sett á grundvelli heimildar í 3. mgr. 11. gr. laga nr. 85/2008, um opinbera háskóla, öðlast þegar gildi.
Með gildistöku reglna þessara falla úr gildi reglur nr. 526/2005, um Stofnun Sæmundar fróða um sjálfbæra þróun og þverfræðilegar rannsóknir við Háskóla Íslands.
1Breytt með 8. gr. rgl. nr. 312/2021.
Háskóla Íslands, 15. júní 2010.