Öflugur háskóli – farsælt samfélag
Ræða Jóns Atla Benediktssonar, rektors Háskóla Íslands, við brautskráningu í Háskóla Íslands hinn 20. febrúar 2016
„Fyrrverandi rektor, forsetar fræðasviða, deildarforsetar, kandídatar og fjölskyldur, aðrir góðir gestir.
Brautskráning markar tímamót í lífi sérhvers nemanda og hjá fjölskyldu hans. Þetta er því stór stund í lífi ykkar, ágætu kandídatar, og við fögnum með ykkur. Athöfnin hér í dag er lokaskrefið í átt að markmiði sem þið hafið sett ykkur og unnið markvisst að um árabil, því persónulega markmiði að bæta við ykkur þekkingu, tileinka ykkur hæfni og auka víðsýni. En það má líka snúa þessu við og segja að brautskráningin marki fyrsta skrefið í vegferð ykkar út í lífið með nýja þekkingu og ný viðhorf í farteskinu; kunnáttu og hæfni sem nýtist ykkur vitaskuld persónulega, og auðgar líf ykkar, en skapar jafnframt aukin verðmæti fyrir samfélagið allt. Þannig er menntun máttur og framlag ykkar, ágætu kandídatar, mun eiga drjúgan þátt í að auka velsæld í samfélaginu í framtíðinni.
Háskóli Íslands þjónar íslensku samfélagi sem fóstrar hann. Um þessar mundir leggjum við lokahönd á stefnu skólans til næstu fimm ára sem mun bera yfirskriftina „Öflugur háskóli – farsælt samfélag“. Gildi Háskóla Íslands eru akademískt frelsi, jafnrétti og fagmennska. Markmið skólans er að bjóða ávallt upp á prófgráður sem standast alþjóðleg gæðaviðmið og vaxandi samkeppni við erlenda háskóla. Háskóli Íslands gegnir þannig lykilhlutverki í uppbyggingu þekkingarsamfélags á Íslandi. Hann er afkastamesta vísindastofnun landsins, leiðandi í menntun fagfólks á fjölmörgum fræðasviðum, í virkum tengslum við atvinnu- og þjóðlíf og með djúpar rætur í menningu og sögu landsins. Þessi tengsl við íslenskt atvinnu- og þjóðlíf viljum við rækta með markvissum hætti á næstu árum til að efla gæði námsins og til að tryggja að áhrifa skólans til góðs gæti sem víðast í samfélaginu.
Háskólinn er í nánu samstarfi við helstu háskóla og rannsóknastofnanir víða um lönd og birtist styrkur hans sem alþjóðlegur rannsóknaháskóli í sterkri stöðu hans á matslistum yfir fremstu háskóla heims. Það er ekki að ástæðulausu sem við kostum kapps um að tryggja stöðu Háskóla Íslands á alþjóðlegum vettvangi. Sterk staða skólans í alþjóðlegu samhengi skapar ótal tækifæri fyrir nemendur og kennara skólans, laðar fremstu vísindamenn heims til samstarfs við okkur, og er forsenda þess að íslenskt samfélag fái notið alls hins besta sem alþjóðlegt fræðasamfélag hefur upp á að bjóða.
Forsenda þess að Háskóli Íslands nái að sækja fram á næstu árum og efla farsæld í íslensku samfélagi er að fjármögnun skólans verði hliðstæð við fjármögnun norrænna háskóla. Grunnfjármögnun háskóla skiptir meginmáli þegar sótt er fram, en yfirlýst stefna stjórnvalda er að bæta fjármögnun háskólakerfisins hér á landi á næstu árum. Því fögnum við hjá Háskóla Íslands. Háskólar á Íslandi standa samanburðarskólum á Norðurlöndum og í öðrum ríkjum OECD langt að baki þegar kemur að opinberum fjárframlögum. Og bilið hefur því miður breikkað á undanförnum árum.
Ég fullyrði að hver króna sem sett er í háskólakerfið er vel nýtt, en erlendar og innlendar úttektir hafa ítrekað staðfest að Háskóli Íslands er afar skilvirk og vel rekin stofnun. Óeigingjarnt framlag starfsfólks og þrautseigja við oft erfiðar aðstæður hefur stuðlað að hagkvæmni í rekstri og tryggt gæði háskólastarfsins. En við núverandi fjármögnun verður ekki lengur búið eigi íslenskir háskólar að standast samkeppni á alþjóðavettvangi á næstu árum. Stjórnvöld verða því að forgangsraða í þágu háskólastigsins. Ekki nægir að standa vörð um það sem áunnist hefur, sækja þarf fram, ekki síst í rannsóknum. Rannsóknir hafa ótvírætt gildi í sjálfu sér, en þær eru um leið undirstaða bættrar kennslu, þær dýpka námið, fróðleiksþorsti nemenda eykst og sjóndeildarhringur þeirra víkkar þegar þeir verða vitni að því hvernig ný þekking verður til og taka þátt í öflun hennar. Rannsóknir eru einnig grundvöllur bættra lífskjara, þeim fylgja iðulega hagnýtar uppgötvanir í ólíkum fræðigreinum og þekkingarsköpunin leiðir til nýrra fyrirtækja og nýrra starfa.
Reglulega fáum við fréttir af sprotafyrirtækjum sem byggjast á rannsóknum vísindamanna og nemenda Háskóla Íslands. Hagnýting rannsóknaniðurstaða á sér stað á öllum fræðasviðum Háskóla Íslands. Fjölmargar hugmyndir kvikna í því frjóa umhverfi sem ríkir innan Háskóla Íslands og mörgum þeirra hefur verið hrint í framkvæmd í samfélaginu.
Ágætu kandídatar, eins og ég nefndi hér í upphafi þá er það stór stund hjá ykkur að ljúka prófgráðu. Að undanförnu hefur verið nokkuð rætt á opinberum vettvangi um gildi prófgráða og því m.a. verið haldið fram að háskólagráðan hafi gengisfallið. Fyrirtæki vilji meiri fjölbreytni og reynsla sé vanmetin.
Ég vísa því á bug að háskólagráður séu almennt ofmetnar. Steinn Steinarr sagði eitt sinn, þegar hann vildi lýsa efasemdum um gildi prófgráða: „Kaffihúsin eru minn háskóli“. Þau orð kunna að vera til marks um gæði kaffihúsa á hans tíma en þau segja okkur harla lítið um eðli alhliða háskóla sem stendur í gagnvirkum tengslum við öll svið mannlífsins. Prófgráður eru mikilvægari en nokkru sinni bæði fyrir nemendur og samfélagið allt. Prófgráða frá háskóla er ekki aðeins til vitnis um þjálfun á tilteknu sviði og aukna þekkingu. Hún er um leið vitnisburður um öguð vinnubrögð og gagnrýna hugsun. Háskólar verða að uppfylla ströng alþjóðleg gæðaviðmið og háskólagráðan er þannig gæðastimpill sem opnar fjölmargar dyr út í þjóðfélagið og umheiminn. Við þurfum ævinlega að vera á varðbergi gagnvart þeim sem vilja gera lítið úr gildi æðri menntunar.
Með þessu er ég alls ekki kasta rýrð á gildi reynslunnar; hún skiptir vissulega máli og þegar fyrirtæki og stofnanir ráða starfsfólk verða þau að vega og meta hvaða prófgráða og hvers konar reynsla hæfir best starfinu sem í boði er. En ég get á hinn bóginn fullyrt að með þeim áfanga sem þið hafið nú náð og staðfestur er hér í dag, hafið þið, ágætu kandídatar, ekki bara aflað ykkur nýrrar þekkingar og gert ykkur þannig verðmætari fyrir samfélagið, heldur hafið þið einnig tekist á við og lokið stóru verkefni sem útheimtir fyrirhyggju, eljusemi og þrautseigju. Þannig hafið þið öðlast dýrmæta reynslu sem mun nýtast ykkur sem gott veganesti út í lífið um ókomin ár. Ég vona að þið munið ávallt hugsa með stolti til Háskóla Íslands og áranna ykkar hér.
Góðir kandídatar, Háskóli Íslands leggur nú áherslu á að efla hollvinastarf sitt m.a. með auknu sambandi við brautskráða nemendur. Í þessu felast gríðarleg tækifæri eins og sjá má í háskólum bæði austan hafs og vestan. Það er von mín að þið verðið öll virkir hollvinir skólans um ókomna tíð. Ég treysti því líka að í störfum ykkar og samskiptum munið þið, ágætu kandídatar, efla tiltrú almennings á háskólamenntun.
Ég óska ykkur innilega til hamingju með áfangann og velfarnaðar í þeim verkefnum sem þið takið ykkur nú fyrir hendur, hvort sem þið haldið út í atvinnulífið, í frekara nám eða takist á við annað.“