Áfengis- og vímuefnamál - Viðbótardiplóma
Áfengis- og vímuefnamál
Viðbótardiplóma – 30 einingar
Markmið námsleiðarinnar er að koma til móts við þörf fyrir sérhæfða þekkingu og færni á sviði áfengis- og vímuefnamála. Nemendur fá fræðilega og hagnýta þekkingu um málefni áfengis- og vímuefnasjúkra og áhrif vímuefnasýki á aðra fjölskyldumeðlimi og fjölskyldukerfi.
Skipulag náms
- Haust
- Áfengis- og vímuefnamál I: Stefnumótun, þverfagleg nálgun og skilgreiningar
- Vor
- Áfengis- og vímuefnamál II: Meðferðarlíkön, forvarnir og vinnulag með einstaklingum með áfengis- og vímuefnaröskun
- Aðferðir í áfengis- og vímuefnameðferð
Áfengis- og vímuefnamál I: Stefnumótun, þverfagleg nálgun og skilgreiningar (FRG119F)
Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist þekkingu á félagslegum, sálfræðilegum og læknisfræðilegum þáttum áfengis- og vímuefnaneyslu og þróun vímuefnaröskunar. Fjallað verður um skimun og greiningarlíkön, einkenni vímuefnaröskunar og samanburður verður gerður á samfélagslegum og menningarlegum þáttum áfengis og vímuefnaneyslu. Gerð verður grein fyrir hlutverki stefnumótunar og löggjafar um mismunandi meðferðarúrræði og forvarnir í þverfaglegu samstarfi og hvernig áfengis- og vímuefnaröskun getur þróast á mismunandi hátt hjá ólíkum hópum.
Námskeiðið verður kennt í staðlotum. Skyldumæting er í lotur.
Áfengis- og vímuefnamál II: Meðferðarlíkön, forvarnir og vinnulag með einstaklingum með áfengis- og vímuefnaröskun (FRG228F)
Markmið námskeiðsins er að gera grein fyrir áfengis- og vímuefnamálum sem þverfaglegri fræðigrein og að nemendur öðlist þekkingu á hvernig nota má gagnreyndar aðferðir við meðferð ólíkra hópa. Fjallað verður um helstu einkenni vímuefnaröskunar, bataferli vímuefnasjúkra, og fallþróun. Áhersla verður lögð á að dýpka þekkingu nemenda um málefni fólks með vímuefnaröskun með það að markmiði að gera þá hæfari til að vinna með öðrum starfsstéttum að velferðarmálum þessa hóps.
Námskeiðið verður kennt í lotum, nánar tiltekið tvo samfellda daga í þrjú skipti yfir misserið. Skyldumæting er í lotur.
Aðferðir í áfengis- og vímuefnameðferð (FRG243F)
Markmið námskeiðinu er að treysta sérfræðiþekkingu félagsráðgjafa á sviði áfengis-og vímuefnamála og efla færni til að þróa meðferðar-, fræðslu og rannsóknastörf á sviðinu. Fjallað er á gagnrýnin hátt um heildstæð líkön út frá félagslegum, líkamlegum og sálrænum þáttum (biopsychosocial model) eins og þeim er beitt í meðferðarvinnu fyrir skjólstæðinga með áfengis- og vímuefnavanda. Í þessu samhengi er unnið með hugtök eins menningartengd mynstur, áhættuneyslu, afneitun og inngrip fyrir vímuefnasjúka með langvarandi félagslegan vanda. Sérstök áhersla er á alhliða (biopsychosocial) greiningu, DSM ICD skilgreiningar auk skimunarprófa. Efni námskeiðsins er tengt þróun rannsókna á vímuefnafíkn (alkóhólisma), m.a. lífeðlisfræðilegum rannsóknum, og gæðamati á árangri fræðslu- og meðferðaverkefna.
Hafðu samband
Nemenda- og kennsluþjónusta Félagsvísindasviðs er á
Þjónustutorgi í Gimli
s. 525 4500
Netfang: nemFVS@hi.is
Opið virka daga frá 09:00 - 15:00
Gimli - Sæmundargötu 10, 102 Reykjavík
Bóka viðtal við nemenda- og kennsluþjónustu Félagsvísindasviðs
Félagsráðgjafardeild á samfélagsmiðlum
Hjálplegt efni
Ertu með fleiri spurningar? Hér finnurðu svör við ýmsum þeirra og upplýsingar um ýmislegt annað sem gott er að hafa í huga þegar þú velur nám.