Hagnýt atferlisgreining
Hagnýt atferlisgreining
MS gráða – 120 einingar
Hagnýt atferlisgreining er vísindagrein sem fjallar um hegðun og samspil hennar við umhverfið og um það hvernig hegðun lærist. Viðfangsefni hennar eru grunnlögmál hegðunar og hvernig hægt er að beita þeim á markvissan hátt til að hafa jákvæð áhrif á nám og hegðun. Notaðar eru gagnreyndar aðferðir og áhersla lögð á að meta og mæla árangur af kennslu eða íhlutun.
Skipulag náms
- Haust
- Einhverfa og þroskafrávik: Snemmtæk kennsla, stuðningur og ráðgjöf
- Hagnýt atferlisgreining í skólastarfi og uppeldi
- Gagnreyndar aðferðir í kennslu og námi A
- Starfsþjálfun í hagnýtri atferlisgreiningu 1
- Vor
- Siðareglur í hagnýtri atferlisgreiningu
- Hegðunar- og bekkjarstjórnun
- Starfsþjálfun í hagnýtri atferlisgreiningu 2
- Starfsþjálfun í hagnýtri atferlisgreiningu 3
- Kenningar um nám: Hagnýting og rannsóknirB
- Hegðunar- og námsfræðiB
Einhverfa og þroskafrávik: Snemmtæk kennsla, stuðningur og ráðgjöf (ATF101F)
Markmið námskeiðsins er að auka þekkingu á gagnreyndum og áhrifaríkum leiðum til að skilja, kenna og styðja við börn með röskun á einhverfurófinu og/eða þroskafrávik. Fjallað verður um áskoranir sem þessi hópur getur glímt við varðandi nám, hegðun eða félagsleg samskipti og ýmis álitamál tengd kennslu þeirra og stuðningi. Kynntar verða ýmsar matsaðferðir til að kortleggja af nákvæmni stöðu hvers einstaklings á mismunandi sviðum og hvernig slíkt mat er góður grundvöllur fyrir raunhæfa og skýra einstaklingsnámskrá. Fjallað verður um val á viðeigandi skammtíma- og langtímamarkmiðum með hliðsjón af niðurstöðum mats og óskum fjölskyldu. Gefin verða dæmi um kennslu- og/eða stuðningsáætlanir og veittar ráðleggingar um gerð einstaklingsmiðaðra áætlana.
Sérstök áhersla verður á umfjöllun um gagnreyndar aðferðir til að mæta margbreytilegum þörfum, hvort sem varðar nám, hegðun, tjáningu, samskipti eða daglegar athafnir. Þeirra á meðal eru heildstæð atferlisþjálfun, afmarkaðar kennsluæfingar, virknimat, boðskiptaþjálfun, náttúruleg kennsla og hreinlætisþjálfun. Fjallað verður um mikilvægi eftirfylgdar og hvernig hægt er að styðja við árangursríka framkvæmd kennslu/stuðnings og meta áhrif á færni, hegðun og/eða líðan barna. Samhliða allri umfjöllun verða ræddar leiðir til að stuðla að farsælu samstarfi allra hlutaðeigandi aðila með hagsmuni, styrkleika og velferð hvers einstaklings að leiðarljósi.
Hagnýt atferlisgreining í skólastarfi og uppeldi (ATF102F)
Meginviðfangsefni námskeiðsins snýr að grundvallarþáttum atferlisgreiningar og hagnýtingu hennar, meðal annars í skólastarfi og uppeldi. Fjallað verður um grunnlögmál hegðunar, hvernig þau birtast í samskiptum og hagnýtingu þeirra á sviði uppeldis og menntunar. Undirstöðuhugtök og megin aðferðir í hagnýtri atferlisgreiningu verða skilgreindar og ræddar með áherslu á hvernig hægt er nýta þessa nálgun til að bæta hegðun sem er félagslega mikilvæg. Gefin verða fjölbreytt dæmi um hagnýtingu atferlisgreiningar í uppeldi og skólastarfi. Námsefnið er kennt með fyrirlestrum, hagnýtum verkefnum og hópavinnu.
Gagnreyndar aðferðir í kennslu og námi A (SÁL143F)
Fjallað verður um námsörðugleika barna og unglinga, eðli þeirra, uppruna, mælitæki og greiningaraðferðir. Leiðir til að vinna með námsörðugleika með aðferðum hagnýtrar atferlisgreiningar verða kynntar og fjallað um raunprófaða kennslutækni í þessu tilliti með áherslu á rannsóknir í hagnýtri atferlisgreiningu.
Starfsþjálfun í hagnýtri atferlisgreiningu 1 (ATF103F)
Nemendur ljúka starfsþjálfun á vettvangi undir handleiðslu sérfræðinga. Nemendur velja vinnustaði í samráði við kennara. Þeir munu æfast í að beita aðferðum hagnýtrar atferlisgreiningar við lausn fjölbreyttra viðfangsefna. Nemar kynnast eigin styrkleikum og veikleikum í starfi og vinna að þróun þekkingar sinnar og hæfni.
Siðareglur í hagnýtri atferlisgreiningu (SÁL245F)
Í námskeiðinu er farið yfir siðareglur í starfi á sviði hagnýtrar atferlisgreiningar og mikilvægi faglegra vinnubragða. Áhersla er á ábyrga starfshætti, ábyrgð fagaðila gagnvart skjólstæðingum, faginu, samstarfsfólki og viðeigandi vinnubrögð. Fjallað verður um áhrif hlutdrægni hjá fagfólki og farið yfir algengar skekkjur sem geta haft áhrif á mat fagmanna. Einnig er fjallað um hvað einkennir góð og fagleg samskipti og samstarf, annarsvegar á milli fagaðila og hins vegar við aðstandendur. Samband laga og siðareglna verður athugað. Mikilvægi góðrar teymisvinnu og einkenni þess verða rædd. Námskeiðið uppfyllir kröfur sem ýmsir vottunaraðilar gera til þeirra sem starfa í atferlisgreiningu.
Hegðunar- og bekkjarstjórnun (ATF201F)
Námskeiðinu er ætlað að undirbúa nemendur til að fyrirbyggja, meta og draga úr hegðunarvanda með aðferðum hagnýtrar atferlisgreiningar. Fjallað verður um krefjandi hegðun barna og unglinga og áhrifaþætti hennar. Kynntar verða gagnreyndar og jákvæðar leiðir til að skapa hvetjandi námsumhverfi með stuðningi við jákvæða hegðun á einstaklingsgrundvelli, með áhættuhópum og á samræmdan hátt í bekknum eða skólanum öllum. Nemendur kynnast aðferðum við bekkjar- eða hópastjórnun og æfa framkvæmd virknimats og stuðningsáætlunar til að draga úr langvarandi hegðunarvanda. Fjallað verður um leiðir við ráðgjöf og handleiðslu í ofangreindum aðferðum. Í námskeiðinu öllu er lögð áhersla á mikilvægi jákvæðra samskipta og uppbyggilegs samstarfs við börn, foreldra, kennara og aðra fagaðila.
Starfsþjálfun í hagnýtri atferlisgreiningu 2 (ATF202F)
Nemendur ljúka starfsþjálfun á vettvangi undir handleiðslu sérfræðinga. Nemendur velja vinnustaði í samráði við kennara. Þeir munu æfast í að beita aðferðum hagnýtrar atferlisgreiningar við lausn fjölbreyttra viðfangsefna. Nemar kynnast eigin styrkleikum og veikleikum í starfi og vinna að þróun þekkingar sinnar og hæfni.
Starfsþjálfun í hagnýtri atferlisgreiningu 3 (ATF203F)
Nemendur ljúka starfsþjálfun á vettvangi undir handleiðslu sérfræðinga. Nemendur velja vinnustaði í samráði við kennara. Þeir munu þjálfast í að beita aðferðum hagnýtrar atferlisgreiningar við lausn fjölbreyttra viðfangsefna. Nemar kynnast eigin styrkleikum og veikleikum í starfi og vinna að þróun þekkingar sinnar og hæfni.
Kenningar um nám: Hagnýting og rannsóknir (MVS009F, SÁL244F)
Markmið
Markmið námskeiðsins er þríþætt. Í fyrsta lagi, að nemendur fái innsýn í valdar námskenningar, einkum þær sem hafa haft áhrif á uppeldis- og skólastarf á okkar tímum. Í öðru lagi, að nemendur öðlist skilning á hvernig nýta megi kenningarnar í framkvæmd við uppeldi, kennslu og skipulagningu náms fyrir fólk á öllum aldri. Í þriðja lagi, að nemendur þekki til rannsókna á áhrifum mismunandi kennslunálgana og hverjar þeirra teljast gagnreyndar til að ná tilteknum námsmarkmiðum.
Inntak / viðfangsefni
- Fjallað verður um nokkrar af meginkenningum um nám svo sem atferlishyggju (behaviourism), hugfræðilega nálgun (cognitive psychology) og félags- menningarkenningar (socio-cultural theories)
- Áhersla er lögð á helstu hugtök sem beitt er í ofangreindum kenningum og að þær geta byggt á ólíkum skilgreiningum á námi
- Nemendur lesa rannsóknargreinar þar sem þessum kenningum er beitt í uppeldis- og skólastarfi og þjálfast í að skilja notkun hugtaka og kenninga í rannsóknum á vettvangi
- Fjallað verður um hvað gerir aðferðir gagnreyndar (evidence-based) og hvernig er hægt velja viðeigandi og áhrifaríkar aðferðir til að stuðla að námi fjölbreytts hóps á ólíkum sviðum.
- Nemendur gera áætlun um námsferli á vettvangi uppeldis- og skólastarfs þar sem þeir beita viðeigandi kenningum að eigin vali og dýpka þar með þekkingu sína í einhverri af þeim kenningum sem fengist er við í námskeiðinu. Áhersla er lögð á tengsl áætlunar við rannsóknir og kenningar í verkefninu og að sama tíma sé hugað að hagnýtingu og útfærslu.
Hegðunar- og námsfræði (MVS009F, SÁL244F)
Atferlisgreining sem byggir á róttækri atferlishyggju B. F. Skinners er megininntak námskeiðsins . Kynnt verða grundvallaratriði virkra og klassískra vensla og önnur lögmál um hegðun og nám. Lítillega er fjallað um hvernig niðurstöður grunnrannsókna nýtast við kennslu, þjálfun og meðferð. Áhersla er lögð á grundvallarhugtök atferlisgreiningar.
- Haust
- Meistaraverkefni í hagnýtri atferlisgreiningu
- Gagnreyndar aðferðir í kennslu og námi B
- Aðferðir í hagnýtri atferlisgreiningu A
- Starfsþjálfun í hagnýtri atferlisgreiningu 4
- Skýringar á hegðunV
- Aðferðir í hagnýtri atferlisgreiningu BV
- Siðareglur í rannsóknarstarfi í hagnýtri atferlisgreininguV
- Tjáning og samskiptiV
- ForeldraþjálfunV
- Vor
- Meistaraverkefni í hagnýtri atferlisgreiningu
- Starfsþjálfun í hagnýtri atferlisgreiningu 5
- Starfsþjálfun í hagnýtri atferlisgreiningu 6
Meistaraverkefni í hagnýtri atferlisgreiningu (ATF401L)
Meistaranám í hagnýtri atferlisgreiningu er 120 eininga þverfræðilegt framhaldsnám og þar af skal hagnýtt rannsóknarverkefni vera 30 einingar. Rannsóknarverkefnið er unnið á öðru, þriðja og fjórða misseri meistaranáms í hagnýtri atferlisgreiningu.
Vor (2. misseri): Við lok þessa misseris á nemandi að velja sér viðfangsefni meistaraverkefnis í samráði við leiðbeinanda og hefja undirbúning.
Haust (3. misseri): Á þessu misseri afmarka nemendur rannsóknarviðfangsefni sitt og rannsóknarspurningar og leggja fram ítarlega og vel rökstudda rannsóknaráætlun til samþykktar fyrir leiðbeinanda meistaraverkefnis hagnýtri atferlisgreiningu. Nemendur skulu enn fremur ljúka vinnu á fræðilegum bakgrunni verkefnisins á þessari önn og sjá um að senda umsóknir til viðeigandi aðila ef þörf krefur, t.d. Vísindasiðanefndar Íslands eða Vísindasiðanefndar HÍ, eftir því sem við á.
Vor (4. misseri): Vinnu við lokaverkefnið lýkur á þessari síðustu önn námsins með skrifum fræðigreinar um rannsóknina.
Námsmat: Staðið/fallið.
Gagnreyndar aðferðir í kennslu og námi B (SÁL329F)
Þetta er klíniskt námskeið þar sem nemendur munu fá úhlutað nemanda í grunnskóla sem hefur dregist á eftir í námi. Markmiðið með verkefninu er að beita raunprófuðum kennsluháttum sem lesið var um í námskeiðinu Gagnreyndar aðferðir í kennslu og námi A, haustið á undan. Í vikulegum kennslutímum verður farið yfir stöðu hvers máls og nemendur taka þátt í að leysa vanda sem upp kann að koma. Nemendur sem hafa kynnst svona vinnu áður eins og greint er frá hér að ofan, t.d. í lokaverkefni, munu mæla áreiðanleika og meðferðartryggð hjá þeim sem vinna með nemanda, aðstoða stundum í kennslunni og halda skýrslu um ákvarðanir teknar til að leysa vanda og athuga hvort þeim er fylgt eftir.
Aðferðir í hagnýtri atferlisgreiningu A (SÁL330F)
Í námskeiðinu eru kennd grundvallaratriði einliðasniða (N=1) og hvernig hægt er að rannsaka, fylgjast með og svara spurningum um áhrif inngrips á hegðun fólks. Fjallað verður um helstu einstaklingstilraunasniðin og helstu atriði í hönnun, framkvæmd og úrvinnslu rannsókna með einliðasniði, allt frá vali og skilgreiningu á markhegðun til mats á áhrifum inngrips.
Starfsþjálfun í hagnýtri atferlisgreiningu 4 (ATF301F)
Nemendur ljúka starfsþjálfun á vettvangi undir handleiðslu sérfræðinga. Nemendur velja vinnustaði í samráði við kennara. Þeir munu æfast í að beita aðferðum hagnýtrar atferlisgreiningar við lausn fjölbreyttra viðfangsefna. Nemar kynnast eigin styrkleikum og veikleikum í starfi og vinna að þróun þekkingar sinnar og hæfni.
Skýringar á hegðun (SÁL104G)
Fjallað verður um vísindalegar skýringar og eðli þeirra. Síðan er fjallað um ólíkar sálfræðiskýringar á athöfnum fólks við ýmis skilyrði og fræðilegur skilningur á sálarlífi borinn saman við hversdagsskilning.
Aðferðir í hagnýtri atferlisgreiningu B (SÁL144F)
Námskeiðið er kennt samhliða Aðferðum í hagnýtri atferlisgreiningu A. Í þessum hluta fá nemendur að kynnast betur einstaklingstilraunasniðum (single subjects designs) með því að lesa birtar greinar um rannsóknir sem hafa beitt þessum aðferðum til að meta árangur íhlutunar. Nemendur fá einnig æfingu í að kynna og ræða slíkan texta. Áhersla er á sýn Sidman á þessa aðferðarfræði.
Siðareglur í rannsóknarstarfi í hagnýtri atferlisgreiningu (SÁL331F)
Í námskeiðinu er farið yfir mikilvægi faglegra vinnubragða og siðareglur rannsókna í hagnýtri atferlisgreiningu. Áhersla er á ábyrga starfshætti og ábyrgð fagaðila gagnvart þátttakendum í rannsóknum og viðeigandi vinnubrögð við rannsóknastörf, t.d. réttindi og trúnaður við þátttakendur, leyfi til gagnaöflunar og úrvinnslu gagna. Fjallað verður um fagleg vinnubrögð varðandi skipulag, vinnslu, dreifingu og kynningu niðurstaðna og einnig rætt um það hvernig brugðist er við óheiðarleika og misbeitingu.
Tjáning og samskipti (TÓS104G)
Nemendur lesa texta um viðfangsefni námskeiðsins og hagnýta sér, ásamt fyrirlestrum og leiðsögn kennara, til að æfa sig í þeirri sköpun, tjáningu og athugun sem skilgreind er í hæfniviðmiðum.
Námskeiðið er skipulagt með það fyrir augum að tengja saman fræði og framkvæmd á þann veg að nemendur vinni þau verk sem námskeiðið snýst um, ræði saman (eða skrifist á) um reynslu sína af viðfangsefnum og læri af henni. Í þessu felst meðal annars ræðuþjálfun, leikræn tjáning og greining á samskiptum. Að auki verður áhersla á stofnun og stjórnun félagasamtaka, fundarstjórn og fundarsköp.
Foreldraþjálfun (SÁL304G)
Kennarar: Umsjónarmaður námskeiðs er Zuilma Gabriela Sigurðardóttir, prófessor. Stundakennarar kenna námskeiðið. Auk þeirra munu tveir gestafyrirlesarar sem fást við foreldraþjálfun eða foreldrafræðslu í vinnu sinni sem sálfræðingar segja frá. Í námskeiðinu verður fjallað um rannsóknir á árangri meðferðar þar sem foreldrum er kennt með ýmsu móti að höndla ýmis hegðunarvandamál barna sinna, eins og ýgi, þrjósku, og aðra andfélagslega hegðun sem eru grunnurinn undir greiningu á röskunum eins og ofvirkni, andstöðuþrjóskuröskun og hegðunarröskun hjá börnum og unglingum. Fjallað verður ítarlega um innihald og framkvæmd slíkrar meðferðar. Einnig verður fjallað um stutt foreldrafræðslunámskeið sem hafa þróast út frá rannsóknum á áhrifum fyrrnefndrar foreldraþjálfunar og er beitt sem sálfélagslegri forvörn við hegðunarvandamál barna og sem almenn fræðsla um uppeldistækni til að auka líkur á aðlögun barna að daglegu lífi.
Meistaraverkefni í hagnýtri atferlisgreiningu (ATF401L)
Meistaranám í hagnýtri atferlisgreiningu er 120 eininga þverfræðilegt framhaldsnám og þar af skal hagnýtt rannsóknarverkefni vera 30 einingar. Rannsóknarverkefnið er unnið á öðru, þriðja og fjórða misseri meistaranáms í hagnýtri atferlisgreiningu.
Vor (2. misseri): Við lok þessa misseris á nemandi að velja sér viðfangsefni meistaraverkefnis í samráði við leiðbeinanda og hefja undirbúning.
Haust (3. misseri): Á þessu misseri afmarka nemendur rannsóknarviðfangsefni sitt og rannsóknarspurningar og leggja fram ítarlega og vel rökstudda rannsóknaráætlun til samþykktar fyrir leiðbeinanda meistaraverkefnis hagnýtri atferlisgreiningu. Nemendur skulu enn fremur ljúka vinnu á fræðilegum bakgrunni verkefnisins á þessari önn og sjá um að senda umsóknir til viðeigandi aðila ef þörf krefur, t.d. Vísindasiðanefndar Íslands eða Vísindasiðanefndar HÍ, eftir því sem við á.
Vor (4. misseri): Vinnu við lokaverkefnið lýkur á þessari síðustu önn námsins með skrifum fræðigreinar um rannsóknina.
Námsmat: Staðið/fallið.
Starfsþjálfun í hagnýtri atferlisgreiningu 5 (ATF401F)
Nemendur ljúka starfsþjálfun á vettvangi undir handleiðslu sérfræðinga. Nemendur velja vinnustaði í samráði við kennara. Þeir munu æfast í að beita aðferðum hagnýtrar atferlisgreiningar við lausn fjölbreyttra viðfangsefna. Nemar kynnast eigin styrkleikum og veikleikum í starfi og vinna að þróun þekkingar sinnar og hæfni.
Starfsþjálfun í hagnýtri atferlisgreiningu 6 (ATF402F)
Nemendur ljúka starfsþjálfun á vettvangi undir handleiðslu sérfræðinga. Nemendur velja vinnustaði í samráði við kennara. Þeir munu æfast í að beita aðferðum hagnýtrar atferlisgreiningar við lausn fjölbreyttra viðfangsefna. Nemar kynnast eigin styrkleikum og veikleikum í starfi og vinna að þróun þekkingar sinnar og hæfni.
Hafðu samband
Kennsluskrifstofa Menntavísindasviðs
Stakkahlíð, 1. hæð í Enni
Opið kl. 8.15 – 15.00 alla virka daga
Sími 525 5950
mvs[hja]hi.is
Samfélagsmiðlar
Hjálplegt efni
Ertu með fleiri spurningar? Hér finnurðu svör við ýmsum þeirra og upplýsingar um ýmislegt annað sem gott er að hafa í huga þegar þú velur nám.